Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 MORGUNBLAÐIÐ 27
Hvað með að hafa fiska í garðinum?
Skrautfiskar geta lifað góðu lífi í
tjörnum við íslensk heimili, svo fremi
sem rétt er um þá hugsað. Segir Em-
il að ef gera á tjörn fyrir fiska þurfi
að koma fyrir góðum hreinsibúnaði
og einnig gæta að því að fuglar geti
ekki veitt fiskinn. „Fara má ýmsar
leiðir til að verjast fuglunum, s.s. að
setja net eða víra yfir tjörnina.
Tengdafaðir minn á einmitt tjörn
með fiskum og leysti vandann með
því að hafa „varnarholu“ ofan í tjörn-
inni. Er þá tjörnin dýpri á ákveðnum
stað og geta fiskarnir leitað þar
skjóls þegar fuglarnir gera sig lík-
lega til að veiða sér skrautfisk í mat-
inn.“
Morgunblaðið/Frikki
Skrautfiskarnir þurfa
vörn gegn fuglunum
Morgunblaðið/Golli
Ljósmynd / Wikipedia - Florstein (CC)
Konunglegt Frá Peterhof í Rússlandi. Kóngar og keisarar hafa lengi vitað
að garðar eru ekki fullgerðir ef enginn er gosbrunnurinn.
Ekta Ætli þessi stytta gæti blekkt forvitna fuglaskoðara?
Grill er garðaprýði
Þeir sem ekki vilja setja upp
gosbrunn eða fjárfesta í
styttu geta látið grillið vera
augnayndið í garðinum. Hjá
Garðheimum má finna úr-
val fallega hannaðra grilla
frá Weber, og einnig Big
Green Egg kolagrillin sem
slegið hafa í gegn und-
anfarin sumur. „Ekki er hægt
að neita því að margir líta á
grillið sem ákveðið stöðutákn,
og eru stoltir af að hafa fallegt
grill á áberandi stað á garðpall-
inum,“ segir Emil.
Að sögn hans hafa kolagrillin
verið að sækja á. Kolin þykja
gefa gott reykjarbragð, en gas-
ið hefur þann eiginleika að
auðveldara er að kveikja upp í
grillinu og minni fyrirhöfn af
því að nota grillið oft í
viku og jafnvel daglega
ef veður leyfir.