Morgunblaðið - 19.05.2017, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
19.663
TILBOÐ
Moltugerðarílát
Í
slendingar leggja mikið upp úr
því að innrétta heimili sín fal-
lega. Þjóðin kann að meta
vandaða hönnunarvöru og fylg-
ist vel með stefnum og straum-
um í húsgagnahönnun.
Kjartan Páll Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Epal, segir að með
batnandi veðurfari og breyttum
áherslum sé landinn farinn að verja
meiri tíma í garðinum og úti á svöl-
um, og fyrir vikið farinn að leggja
áherslu á að skapa smekklega um-
gjörð utan um fjölskylduna utan-
dyra rétt eins og innandyra. Um leið
eru heimsþekktir húsgagnahönnuðir
farnir að veita garðinum meiri at-
hygli og með nýjum efnum hefur
þeim gefist tækifæri til að hanna
glæsileg borð, stóla og jafnvel heilu
sófasettin sem þola vel að vera undir
berum himni allan ársins hring.
Stofa í garðinum
Að sögn Kjartans er garðpallurinn á
sumum heimilum orðinn eins og
smekklega hönnuð stofa. „Þar eru
ekki bara borð og fjórir stólar til að
borða saman grillmatinn, heldur
legubekkir, sófar, hliðarborð, og sól-
hlífar.“
Epal flytur inn garðhúsgögn frá
danska framleiðandanum Cane-line,
þar á meðal húsgögn eftir íslensk-
danska hönnuðateymið Hee Welling
og Guðmund Lúðvík. „Margir gera
sér ekki grein fyrir að hægt er að fá
íslenska hönnun í garðinn og oft
uppveðrast viðskiptavinir okkar
þegar við segjum þeim að þessi fal-
legu húsgögn séu eftir Íslending.“
Húsgögnin sem þeir Hee og Guð-
mundur hafa hannað eru stílhrein og
búa yfir miklum léttleika. „Eins og
aðrir hönnuðir fallegra garð-
húsgagna leitast þeir við að gera
húsgögn sem sameina fegurð og
notagildi. Líkt og í stofunni vill fólk
að rými fjölskyldunnar í garðinum
sé fallegt en líka þægilegt enda stað-
ur til að verja löngum gæðastundum
saman.“
Bendir Kjartan sérstaklega á litlu
hjólaborðin eftir Welling/Ludvik.
Hann segir að þegar farið er út á
pall vilji flestir sækja eitthvað gott
matarkyns í eldhúsið og hentugt að
hafa færanlegt borð undir t.d.
nokkra osta, kex og janvel flösku af
víni. „Hjólaborðið er hentug lausn,
en er líka svo vel heppnuð hönnun að
það sómir sér vel í stof-
unni árið um kring.“
Hugað að heildar-
myndinni
Flestir vita að til að
innrétta heimili
fallega þarf margt
að passa saman.
Arkitektúr hússins,
stærð herbergj-
anna, staðsetning
glugga og val á gól-
efni og gluggatjöld-
um getur haft mikið
að segja um hvers
konar húsgögnum
er best að raða í
hvert rými. Í garð-
inum gildir það
sama, og þarf að
huga að heild-
armyndinni og sam-
spili garð-
húsgagnanna við
umhverfi sitt.
Segir Kjartan að garð-
ar og svalir geti verið mjög
breytileg. „Sums staðar
er mikið notað af viði,
en á öðrum heimilum
er grjót eða gras í að-
alhlutverki. Hús-
gögnin og hönnun
garðsins verður að
geta myndað eina
heild.“
Skemmtilegast er
ef hægt er að tengja
saman hönnunina
innndyra og utan-
dyra og algengt í dag
að arkitektar hanni
stofur og garða þann-
ig að opna má á milli.
„Á mínu heimili er
t.d. stór og mikil hurð
frá svölunum út í
garðinn og þegar
veðrið er gott er
hægt að opna upp
á gátt og stækka
húsið út á pall-
inn.“ ai@mbl.is
Garðurinn er framlenging á stofunni
Heimsins frægustu
hönnuðir eru farnir að
bjóða upp á garð-
húsgögn sem eru bæði
falleg og þægileg. Auka-
hlutir eins og luktir og
púðar fullkomna huggu-
legheitin.
Rómó Ómótstæðilegar íslensk-
danskar útiluktir í garðinn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stíll Kjartan Eyjólfsson segir arkitekta gjarnan reyna að opna rýmið á milli stofunnar og garðsins, t.d. með stórum hurðum sem opnast upp á gátt.
Gæði Í dag eru garðhúsgögn orðin svo vel hönnuð að þau geta líka átt heima í stofunni, ef því er að skipta.
Veisla Borð á
hjólum kemur í
góðar þarfir
Legubekkir,
sófar og
hirslur
Húsgögnin á heimilinu eru ekki
bara til skrauts heldur þjóna líka
mikilvægum tilgangi: Í sjónvarps-
krókinn þarf þægilegan sófa eða
hægindastóla, nóg pláss þarf að
vera fyrir mat og gesti við borð-
stofuborðið og í stofunni verður
að vera hægt að sitja og spjalla í
rólegheitum.
Sama gildir um garðhúsgögnin,
og eru nokkrar lykilmublur sem
má helst ekki vanta á pallinn.
„Það getur t.d. verið gott að hafa
tveggja eða þriggja sæta sófa,
eða langstóla sem má stilla upp
við útiborðið. Á þeim stað þar
sem sólin nýtur sín best er hægt
að búa til „kósíhorn“ með þægi-
legum sólbekkjum með hlið-
arborðum,“ segir Kjartan. „Hjá
grillinu er líka gott að hafa auka-
borð sem kokkurinn getur notað
til að athafna sig, og nokkra stóla
til viðbótar fyrir þá sem veita
honum félagsskap við matseld-
ina.“
Má heldur ekki gleyma auka-
hlutunum sem setja punktinn yfir
i-ið. Bendir Kjartan t.d. á útilukt-
irnar eftir Welling/Ludvik. Mjúkir
púðar og teppi geta líka gert
garðstofuna hlýlegri og litlar
hirslur nýst bæði sem geymsla
undir sessur, leikföng og garðá-
höld og sem sæti eða borð.