Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 4

Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 Laugavegur 61 ︲ Kringlan ︲ Smáralind ︲ Sími 552 4910 jonogoskar.is Glæsile útskrifta Útskriftarhálsmen 20 Okkar hönnun og sm Gullrós Verð 21.000 kr Silfurstjarna Verð 7.900 kr. Gullstjarna Verð 18.000 kr g rgjöf 17 eru komin. íði. . . Tjara lak úr jarðveginum  Framkvæmdir stöðvaðar í Reykjanesbæ  Óttast að rusl úr jarðveginum kunni að vera mengað Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja stöðvaði í gær framkvæmdir á vegum Íslenskra að- alverktaka, við gatnagerð ofan Iðavalla í Reykjanesbæ, þegar í ljós kom að þar höfðu gamlir ruslahaugar frá bandaríska hernum verið grafnir upp. Tók Heilbrigð- iseftirlitið þessa ákvörðun þegar tjara hóf að vella upp úr jarðveginum, auk þess sem mikið af járnrusli hafði verið grafið upp. Óttaðist eftirlitið að þrávirk efni á borð við PCB kynnu að vera þar í jörð, en það efni getur haft ýmis konar eituráhrif og áhrif á efnaskipti líkamans. Vísindamenn tóku sýni úr jarðveginum til þess að kom- ast að því hvaða efni væru í jörðinni og er það fyrirtækið Verkís sem leiðir rannsókn- ina. Ekki merkt urðunarsvæði Í samtali við Morgunblaðið sagði Guð- laugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri Um- hverfissviðs Reykjanesbæjar, að sýnin hefðu verið send til greiningar en nokkra daga gæti tekið að skera úr um hvaða efni væri um að ræða. Vísindamenn hefðu skoð- að loftmyndir frá fyrri tíð í von um að þær gætu skýrt eitthvað varðandi umfang svæðisins, en vitað væri að braggar á veg- um hersins hefðu verið á þessum slóðum. Gerðar hefðu verið rannsóknir árið 2007 á svæðinu sem bandaríski herinn hélt til og hefði þá ekkert óvanalegt komið í ljós. Þetta svæði sem nú væri verið að rannsaka væri hins vegar ekki merkt urðunarsvæði og því hefði það ekki verið hluti af fyrri rannsóknum. Almenna reglan væri sú að láta gamla urðunarstaði vera, en þar sem ekkert væri vitað um þennan ruslahaug hefði verið ákveðið að hefja strax rann- sókn. Áður en eftirlitið stöðvaði verkið hafði umtalsverðu magni af jarðvegi verið ekið burt af svæðinu og losað á svæði við Ásbrú. Innihélt sá jarðvegur meðal annars járn- rusl og voru það starfsmenn Heilbrigð- iseftirlits Suðurnesja sem urðu þess fyrst áskynja að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera. Framkvæmdir í uppnámi Í samtali við Víkurfréttir sagðist Magnús H. Guðjónsson hjá Heilbrigðiseftirliti Suð- urnesja óttast að tjaran sem vall upp úr jarðveginum væri urðuð tjara sem banda- ríski herinn hefði meðal annars notað við malbikun flugbrauta á Keflavíkurflugvelli. Eins væri möguleiki á því að gamlir raf- geymar kynnu að leynast í jarðveginum, en þá þyrfti að hafa varann á. ÍAV hafði stefnt að því að hefja byggingaframkvæmdir á svæðinu í sumar og hafði öllum lóðum á svæðinu þegar verið úthlutað, en þær áætl- anir eru nú í uppnámi og segir Magnús að erfitt sé að segja til um framhaldið. Ljúka þurfi rannsóknum á svæðinu áður en ákvörðun um framhaldið verði tekin. Ljósmynd/Hilmar Bragi Mengun Tjara lak þar sem grafið var og voru tekin sýnı́ úr jaraðveginum til rannsóknar. