Morgunblaðið - 20.05.2017, Page 20

Morgunblaðið - 20.05.2017, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI HJÓLAFESTINGAR Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík - Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is 1-3 HJÓL Á FESTINGU Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Ódýrustu eplin er að finna í versl- un Krónunnar á Bíldshöfða en þau dýrustu í búð Víðis í Borgartúni samkvæmt verðkönnun ASÍ á mat- vöru sem gerð var í átta versl- unum miðvikudaginn 17. maí. Verðmunur á rauðum eplum reyndist því vera 139% milli ódýr- ustu og dýrustu verslunarinnar. Kannað var verð á 71 tegund matvöru í þessari könnun. Iceland í Vesturbergi var oftast með hæsta verðið, eða í 41 skipti, en Bónus í Borgarnesi var oftast með lægsta verðið, eða í 35 tilfellum af 71. Þá vekur athygli að í helmingi tilfella munaði aðeins 1 kr. á verði sömu vöru í Bónus og Krónunni. Verðmunurinn var mestur í flokki ávaxta og grænmetis. Einnig var mikill verðmunur á Kellogg’s Corn Flakes-morg- unkorni eða 132%. Það var dýrast hjá Iceland í Vesturbergi 1.065 kr./kg en ódýrast í Nettó í Borg- arnesi 459 kr./kg. Minnsti verð- munurinn í könnuninni var 8% á Merrild 103 kaffipakka, sem var dýrastur á 699 kr. hjá Iceland en ódýrastur 649 kr. í Bónus. Þá var 9% verðmunur á hæsta og lægsta verði á KEA-skyri. Mikill verð- munur á ávöxtum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Matstofa Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Ís- lands í Hveragerði var opnuð að nýju síðastliðinn fimmtudag eftir miklar endurbætur. Staðurinn heitir nú Matstofa Jónasar og er nefndur eftir Jónasi Kristjáns- syni lækni, sem var helsti hvatamaðurinn að því að stofn- unin var sett á laggirnar árið 1955. Það var Bjarni Bene- diktsson forsætisráðherra sem opnaði Matstofu Jónasar með táknrænum hætti með því að brjóta blað; það er grænblöðung af bananatré úr gróðurhúsi garðyrkjuskól- ans að Reykjum í Ölfusi. Rúmlega tuttugu ár eru síðan matstofan var opnuð og því þótti kominn tími á endurbætur. Í því skyni voru hús- gögn og innréttingar endurnýjuð, húsnæði málað í björt- um litum og allt fært í nýmóðins stíl. Er þetta meðal ann- ars gert til þess að bæta upplifun dvalargesta. Þeir eru á hverjum tíma um 130 og koma um 1.600 á ári hverju. Í máli Haraldar Erlendssonar yfirlæknis kom fram að starfsemi Heilsustofnunar væri mikilvæg, enda þörf á nýrri þjónustu þegar sjúkdómar af völdum streitu og álags færðust í vöxt. Er reynt að mæta þeim hópi og ný- lega fékk Heilsustofnun nýsköpunarverðlaun Heilsulind- arsamtaka Evrópu (ESPA) fyrir þróun á streitumeðferð. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra greindi svo frá því að hann teldi starfsemina í Hveragerði mikilvægan hlekk í íslensku heilbrigðiskerfi og félli vel að almennum markmiðum í forvarnarstarfi. sbs@mbl.is Matstofa Jónasar opnuð  Endurbætur á Heilsustofnun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Opnun Haraldur Erlendsson og Bjarni Benediktsson. ÚR BÆJARLÍFINU Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum „Seafood Expo Global er stærsta sjávarútvegssýning heims sem haldin er árlega í Brussel og á næsta ári verður hún haldin í 25. skiptið,“ segir Björn Matthíasson, rekstrarstjóri About fish, sem er dótturfyrirtæki Vinnslustöðv- arinnar, um alþjóðlegu sjáv- arútvegssýninguna sem lauk fyrir skömmu. Sýninguna sóttu í kringum 26 þúsund gestir frá um 140 löndum. Sýnendur eru um 1.800 frá 79 lönd- um. „Vinnslustöðin og About fish voru með bás á sýningunni þar sem við kynntum okkar starfsemi og þær afurðir sem við höfum upp á að bjóða. Þetta er vettvangur þar sem við ræktum sambönd okkar við nú- verandi viðskiptavini, ekki síður en að afla nýrra. About fish, sem er sölufyrirtæki VSV, rekur sex sölu- skrifstofur víða um heim, á Íslandi, Þýskalandi, Portúgal, Frakklandi, Rússlandi og Hollandi og er þetta gott tækifæri til að koma saman og bera saman bækur sínar,“ segir Björn.    