Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 2
Grænmetisborgarar, tófú
og grænmeti á prjónum eru
á grilli grænmetisætunnar.
6
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Hvellur • Smiðjuveg 30, 200 Kópavogur • www.hvellur.com • s: 577 6400
Opið virka daga 9:00 - 18:00 og 12:00 - 16:00 á laugardögum.
Fyrir atvinnumanninn og sveitarfélög.
• Briggs & Stratton 750EX Series 161cc DOV bensínmótor.
• Sláttubreidd 53 cm
• Sjálfkeyrandi drif 3.6 km/t.
• Afturkast með 70 l poka og „Mulching” (hökkun)
• 6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 cm
• 20 og 28 cm hjól
• Ein samþátta hæðarstilling fyrir öll hjól.
Heimilisvélin.
• Briggs & Stratton 450E Series 125cc OHV bensínmótor.
• Sláttubreidd 46 cm
• Afturkast með 60 l poka og möguleika á „Mulching”
• 6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 cm
• 18 cm hjól
• Tvær samþátta hæðarstillingar
Murray sláttuvélar frá Hvelli
Loksins eru gæða sláttuvélarnar aftur fáanlegar á Íslandi,
allar vélarnar eru framleiddar í Evrópu með nýjustu
umhverfisvænum gæðamótorum frá Briggs og Stratton.
Varist eftirlíkingar!!
Murray EQ700X
Ready Start
Verð kr. 117.097,-
Murray EQ400
Verð kr. 69.739,-
19.05.2017
Það þarf ekki að vera dýrt
að setja lítinn og einfaldan
gosbrunn í garðinn.
26-27
Íslenskt veðurfar kallar á
grill með kröftuga brenn-
ara og góða einangrun.
22-23
Humarpitsan er fallegur og
bragðgóður grillréttur sem
enginn verður svikinn af.
12-14
Loksins! Loksins er sumarið komið. Loksins má
ná í hanskana og skóflurnar úr bílskúrnum og
byrja að gróðursetja.
Loksins má tæma úr kolapoka á grillið,
sneiða ostinn, blanda sósuna, móta kjöthakkið,
kæla bjórinn og búa til dýrindis hamborgara.
Loksins má draga sólbekkinn út úr geymsl-
unni og leita að sólarvarnarbrúsanum sem fel-
ur sig einhvers staðar aftast í baðherberg-
isskápnum. Loksins má sýna mosanum og
túnfíflinum í tvo heimana. Loksins er kominn
tími á gott frí, letilíf og vellystingar.
Loksins er hægt að senda út boð á Facebo-
ok: „Veisla í garðinum! Komið með kartöflu-
salat og góða skapið!“ Loksins er hægt að
sýna nágrönnunum hvernig á að slá grasið og
nostra við hvert strá svo að lóðin líti út eins og
skosk púttflöt.
Loksins má fylla potta og beð af blómum
sem mynda eina stóra sprengju af litum og lífi.
Loksins komu þessir þrír dýrmætu mánuðir
þar sem veðrið er nokkurn veginn í lagi, og
hægt að njóta þess að vera úti í garði og lifa
lífinu.
Morgunblaðið/Eggert
Í garðinum gerast galdrarnir
Húsgögn eftir
fræga hönnuði
geta gert mikið
fyrir garðinn.
4
19 | 05 | 2017
GARÐAR OG GRILL
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
Auglýsingar
Katrín Theodórsdóttir
kata@mbl.is
Forsíðumyndina tók Golli.
Prentun
Landsprent ehf.