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hæstiréttur hefur hafnað kröfu Landsnets um að fá afhenta spildu úr landi Reykjahlíðar í Mývatnssveit til að leggja háspennulínu. Línan á að liggja frá Þeistareykjavirkjun að Kröflu. Landsnet hefur fengið heim- ild til eignarnáms á spildunni, þar sem hluti landeigenda Reykjahlíðar vildi ekki semja um legu línunnar og hefur mótmælt henni á öllum stigum. Hæstiréttur tók undir rökstuðning héraðsdóms, sem einnig hafnaði kröfu Landsnets um að fá yfirráð yfir landinu með beinni aðfararaðgerð. Rökin hníga að því að landeigend- urnir tveir sem um ræðir hafi fært fyrir því rök að heimild til eignar- námsins fengi ekki staðist að lögum og ekki væri hægt að vísa þeim á bug. Reyna mun á þetta álitaefni betur í máli sem landeigendur höfðuðu á hendur Landsneti um ógildingu eign- arnámsheimildarinnar. Héraðsdóm- ur hafnaði kröfunni en þeir áfrýjuðu til Hæstaréttar. Fyrirhugað er að flytja það mál í byrjun næsta mán- aðar, fyrr en áætlað var, og getur Hæstiréttur þess í dómi sínum. Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Landsnets, segir að bú- ast hafi mátt við þessari niðurstöðu Hæstaréttar í máli Landsnets gegn landeigendum þar sem ógildingar- málið hafi verið sett á dagskrá Hæstaréttar í vor. Hún telur að dómurinn hafi ekki áhrif á framkvæmdina, eins og er. Áfram sé unnið utan Reykjahlíðar- lands. Unnið utan Reykjahlíðarlands Um 10 kílómetrar af Kröflulínu 4 og 35 möstur eiga að vera á landi Reykjahlíðar. 69 möstur eru utan lands jarðarinnar. Jarðvinnu á þeim hluta er að mestu lokið, samkvæmt upplýsingum Landsnets. Ellefu möstur voru reist á síðasta ári og bú- ið er að setja saman 33 til viðbótar og hefst reising þeirra í næstu viku. Jarðvinnu er haldið áfram vegna Þeistareykjalínu sem liggur frá Þeistareykjavirkjun að Bakka við Húsavík. Þar verða 88 möstur. Níu voru reist á síðasta ári og níu til við- bótar hafa verið sett saman. Höfnun hefur enn ekki áhrif  Landsnet fær ekki afhent land undir háspennulínu  Krafa um ógildingu eignarnáms fyrir Hæstarétt í júní „Þetta var upplýs- ingafundur,“ seg- ir Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir, for- maður allsherjar- og mennta- málanefndar Al- þingis, en nefndin fundaði um fyrir- hugaða samein- ingu Fjölbrauta- skólans í Ármúla og Tækniskólans í gær. Kristján Þór Júlíusson mennta- málaráðherra sat fundinn auk þeirra Steins Jóhannssonar, skólameistara FÁ, og Jóns B. Stefánssonar, skóla- meistara Tækniskólans. Áslaug segir fundinn hafa verið gagnlegan og tek- ur jákvætt í hugmyndina um samein- ingu skólanna tveggja, þar sem starfsnám megi ekki líða fyrir fækk- un framhaldsskólanema á komandi árum. Jón B. Stefánsson segir fundinn hafa verið góðan og gagnlegan. „Við fórum bara yfir þær upplýsingar sem við höfum verið að vinna úr,“ segir hann, en á fundinum voru niður- stöður faglegrar greiningarvinnu um kosti og galla sameiningar kynntar. Að sögn Áslaugar er það í höndum ráðherra að ákveða næstu skref, hvort af sameiningu verður. Sameining til umræðu á fundinum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir  Farið yfir kosti og galla sameiningar Útför rithöfundarins og blaðamannsins Jóhönnu Kristjónsdóttur var gerð frá Neskirkju í gær, en Jóhanna starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu í 28 ár. Hún sinnti erlendum málefnum og fór víða til að afla efnis í fréttir sínar og greinaskrif. Kistuna báru átta barnabörn Jóhönnu. Frá vinstri eru Máni Hrafnsson, Garpur Elísabetarson, Þórhildur Helga Hrafnsdóttir, Magdalena Sigurðar- dóttir, Vera Sóley Illugadóttir og Örnólfur Hrafn Hrafnsson. Í hvarfi eru Ísleifur Eldur Illugason og Kristjón Kormákur Guðjónsson. Útför Jóhönnu Kristjónsdóttur frá Neskirkju Morgunblaðið/Hanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.