Vestmannaeyingar skora hátt í könnuninni Stofnun ársins 2017 sem SFR stendur fyrir, eiga stofnun sem er hástökkvari ársins og aðra sem lendir í öðru sæti í sín- um flokki. Niðurstöður úr könn- uninni Stofnun ársins 2017 voru kynntar í síðustu viku á Hilton Reykjavík Nordica að viðstöddu fjöl- menni. Stofnanir ársins eru þrjár, hver í sínum stærðarflokki, auk þess fengu Fyrirmyndarstofnanir við- urkenningu og líka Hástökkvari árs- ins. Í flokknum Stórar stofnanir, 50 starfsmenn eða fleiri, var Reykja- lundur í fyrsta sæti, Ríkisskattstjóri í öðru og Fjölbrautaskóli Suðurnesja í því þriðja. Yfir meðalstórar stofnanir, með 20 til 49 starfsmenn, var Mennta- skólinn á Tröllaskaga í fyrsta sæti, Framhaldsskólinn í Vestmanna- eyjum í öðru og Einkaleyfastofan í þriðja sæti. Hástökkvari ársins er svo Lögreglustjórinn í Vest- mannaeyjum sem fór upp um 72 sæti. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Helgu Kristínu Kolbeins, skólameistara Framhaldsskólans, og Páleyju Borgþórsdóttur, lög- reglustjóra í Vestmannaeyjum, og þeirra fólk. Hástökkvari ársins er í Eyjum Morgunblaðið/Óskar Pétur Tæknivæðing Vinnslustöðin tók í notkun nýtt uppsjávarfrystihús á síðasta ári þar sem tæknin leysir mannshöndina af hólmi. Það reyndist vel í vetur. Stefnt er að því að áfengi verði aðeins selt í sérverslunum og að rekstri ÁTVR verði haldið áfram. Að áfengisauglýsingum, þ.m.t. léttbjór- sauglýsingum, verði settar miklar skorður að franskri fyrirmynd og að óheimilt verði að selja áfengi undir kostnaðarverði. Þetta er meðal breytinga sem sam- þykktar voru af meirihluta allsherj- ar- og menntamálanefndar Alþingis á áfengisfrumvarpinu. Eins er gert ráð fyrir því að aldurstakmark sölumanna áfengis verði hækkað upp í 20 ár og að af- greiðslutími verði styttur frá fyrri frumvarpsdrögum þannig að áfengissala verði heimil á tímabilinu 11 til 22. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður allsherjar- og menntamála- nefndar, segir að breytingarnar miði að því að einkaaðilum verði gert heimilt að selja vín í sérvöruverslun- um en að ÁTVR haldi stöðu sinni. „Nú er þingsins að setja málið á dag- skrá,“ sagði Áslaug í samtali við mbl.is eftir fundinn í gær. Gert í víðtækri sátt Teitur Björn Einarsson, fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, kvaðst í samtali við mbl.is ánægður með þær breytingar sem gerðar hefðu verið á frumvarpinu. Þar væri lögð áhersla á að koma til móts við ábendingar og athugasemdir sem komið hefðu fram. Hann segir eitt meginmarkmið frumvarpsins vera að afnema úrelta einokun ríkisins á smásölu áfengis. „Mér virðist nefndin hafa unnið vel úr málinu, fengið fjölmargar um- sagnir og gesti og viðhaft almennt vönduð og málefnaleg vinnubrögð,“ segir Teitur Björn. „Það var viðbúið að fram kæmu tillögur um að stíga varlega til jarðar og það er sjálfsagt þegar um er að ræða mál sem fólk hefur sterkar skoðanir á og felur í sér ákveðna kerfisbreytingu að reynt sé að gera það í sem víðtækastri sátt.“ Áfengi verði selt í sérvöruverslunum  Miklar breytingar á áfengisfrumvarpinu frá fyrri drögum Morgunblaðið/Heiddi Áfengissala Gert er ráð fyrir að rekstri ÁTVR verði haldið áfram, áfengis- auglýsingum verði settar miklar skorður og sölualdur hækkaður í 20 ár. Björgunar- sveitum á höfuð- borgarsvæðinu barst beiðni um útkall um eitt- leytið í gærdag vegna konu sem var í sjálfheldu á Esjunni. Konunni var bjargað, en hún var á hefðbundinni gönguleið en var komin efst í Þverfellshornið í klettabelti og komst hvorki lönd né strönd, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Slysavarna- félaginu Landsbjörg. Björg- unarsveitarmaður var á göngu- leiðinni fyrir tilviljun og fór hann strax til aðstoðar ásamt félaga sínum. Konu í sjálfheldu á Esjunni var bjargað Mistök við viðgerð á farþegaferj- unni Baldri í gærmorgun ollu því að ferjan varð vélarvana á milli lands og Vestmannaeyja á öðrum tím- anum í gær. Baldur leysir Herjólf af á meðan síðarnefnda ferjan er í reglubundinni slipptöku. Baldur varð vélarvana norðan við Elliðaey þegar hann var á leið til Landeyjahafnar og var dráttar- báturinn Lóðsinn frá Vestmanna- eyjum kallaður til aðstoðar. Vél of- hitnaði vegna óhreininda í kælikerfi samkvæmt upplýsingum frá Eimskip. Baldur vélarvana milli lands og Eyja

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.