Morgunblaðið - 20.05.2017, Page 6

Morgunblaðið - 20.05.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 Bilbao&Baskaland sp ör eh f. Sumar 19 Í þessari glæsilegu ferð um Baskahéruð Spánar upplifum við í senn dásamlega náttúrufegurð, heillandi menningu og iðandi mannlíf. Frá Madrid höldum við um Baskahéraðið og njótum nærveru Cantabria fjallana. Í hafnarborginni Bilbao skoðum við hið fræga Guggenheimsafn og heimsækjum litríka sjávarbæinn San Sebastian við Biscaya flóann. 9. - 16. september Fararstjóri: Aðalheiður Jónsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 194.600 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir hugmyndir að legu borgar- línu verða kynntar í júní. Unnið sé að greiningu á því hversu margir geti búið á þéttingarreitum með- fram borgarlínunni í Reykjavík. Þetta sé unnið í samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. „Við ætlum síðan að skoða í kjöl- farið hvort tilkoma borgarlínunnar myndi leyfa okkur að þétta enn frekar byggð á svæðum meðfram henni. Byggingarsvæðið Keldna- land er meðal þeirra sem hafa kom- ið inn í umræðuna núna. Það er ríkislóð og hefur komið til skoð- unar að hún fari hraðar í uppbygg- ingu en aðalskipulagið gerir ráð fyrir. Það væri algert glapræði að byggja meira í Keldnalandinu og bæta allri þeirri umferð inn á Miklubraut eins og umferðin á Miklubraut er þegar orðin.“ Gerir kleift að þétta meira „Ef við værum hins vegar búin að gera alla nauðsynlega samninga og tryggja fjármögnun á borgarlín- unni, og hún væri komin, gæti þetta framtíðarbyggingarland nýst mjög vel og við gætum byggt meira þar en núverandi áform gera ráð fyrir. Miklu meira raunar. Þannig er þetta samhengi milli þess að borg- arlína geti leyst umferðarmál og að uppbygging geti orðið meiri á ákveðnum þéttingarreitum.“ Dagur segir aðspurður að þung- inn í uppbyggingunni á næstu 10-15 árum verði meðfram borgarlínu á þéttingarreitum. Um leið og borgin hafi náð samkomulagi við ríkið og aðra um fjármögnun borgarlínu geti borgin „leyft sér að þétta byggð meira meðfram henni“. Dagur segir það koma til greina að fimm þúsund manna byggð verði í Keldnalandinu, sem er svipað og áformað er í Blikastaðalandi í Mos- fellsbæ. „Það má segja um Blika- staðalandið að það þarf borgarlínu ef það á að byggja verulega upp þar. Það er einfaldlega staðreynd sem þarf að horfast í augu við að við bætum ekki mikið meiri umferð einkabíla á Miklubrautina. Hún er í raun við hámarksafköst. Ef það á að byggja umtalsvert á þessum reit- um austarlega í borgarlandinu, og í Mosfellsbæ, þarf borgarlínu.“ Keldnalandið verði byggt upp meðfram borgarlínu  Borgarstjóri útilokar ekki fimm þúsund manna byggð Morgunblaðið/Sigurður Bogi Keldnaholt Hús Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er meðal fjölda bygginga á svæðinu. Rætt er um að flytja stofnunina í Vísindagarða Háskóla Íslands. Dagur segir mislæg gatnamót til- heyra stefnumörkun í fortíðinni. „Við erum búin að skoða hverju það myndi skila fyrir umferðina og það er sáralítið. Það myndi bara flytja vandamálin á næstu gatna- mót. Þess vegna þurfum við að hverfa frá gömlu hugsuninni frá 1960 eins og meira og minna öll borgarsvæði í heiminum hafa gert og innleiða afkastameiri almenn- ingssamgöngur, fjölbreyttari ferðamáta og gefa fólki val um hvernig það vilji komast til og frá vinnu … Við þurfum að setjast yfir það heildstætt hvaða fjárfestingar eru mikilvægastar og líklegastar til að skila bestum árangri fyrir flesta. Og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru sammála um að það sé borgarlína. Þá erum við ekki aðeins að hugsa um þá sem geta hugsað sér að nota al- menningssamgöngur, eða vilja hjóla, og svo framvegis. Við erum líka að hugsa um þá sem munu áfram keyra bíl. Við teljum enda að stóru samgönguæðarnar séu við ystu þolmörk. Að þær séu í raun á leið með að springa og að það verði ekki létt á þeim nema með því að fleiri, ég tala nú ekki um þau 70 þúsund sem munu bætast á svæðið til framtíðar, noti aðrar leiðir til þess að komast á milli staða,“ sagði Dagur. Ekki fleiri mislæg gatnamót BORGARSTJÓRI SEGIR SVEITARFÉLÖG VILJA BORGARLÍNUNA BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir uppbyggingu borgarlínunnar lykilatriði í uppbyggingu Reykja- víkur á næstu áratugum. Því sé spáð að íbúum höfuðborgarsvæðisins muni fjölga um 70 þúsund á næstu 25 árum. „Við vitum líka að ef að við ætlum að vera með óbreytta hugsun í sam- göngumálum mun það leiða til óþol- andi mikilla tafa í umferðinni, sem