Morgunblaðið - 20.05.2017, Síða 10

Morgunblaðið - 20.05.2017, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Læknar á Íslandi eru með 30% hærri regluleg laun, sem eru án yfir- vinnugreiðslna, að meðaltali en koll- egar þeirra á Norðurlöndum. Þá eru þeir með 70% hærri regluleg heildarlaun, að yfirvinnugreiðslum meðtöldum, borið saman við reglu- leg laun kollega þeirra, en yfirvinnu- greiðslur eru mun minni hluti tekna lækna annars staðar á Norður- löndum en á Íslandi. Þetta kemur fram í greiningu Samtaka atvinnulífsins (SA) sem unnin var að beiðni Morgunblaðsins. Niðurstöðurnar eru sýndar hér til hliðar. Eins og sjá má eru laun ís- lenskra hjúkrunarfræðinga líka bor- in saman við laun hjúkrunar- fræðinga á Norðurlöndum. Að sögn Hannesar G. Sigurðs- sonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, eru niðurstöðurnar byggðar á upplýsingum frá hagstofum Norður- landaríkja um laun lækna og hjúkrunarfræðinga árið 2016. Miðað sé við gengi krónunnar 18. maí 2017. Hannes segir ekki liggja fyrir upplýsingar um launagreiðslur vegna yfirvinnu lækna í öllum Norð- urlandaríkjunum en þær séu þó birt- ar í Noregi og nemi yfirvinnu- greiðslur einungis 3% af heildar- launum þeirra. Yfirvinnuálag, vaktaálag, bakvaktagreiðslur og fleiri launaliðir séu hins vegar með- taldir í reglulegum launum í Dan- mörku og Svíþjóð, auk Noregs. Með 25% hærri regluleg laun Samkvæmt greiningu Samtaka atvinnulífsins eru íslenskir hjúkrunarfræðingar með 25% hærri regluleg laun, sem eru án yfirvinnu- greiðslna, en kollegar þeirra að meðaltali á Norðurlöndum. Þá eru þeir með 50% hærri regluleg heildarlaun (yfirvinnugreiðslur með- taldar), samanborið við regluleg laun kollega þeirra að meðaltali ann- ars staðar á Norðurlöndunum. Að sögn Hannesar liggja ekki fyrir upplýsingar um launagreiðslur vegna yfirvinnu hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndunum, nema í Noregi þar sem yfirvinnugreiðslur til hjúkr- unarfræðinga nemi innan við 3% af launatekjum þeirra. Hannes útskýrir svo hvað liggi að baki hugtakinu regluleg laun. „Á Íslandi notar Hagstofan hug- takið regluleg laun. Launavísitalan er unnin út frá þessu hugtaki. Regluleg laun eru öll laun sem greidd eru fyrir vinnu, að frádregn- um greiðslum fyrir yfirvinnu. Þann- ig að í reglulegum launum eru alls konar bónusar og vaktaálag og aðrar greiðslur sem fylgja dagvinnu.“ Bæta við aukagreiðslum „Hugtakið sem notað er fyrir regluleg laun á hinum löndunum miðast við venjulega vinnuviku, 37- 40 stundir. Hins vegar er bætt við öllum aukagreiðslum sem fylgja þeirri vinnu, sem og álagi, svo sem vaktaálagi, yfirvinnuálagi og öðru álagi vegna afbrigðilegs vinnutíma.“ Hannes segir það koma fram í gögnum á vefsíðum hagstofa hinna Norðurlandaríkjanna að hugtakið fyrir greiðslur vegna afbrigðilegs vinnutíma sé genetillæg á dönsku, eða nuisance pay á ensku, sem sé meðal annars yfirvinnuálag, vakta- álag og alls konar álag. Á sænsku séu slíkar greiðslur skammstafaðar með OB-ersättning, þar sem OB sé skammstöfun á obehaglig og hug- takið merki því óþægindagreiðsla. Með því sé átt við álag á borð við vaktaálag og yfirvinnuálag. Danir og Svíar séu því nánast með sama hug- tak fyrir regluleg laun og á Íslandi nema hvað þeir virðist einnig leggja yfirvinnuálagið við, þ.e.a.s. ekki greiðslu fyrir yfirvinnustundirnar heldur sé yfirvinnuálaginu dreift á allar unnar vinnustundir. Nánast sama skilgreining hér „Ef verð á dagvinnustundum er 100 og verð á yfirvinnustundum 180, eins og algengt er hér á landi, setja Danir og Svíar álagshlutann, þ.e. 80, inn í mánaðarlaunin sem þeir birta, en ekki 180. Þannig að við erum nán- ast með sömu skilgreiningu á Íslandi og á hinum löndunum hvað varðar regluleg laun.