Morgunblaðið - 20.05.2017, Síða 22

Morgunblaðið - 20.05.2017, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 www.valka.is Við óskum Ramma hf. til haming ju með Sólberg ÓF 1, fyrsta íslenska skipið útbúið vatnsskurðarvél til að framleiða beinlausar afurðir. Starfsfólk Völku TIL HAMINGJU MEÐ SÓLBERGÓF 1 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er töluvert stór atburður. Mikið af aur hefur farið út í ána og afleiðingarnar sjást. Leirlag er á botninum og veiðistaðir fullir,“ segir Sigurður Már Einarsson, fiskifræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, um umhverfisslysið í Andakílsá í Borgarfirði. Sigurður skoðaði aðstæður eftir að vart var við mikinn aurburð í ánni. Hann segir að Orka náttúrunnar, sem rekur Andakílsárvirkjun, hafi óskað eftir því við Hafrannsókna- stofnun að ástæður óhappsins og af- leiðingar fyrir ána yrðu rannsakaðar. Þá verður gerð áætlun um hugs- anlegar aðgerðir til að reyna að koma ánni í samt lag og um vöktun í framhaldinu. Hann á von á því að sérfræðingar af mismunandi sviðum kanni ána eftir helgi og taki sýni til frekari rannsóknar. Mikill leir fór niður í ána þegar Orka náttúrunnar tæmdi inntakslón Andakílsárvirkjunar. Áður hefur vatni verið tappað af lóninu en langt er síðan lónið var tæmt, ef það hefur þá nokkru sinni verið gert. Afleiðing- arnar urðu þær að setið úr lóninu fór niður í ána, gruggaði hana og settist í farveginn. Afleiðingar í mörg ár „Þetta getur haft margháttaðar afleiðingar en við eigum eftir að meta hversu alvarlegar þær eru. Leirinn kæfir þörunga og smádýr á botni. Svo er hugsanlegt að hluti laxaseið- anna hafi drepist þegar aur fór í tálknin og annað,“ segir Sigurður Már. Ef einhverjir árgangar laxaseiða hafa farið forgörðum geta afleiðing- arnar komið fram á næstu árum. Ef ekki takist að gera við veiðistaðina getur það haft veruleg áhrif á lax- veiðar strax í sumar. „Náttúran er seig og stundum má bjóða henni ýmislegt. En þetta lítur ekki vel út núna,“ segir Sigurður Már. Stangaveiðifélag Reykjavíkur er með Andakílsá á leigu. Hún er mjög vinsæl hjá félagsmönnum, það vin- sæl að hún er uppbókuð í sumar. Ari Hermóður Jafetsson, framkvæmda- stjóri félagsins, segir að það bíði eftir frekari upplýsingum frá þeim sér- fróðu aðilum sem fengnir hafi verið til að rannsaka ána. Flóð duga ekki Andakílsá rennur úr Skorradals- vatni og er tæknilega mögulegt að auka rennsli í henni til að reyna að hreinsa ána. Sigurður Már vill bíða með yfirlýsingar um hvað best sé að gera þar til málin hafi verið skoðuð betur. Segir þó að flóð séu ekki af hinu góða fyrir lífríki árinnar og dugi líklega ekki til. Undirbúa tillögur til úrbóta  Sérfræðingar Hafró rannsaka afleiðingar umhverfisslyss í Andakílsá  „Lítur ekki vel út“ segir fiskifræðingur Ljósmynd/Dagný Sigurðardóttir Breyting Malareyri við Andakílsá er nú þakin leir úr inntakslóninu. Umsóknir um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun fyrstu fjóra mán- uði ársins voru um 60% fleiri en á sama tíma í fyrra. Haldi þessi fjölg- un áfram gæti farið svo að umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi verði jafnvel á bilinu 1.700 til 2.000 tals- ins,að því er fram kemur á vef stofn- unarinnar. Þórhildur Ósk Hagalín, upplýs- ingafulltrúi Útlendingastofnunar, segir spurð hvort stofnunin hafi þurft að bæta við sig húsnæði að svo sé ekki. „Þó að það hafi fjölgað frá sömu mánuðum í fyrra hefur um- sækjendum fækkað frá síðustu mán- uðum ársins 2016. Þar af leiðandi höfum við ekki þurft að bæta við okkur húsnæði,“ segir Þórhildur. Fram kemur á tölfræðisíðu vefs- ins að umsækjendur í apríl hafi verið af 16 þjóðernum, flestir frá Albaníu og Pakistan. Töluverður meirihluti þeirra sem sóttu um vernd var karl- kyns, eða 87% allra umsækjenda. Þórhildur segist ekki geta getið sér til um ástæður þessa mikla kynja- munar en segir að ýmsar ástæður geti legið þar að baki. Í aprílmánuði fékkst niðurstaða í 61 mál, níu umsóknir voru teknar til efnislegrar meðferðar, 26 mál voru afgreidd með ákvörðun á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, tveimur umsóknum var synjað sökum þess að umsækjendur höfðu þegar fengið vernd í öðru ríki og 24 umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka eða hurfu samkvæmt síðu stofnunar- innar. Útlendingastofnun flutti í apr- íl 21 einstakling úr landi, en um þess- ar mundir njóta 565 manns þjónustu í verndarkerfinu á Íslandi. aronthordur@mbl.is Ásókn í vernd hér á landi  Fleiri umsóknir en á sama tíma í fyrra Morgunblaðið/Styrmir Kári Hælisleitendur Töluvert fleiri hafa sótt um vernd í ár en á sama tíma í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.