Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Berghella 1 · 221 Hafnarfjörður · Sími 559 2200 · efnamottakan.is
Ertu að taka til í …
… garðinum
… geymslunni
Komdu spilliefnunum og
raftækjunum á söfnunarstöðina
næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Þ
að er fleira sem gerir garðinn
fallegan en vel slegin gras-
flöt, sterkbyggður pallur og
beð full af litríkum blómum.
Bæta má við alls kyns skrautmunum
til að gera garðinn enn skemmti-
legri, og ekki galið að skoða hvað t.d.
snotur gosbrunnur eða stytta getur
gert fyrir sælureit fjölskyldunnar.
Emil Húni Bjarnason er sölumað-
ur hjá Garðheimum og segir hann að
sala á gosbrunnum virðist aukast
þegar vel árar í efnahagslífi þjóð-
arinnar. „Þegar ekki er úr miklum
peningum að spila lætur fólk gos-
brunnana mæta afgangi, en þegar
hagur heimilanna vænkast vilja
margir láta eftir sér þetta skemmti-
lega skraut. Gosbrunnur og annað
garðaskraut myndi seint flokkast
sem ómissandi vara, en er samt eitt-
hvað sem fólk dreymir um.“
Gosbrunnur þarf samt ekki að
vera dýr og segir Emil að það komi
mörgum á óvart að komast að því
hversu lítið það kostar að láta
drauminn rætast og koma fyrir lítilli
tjörn í garðinum og pumpu til að
sprauta vatni upp í loft. „Fyrir jafn-
vel bara um 20.000 kr, og með smá
mokstri, má gera einfaldan lítinn
gosbrunn.“
Jarðvinnan mikilvæg
Fara má ýmsar leiðir, s.s. hafa frí-
standandi gosbrunn eða dæmigerð-
an gosbrunn í tjörn. Er hægt að
móta litlar sprænur og syllur, eða
láta vatnið seytla uppúr steinum og
yfir grjótplötur. Segir Emil að ef um
tjarnir og læki er að ræða verði að
gera ráðstafanir vegna frosts í jörðu.
„Jarðvegurinn getur færst til í frost-
inu og aflagað tjarnirnar, og verður
því að hafa lag af grús eða sandi til
að hleypa vatni frá og dreifa jarð-
vegshreyfingunni. Ella getur komið
gat á dúkinn sem heldur vatninu í
tjörninni. Vönduð jarðvinna er lykill-
inn að fallegri tjörn og gosbrunni
sem endist lengi.“
Að hafa tjörn í garðinum eða frí-
standandi gosbrunn kallar ekki á
mikið umstang. „Margir halda að
það verði t.d. að koma fyrir vatns-
lögnum og niðurfalli til að tæma
tjarnir reglulega, eða hafa mikið fyr-
ir þrifunum. Vissulega fara sumir
alla leið og koma fyrir yfirfalli og
frárennsli, en yfirleitt er nóg að geta
bara teygt garðslönguna að tjörn-
inni eða gosbrunninum, til að fylla,
og geta svo sett dælu og slöngu ofan
í tjörnina og tengt við næsta nið-
urfall þegar þarf að tæma.“
Grænþörungar geta gert sig
heimakomna í tjörnum og gos-
brunnum og myndað slý í vatninu.
Emil segir grænþörungana geta sest
í dælubúnað gosbrunna og eyðilagt
þá smám saman. „Lausnin er mjög
einföld: að nota fyrirbyggjandi að-
gerðir og bæta þörungadrepandi
efni í vatnið með reglulegu millibili.
Ætti að taka dælurnar upp tvisvar á
ári og spúla vel í gegnum þær, ef ske
kynni að þörungar séu farnir að
safnast þar upp.“
Hvað með ljón í heimreiðina?
Skreyta má garðinn með fleiru en
gosbrunnum og tjörnum og selja
Garðheimar t.d. alls kyns styttur sem
sóma sér vel úti í beði eða á miðri
grasflötinni. Á styttulager Garðheima
má t.d. finna ljón og engla, og líka
nokkra garðálfa. „Síðan má blanda
saman styttu og gosbrunni, t.d. með
pissandi strákum og frussandi pelí-
könum“ segir Emil.
Skrautið í garðinum getur full-
komnað heildarmyndina, skapað fag-
urfræðilegan fókuspunkt og einfald-
lega gert garðinn að notalegri stað.
Rennandi vatn hefur alltaf sinn sjarma
og það var ekki að ástæðulausu að
konungar og keisarar skreyttu hall-
argarða sína með veglegum gos-
brunnum og hrífandi styttum. „Að
hafa t.d. tjörn og nið af rennandi vatni
skapar allt aðra ró í garðinum, og fríst-
andandi gosbrunnur getur laðað að
syngjandi smáfuglana í leit að sopa.
Falleg stytta er líka alltaf augnayndi.“
ai@mbl.is
Skemmtileg stytta eða
fallegur brunnur getur
sett sterkan svip á garð-
inn. Emil hjá Garð-
heimum segir að ekki
þurfi að kosta mikið að
láta drauminn um gos-
brunn rætast, og kalli
ekki endilega á mjög
umfangsmiklar fram-
kvæmdir.
Létt Tjörn eða lítill gosbrunnur
kallar ekki á risastóra fram-
kvæmd. „Yfirleitt er nóg að
geta bara teygt garðslönguna
að tjörninni eða gosbrunn-
inum, til að fylla, og geta svo
sett dælu og slöngu ofan í
tjörnina og tengt við næsta
niðurfall þegar þarf að tæma,“
segir Emil.
Persónuleiki Reffilegir guttar og prúðar stúlkur vakta garðinn.
Stáss Sumir líta á Grænu eggin eins og hálfgerð keramík-listaverk
Gosbrunnar og garðálfar
fullkomna myndina
Jarðvegurinn getur færst
til í frostinu og aflagað
tjarnirnar, og verður því að
hafa lag af grús eða sandi.