enginn vill,“ sagði Dagur, sem boðar að Reykjavíkurflugvöllur víki. Borgarstjóri var meðal ræðu- manna í Ráðhúsinu í gærmorgun á fundi um uppbyggingu í borginni. „Eftir ýtarlega greiningu er niðurstaðan sú að afkastameiri al- menningssamgöngur séu algjör nauðsyn og í raun frumforsenda þess að öll þessi uppbygging íbúðarhús- næðis og atvinnuhúsnæðis geti gengið upp án þess að samgöngu- málin verði klúður,“ sagði Dagur í samtali við Morgunblaðið. Fjármagna á borgarlínuna að hluta með innviðagjöldum á nýjar íbúðir meðfram línunni og mun þessi áhersla því hafa áhrif á íbúðaverð. Umtalsverð byggð í Vatnsmýri Fram kom í kynningu Þorsteins R. Hermannssonar, samgöngustjóra borgarinnar, fyrir Viðreisn í vikunni að horft væri til uppbyggingar blandaðrar byggðar í Vatnsmýri. Það tengist þróunarás og brú yfir Fossvog yfir í Kársnes. Þið eruð að horfa til framtíðar í Vatnsmýri. Sjáið þið fyrir ykkur meiri byggð í Vatns- mýri en er núna í pípunum? „Við höfum nú þegar gert samn- inga og samþykkt skipulag fyrir um- talsverða byggð í Vatnsmýri. Við vorum að gera samkomulag í þessari viku við Háskólann í Reykjavík um 390 íbúðir við rætur Öskjuhlíðar. Við erum með í aðalskipulagsauglýsingu heimildir til þess að minnka og fjölga íbúðum á Hlíðarendasvæðinu, sem gætu þá orðið allt að 780. Ef lega borgarlínunnar er skoðuð sam- kvæmt þessum frumhugmyndum gæti hún verið óháð flutningi flug- vallarins fyrstu árin. En við erum líka að fara að skipuleggja íbúðar- byggð á landi sem við keyptum af ríkinu í Skerjafirði. Allt hangir þetta saman. Það þarf auðvitað að leysa samgöngumálin fyrir þessa nýju byggð, meðal annars með almenn- ingssamgöngum, og þess vegna horfum við til þess að ná tengingu við borgarlínuna,“ sagði Dagur, en rætt hefur verið um 800-1.000 íbúðir í Skerjafirðinum. Borgarlínan styðji Kársnesið Dagur var næst spurður hvort borgarlínan yrði tengd við fyrirhug- aða byggð í Skerjafirði. „Við þurfum að skoða hvernig það er best gert. Kópavogur bindur líka vonir við að borgarlínan geti stutt við hugmyndir bæjarins í Kársnesinu. Fólk sem býr í vesturhluta Kópa- vogs hefur haft áhyggjur af því að það verði of mikil og of þétt byggð á Kársnessvæðinu. Þannig að ég held að sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu séu meira og minna öll í sömu stöðu hvað þetta varðar.“ Þegar maður leggur saman tvo og tvo, það sem er að gerast í kringum flugvöllinn og það sem þú hefur sagt um flugvöllinn og Hvassahraun, virðist sem þið horfið lengra fram í tímann og að ætlunin sé að tengja borgarlínuna og almenningssam- göngur við framtíðarbyggð í Vatns- mýri? „Jú, og framtíðarflugvöll, til dæm- is í Hvassahrauni. Ég held að þess vegna sé að teiknast upp mjög spennandi framtíðarsýn fyrir höfuð- borgarsvæðið með miklu grænni áherslum, þéttari byggð, betra sam- göngukerfi og hugsanlega flugvelli sem væri nær fyrirtækjum og íbúum og allt yrði þetta tengt saman með öflugu almenningssamgöngukerfi.“ Fólk hafi raunverulegt val Margir eru hlynntir því að efla al- menningssamgöngur. Þú nefndir í fyrirlestrinum að Miklabraut væri sprungin og að með borgarlínu þyrfti fólk ekki lengur bíl 2. En hvað með andstæð sjónarmið, að það sé hugsanlega forsjárhyggja að fólk skuli ekki keyra heldur taka strætó. Að þið séuð að þvinga fólk í þá átt? „Ég held að því sé öðruvísi farið. Núna hefur fólk ekki fullkomið val. Það getur ekki valið sér búsetu þar sem það er óháð bílnum nema á af- mörkuðu svæði innan borgarinnar. Það er hægt að gera nálægt þessum stóru vinnustöðum í miðborginni og vestur frá. En með borgarlínu erum við í raun að stækka og fjölga þeim svæðum þar sem fólk getur búið án þess að þurfa að reka tvo bíla, eða einn bíl. Þess vegna erum við að auka valið, auka valkostina, með því að ráðast í svona innviðafjárfestingu, eins og fjölmörg borgarsvæði eru einmitt að gera. Það verða enda allir að horfast í augu við að það er þörf á stórátaki í samgöngumálum á höfuð- borgarsvæðinu,“ sagði Dagur. Reykjavíkurflugvöllur muni víkja  Borgarstjóri segir borgarlínuna geta tengt Vatnsmýrina við nýjan flugvöll, til dæmis í Hvassahrauni  Borgarlínan verði lykilþáttur í skipulagi borgarinnar  Þörf sé á stórátaki í samgöngumálum Teikning/Kanon arkitektar Skeifan Hér er hugmynd arkitekta að útliti borgarlínunnar á biðstöð skáhallt á móti Glæsibæ í Reykjavík. Ætlunin er að borgarlínan fari eftir Suðurlandsbraut og austur í úthverfin. Rætt er um að hún fari yfir brú á Sæbraut.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.