Morgunblaðið - 20.05.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
Íslandsstofa boðar til opins fundar um mikilvægi vef- og samfélags-
miðla í markaðsstarfi í matvælageiranum. Kynnt verður greining
á sýnileika íslenskra matvæla á netinu, fjallað um leiðir til að auka
vitund og áhuga á íslenskum matvælum og matarmenningu á
erlendum vettvangi, skoðuð dæmi um góðan árangur o.fl.
–ímynd íslenskramatvæla á netinu
Maturogmiðlar
Nánari upplýsingar og skráning á vef Íslandsstofu,
www.islandsstofa.is
Heiðrún Lind Marteinsdóttir,framkvæmdastjóri Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi, vakti í gær
athygli á slæmum misskilningi sem
iðulega kemur upp í umræðunni.
Nýlegt dæmi um misskilninginn er
ummæli sjávarútvegsráðherra um
„byggðafestu“
vegna áforma HB
Granda um breyt-
ingar starfsemi
fyrirtækisins á
Akranesi.
Á ársfundi SFSbenti Heiðrún Lind á það að
fyrsta grein fiskveiðistjórnunarlag-
anna væri stundum rangtúlkuð.
Textinn sem hún vísaði til í fyrstu
grein laganna er þessi: „Markmið
laga þessara er að stuðla að verndun
og hagkvæmri nýtingu [nytjastofna
á Íslandsmiðum] og tryggja með því
trausta atvinnu og byggð í landinu.“
Af einhverjum ástæðum hafasumir kosið að mistúlka þessi
orð á þann veg að á sjávarútvegs-
fyrirtækjum hvíli sú skylda að færa
ekkert til í starfsemi sinni, en það er
fjarri lagi.
Eins og oft skiptir orðalagið máliog í greininni segir að með
verndun og hagkvæmri nýtingu sé
stefnt að því að tryggja „trausta at-
vinnu og byggð í landinu“.
Fiskveiðistjórnunarkerfið ís-lenska er til þess fallið að
stuðla að traustri atvinnu og byggð í
landinu, eins og sjá má af mikilli
uppbyggingu í sjávarútvegi víða um
land og af byggðum þar sem öflugar
útgerðir eru kjölfestan.
En auðvitað segja lögin ekki aðaldrei megi hreyfa við neinu.
Með því væri farið gegn því sem
kveðið er á um í fyrstu grein lag-
anna um hagkvæma nýtingu fiski-
stofnanna.
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir
„Byggðafestu“-
misskilningurinn
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.5., kl. 18.00
Reykjavík 11 heiðskírt
Bolungarvík 8 heiðskírt
Akureyri 12 léttskýjað
Nuuk 2 rigning
Þórshöfn 9 léttskýjað
Ósló 16 skýjað
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 25 heiðskírt
Helsinki 24 heiðskírt
Lúxemborg 11 skúrir
Brussel 13 skúrir
Dublin 14 skúrir
Glasgow 13 alskýjað
London 13 skúrir
París 13 rigning
Amsterdam 13 rigning
Hamborg 19 skúrir
Berlín 29 heiðskírt
Vín 26 heiðskírt
Moskva 19 heiðskírt
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 23 heiðskírt
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 24 heiðskírt
Aþena 21 heiðskírt
Winnipeg 12 léttskýjað
Montreal 12 skýjað
New York 29 léttskýjað
Chicago 6 rigning
Orlando 29 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:56 22:54
ÍSAFJÖRÐUR 3:31 23:29
SIGLUFJÖRÐUR 3:13 23:13
DJÚPIVOGUR 3:18 22:30
„Fyrirtækin bera að hluta til sjálf
ábyrgð á því hvernig komið er fyrir
sumu iðnnámi,“ segir Níels Sigurður
Olgeirsson, formaður Matvís. „Fyrir-
tækin þurfa að sýna meiri metnað og
fagmennsku,“ heldur hann áfram, en
hann telur að skemmt hafi verið fyrir
iðngreinum eins og t.d. kjötiðnaði og
framreiðslu þegar veitinga- og mat-
vælafyrirtæki fóru að slaka á kröfum
til að spara launakostnað. Eftir að
hárgreiðslustofur fóru að leigja stóla í
verktöku og byggingarfyrirtækin að
taka undirverktöku hafi færri bol-
magn til að taka nema.
Stytting náms útilokuð
Níels hafnar því alfarið að stytta
megi námið, en í matvælaiðnaði t.d.
hafi ríkt mikill metnaður og séu t.d.
íslenskir matreiðslumenn á heims-
mælikvarða. Hann mælir með því
fögin verði betur markaðssett sem
álitlegur kostur til menntunar. Mat-
reiðslumenn séu t.d. duglegir að
halda keppnir og koma sér á fram-
færi, enda sé ekki skortur á nemum.
Undir það tekur Jóhannes Felixson,
betur þekktur sem Jói Fel, nýkjörinn
formaður Landssambands bak-
arameistara, og bætir við að bak-
aranámið krefjist að lágmarki alls
þess tíma sem í það fer og ekkert
rými sé til styttingar án þess að það
bitni á gæðum.
Matvælagreinar standa betur
Níels segir: „Matvælagreinarnar
standa vel að vígi vegna þess að þau
hafa ríghaldið í gamla meistarakerfið,
það voru mistök að færa sumar iðn-
greinar úr atvinnulífinu og yfir í
skólana.“ Danir og Svíar séu að
breyta þessu til baka. Níels telur að
SI eigi að hjálpa meistarafélögunum
svo að hægt verði að taka fleiri nema.
Vinnustaðanámssjóður þurfi meira
fjármagn, hann hafi þegar sýnt ágæti
sitt til að aðstoða meistara við að taka
nema en stöðugt hark sé að fá stuðn-
ing frá hinu opinbera þrátt fyrir fög-
ur fyrirheit á hátíðarstundum um
verðmæti faggreina iðnaðarins.
ernayr@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Enginn afsláttur Jóhannes Felixson, formaður Landssambands bakara-
meistara, telur að stytting náms komi niður á gæðum í bakstrinum.
Matvælaiðnaður á
móti styttingu náms
„Sýnum metnað og fagmennsku“
Verslun Nettó var opnuð formlega
á Ísafirði í gær. Síðustu vikur hafa
staðið yfir töluverðar breytingar á
verslun Samkaupa í bænum sem nú
verður rekin undir nafni Nettó, seg-
ir á vef bæjarblaðsins Bæjarins
besta.
Með opnun Nettó á Ísafirði segja
forsvarsmenn Samkaupa að verið
sé að koma til móts við bæjarbúa
um aukna þjónustu, meira vöruúr-
val og vörur á góðu verði. Þá er
einnig horft til aukins fjölda ferða-
manna sem sækja bæinn heim á
hverju ári.
Samkaup reka 47 verslanir um
allt land og eru 75 prósent þeirra
úti á landi. Verslanirnar eru af öll-
um stærðum enda lagaðar að stað-
háttum á hverjum stað. Hin nýja
verslun Nettó á Ísafirði verður með
meira vöruúrval og á pari við þær
stærstu af verslunum Nettó.
Samkaup eru í samstarfi við sam-
tök Coop-verslana sem tryggir þeim
aðgang að vörum á hagstæðu verði
og er lögð áhersla á góða þjónustu
og lágt verð til viðskiptavina enda
eru viðskiptavinirnir í gegnum
kaupfélögin í raun eigendur.
Nettó opnar stóra verslun á Ísafirði þar
sem bjóða á upp á aukið vöruúrval