“ Hannes segir að þegar yfirvinna sé tekin með í reikninginn komi í ljós að yfirvinnugreiðslur séu miklar á Íslandi samanborið við hin löndin. Því verði að taka tillit til þess. Tengist kjarasamningum Það stafi að einhverju leyti af kerfislægum ástæðum, vegna ákvæða kjarasamninga sem stuðli að miklum yfirvinnugreiðslum. „Læknar á Íslandi vinna þannig ekki vaktavinnu í þeim skilningi að þeir fái vaktaálag. Þeir fá greitt yfir- vinnukaup á vöktum þegar þeir vinna utan dagvinnutímabils. Hjá öðrum starfsgreinum er hins vegar greitt vaktaálag þar til fullri vinnu- skyldu er skilað. Það eru rök fyrir því að vera með samanburð á heildarlaunum á Ís- landi við regluleg laun í öðrum lönd- um, enda stuðla ákvæði íslenskra kjarasamninga að miklum yfirvinnu- greiðslum,“ segir Hannes. Hæstu launin greidd á Íslandi  Greining SA bendir til að læknar á Íslandi séu með 70% hærri heildarlaun en kollegar þeirra ann- ars staðar á Norðurlöndum  Þá hafi hjúkrunarfræðingar á Íslandi 50% hærri regluleg heildarlaun Regluleg mánaðarlaun lækna - að meðaltali árin 2015 og 2016 Þús. ísl. kr. miðað við gengi 18. maí 2017 Danmörk Noregur Svíþjóð Ísland* Ísland** * Ísland: Regluleg laun (með vaktaálagi og öðrum greiðslum, en án yfirvinnugreiðslna) ** Ísland: Regluleg heildarlaun (með yfirvinnugreiðslum) Á hinum löndunum er miðað við venjulega vinnuviku, 37-40 stundir, en álagi, s.s. vegna vakta, yfirvinnu og óþæginda er bætt við þær stundir. Heimildir: Hagstofur Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar og fjármála- ráðuneytið. OECD varðandi launa- breytingar 2016 hjá Danmörku. 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 914894 967974 727677 1.1321.160 1.373 1.4732015 2016 Regluleg mánaðarlaun lækna og hjúkrunarfræðinga - að meðaltali árið 2016 Þús. ísl. kr. miðað við gengi 18. maí 2017 Danmörk Noregur Svíþjóð Ísland* Ísland** * Ísland: Regluleg laun (með vaktaálagi og öðrum greiðslum, en án yfirvinnugreiðslna) ** Ísland: Regluleg heildarlaun (með yfirvinnugreiðslum) Á hinum löndunum er miðað við venjulega vinnuviku, 37-40 stundir, en álagi, s.s. vegna vakta, yfirvinnu og óþæginda er bætt við þær stundir. Heimildir: Hagstofur Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar og fjármálaráðuneytið. OECD varðandi launabreytingar 2015. 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 Læknar Hjúkrunarfræðingar 914 528 967 550 727 394 470 1.132 1.473 744 Regluleg mánaðarlaun hjúkrunarfræðinga - að meðaltali árin 2015 og 2016 Þús. ísl. kr. miðað við gengi 18. maí 2017 Danmörk Noregur Svíþjóð Ísland* Ísland** * Ísland: Regluleg laun (með vaktaálagi og öðrum greiðslum, en án yfirvinnugreiðslna) ** Ísland: Regluleg heildarlaun (með yfirvinnugreiðslum) Á hinum löndunum er miðað við venjulega vinnuviku, 37-40 stundir, en álagi, s.s. vegna vakta, yfirvinnu og óþæginda er bætt við þær stundir. Heimildir: Hagstofur Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar og fjármála- ráðuneytið. OECD varðandi launa- breytingar 2016 hjá Danmörku. 800 700 600 500 400 300 200 100 0 528517 550538 394361 610 560 680 744 2015 2016 Skurðlæknum sleppt » Að sögn Hannesar er hér litið til launa félagsmanna í Læknafélagi Íslands. » Félagar í Skurðlæknafélagi Íslands séu ekki taldir með en þeir hafi hærri laun. » Miðgengi norskrar krónu var 23,51 króna hinn 30. janúar 2013 en 11,96 kr. í gær. LANGVIRK SÓLARVÖRN ÞOLIR SJÓ, SUNDOG LEIK www.evy.is Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð. Engin paraben, engar nanóeindir, ilm- eða litarefni. NÝTT NAFN UVA Vöruhús veitingamannsins allt á einum stað Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is Opið virka daga kl. 8.30-16.30

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.