Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 MORGUNBLAÐIÐ 21 Molta er náttúrleg afurð mynduð við jarðgerð. Jarðgerð er niðurbrot á lífrænum úrgangi við stýrðar aðstæður. Ýmsir efnaferlar og örverur umbreyta efninu í moldarkenndan jarðvegsbætandi massa með töluvert áburðargildi. Moltu er gott að blanda annarri mold í hlutföllunum 1/3 (1 hluti molta/3 hlutar mold) eða dreifa moltunni yfir beð og grasflatir í þunnu lagi. Sendum moltuna heim í stórsekkjum. Þá er öllum velkomið að koma til okkar á Gámavelli í Berghellu 1 í Hafnarfirði og moka moltu í eigin fólksbílakerru án endurgjalds. Berghellu 1 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2500 • soludeild@gamar.is • www.gamar.is MOLTA er kraftmikill jarðvegsbætir 21 .3 23 3- 5- 17 Grillað og spanað Grillveislurnar eru orðnar ómissandi hluti af Fast & Furio- us-kvikmyndunum. Ef söguhetjurnar eru ekki í hraðskreiðum bílum í eltingaleik við illmenni koma þær saman við stórt veisluborð úti í garði og skella nokkrum borgurum á grillið. Hvað gæti verið am- erískara? Ráðabrugg innan um runnana Corleone-fjölskyldan kann að meta fal- legan garð. Þar heldur hún veglegar veislur, styrkir glæpaveldi sitt og hlúir að ávaxtaplöntunum með ungviðinu. Eitt eftirminnilegasta atriði kvik- myndasögunnar er einmitt þegar Vito Corleone sjálfur hverfur yfir móðuna miklu, í miðjum eltingaleik í garðinum við barnabarnið sitt. Öllu mikilvægara fyrir framvindu sögunnar um Guðföð- urinn var þó samtal Vito og sonar hans Michael, í skugga trjánna með vín í glasi, þar sem þeir ræða lífið, tilveruna og glæpina. Ber að ofan við grillið Í gamanmyndinni Neighbors á ungt par í mesta basli með hávaðasama nemendur sem búa í næsta húsi. Zac Efron fer með hlutverk forsprakka uppátækjasömu nemendanna, og virðist hafa afskaplega gaman af að gera nágrönnum sínum gramt í geði. Þó að lengi megi deila um leikræna hæfileika unga hjartaknúsarans rat- aði það í blöðin hvað hann tók sig vel út við grillið. Taugatrekkjandi völundarhús Yfirleitt er fjarska gaman að heimsækja völund- arhús, og ekki annað hægt en að dást að þolinmæði garðyrkjumannanna sem halda runnunum snyrtum. Dularfulla völund- arhúsið í kvikmynd Stanl- ey Kubricks, The Shining, er hins vegar drungalegur og einmanalegur staður sem fær hárin til að rísa. Þar er auðvelt að villast og ekki víst að þeir sem á ann- að borð rata þangað inn komist aftur út. Fallegir garðar og grillveislur á hvíta tjaldinu Það er ekki skrítið að leikstjórar skuli oft nota garða sem um- gjörð utan um mikilvæg atriði í kvikmyndum sínum. Það er í görðunum sem fólk kemur saman til að slaka á og njóta tilver- unnar, til að laumast og hvísla, játa ást sína, eða leggja á ráðin. Kraftur garðanna í kvikmyndum sést hvað best í grillveislunum. Þar fagna söguhetjurnar sigri, eða njóta hversdagsins rétt áður en einhverjar ægilegar hörmungar dynja á þeim. ai@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.