Morgunblaðið - 20.05.2017, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.05.2017, Blaðsíða 26
20. maí 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 101.17 101.65 101.41 Sterlingspund 131.96 132.6 132.28 Kanadadalur 74.1 74.54 74.32 Dönsk króna 15.129 15.217 15.173 Norsk króna 11.949 12.019 11.984 Sænsk króna 11.529 11.597 11.563 Svissn. franki 103.47 104.05 103.76 Japanskt jen 0.9163 0.9217 0.919 SDR 139.59 140.43 140.01 Evra 112.59 113.21 112.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 140.903 Hrávöruverð Gull 1251.85 ($/únsa) Ál 1904.0 ($/tonn) LME Hráolía 52.19 ($/fatið) Brent ● Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,95% í 4,2 milljarða króna viðskiptum í gær. Mest lækkuðu hlutabréf í Icelandair Group um 4,94% en gengi bréfanna í lok viðskiptadags var 14,25 krónur á hlut. Viðskipti með bréf Icelandair Group námu samtals 334 milljónum króna í gær. Mest viðskipti voru með bréf Reita, eða fyrir 744 milljónir króna, og hækk- uðu bréf félagsins um 1,40%. Hlutabréf í Nýherja hækkuðu mest í gær, eða um 4,44% í 197 milljóna króna viðskiptum. Úrvalsvísitalan hefur nú hækkað um 9,39% frá áramótum og Heildar- vísitala hlutabréfa í Kauphöllinni hefur hækkað um 11,88%. Hlutabréf í Icelandair lækkuðu um tæp 5% 26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnlíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Sala á rafbílum fyrstu fjóra mánuði ársins var um helmingur af allri raf- bílasölu síðasta árs, samkvæmt sam- antekt bílafjármögnunarfyrirtækis- ins Ergo. 111 rafbílar seldust á tímabilinu en til samanburðar seldust 227 slíkir bílar allt árið í fyrra. Það er því útlit fyrir mun meiri sölu rafbíla á þessu ári en á síðasta ári ef fram fer sem horfir. Tengitvinnbílar, bílar sem ganga fyrir bæði rafmagni og hefðbundnum orkugjöfum eins og bensíni og dísel, seldust einnig vel á tímabilinu en 246 bílar af þeirri tegund seldust, borið saman við 601 bíl allt síðasta ár þegar mikil sprenging varð í sölu á tengil- tvinnbílum milli ára. Hlutdeild bíla með vistvænan orku- gjafa var þannig komið í 5,34% af heildarbílamarkaði á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Árið 2016 var sama hlutfall 4,49%. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir að bílar sem nota vistvæna orkugjafa sæki hægt og bítandi á, og einkum tengil- tvinnbílar enda henti þeir ágætlega íslenskum aðstæðum eins og er, eins og Özur orðar það. „Við höfum kallað þá einhverskonar millistykki þar til rafbílar geta tekið alveg við hlutverk- inu, en það er þónokkur tími í að það verði. Enn er mikið verk óunnið í upp- byggingu innviðanna,“ segir Özur í samtali við Morgunblaðið. Jafnt hlutfall bensín- og dísilbíla Það sem af er ári hefur jafnstórt hlutfall bensín- og dísilbíla verið ný- skráð en samtals eru þessir hefð- bundnu orkugjafar 88% allra ný- skráninga. 12% eru hins vegar með tvinnvélum eða knúnir rafmagni. Þetta hlutfall var 10% fyrir allt árið 2016. Hörður Harðarson, sölustjóri Niss- an og Renault hjá BL, segir að árið hafi farið vel af stað í vistvæna flokkn- um en Nissan Leaf var söluhæsti raf- bíllinn á Íslandi á síðasta ári. „Sala á rafbílum er almennt mjög góð og fer upp á við. Nýir bílar eins og Renault ZOE og BMW hafa bæst við og fengið góðar viðtökur, og „stolið“ frá Leaf- bílnum. Fólk er almennt að átta sig á hvað þetta er hagkvæmur og góður kostur. Enn sem komið er eru þessir bílar oftast númer 2-3 á heimilinu, en það gæti breyst þegar hleðslustöðv- um fjölgar á hringveginum,“ sagði Hörður í samtali við Morgunblaðið. Jóhann Ingi Magnússon, sölustjóri Volkswagen hjá Heklu, tekur í sama streng. Mjög vel hafi gengið fyrstu mánuði ársins. „Við höfum selt 63 Outlander-bíla, 45 Volkswagen- og 30 Audi-bíla. Það þýðir að við höfum selt um helminginn af öllum nýskráðum tengiltvinnbílum á markaðnum það sem af ári.“ Jóhann segir að úrvalið af bílum sé alltaf að aukast og árið líti vel út. Mikil sala rafbíla fyrstu mánuði 2017 Sala fólksbíla janúar-apríl 2017 - eftir orkugjöfum 44% 44% 12% Dísil Bensín Aðrir orkugjafar P lu gi n hy br id 24 6 13 2 11 1 5 29 0 Be ns ín /m et an Ra fm ag n M et an Be ns ín /r af m ag n Tengiltvinnbílar, traktorar og kranar » 15 nýir tengiltvinnbílar voru fluttir inn árið 2014, en 140 ár- ið 2015, 601 árið 2016 og 246 á fyrsta þriðjungi þessa árs. » Á árinu 2017 hafa alls verið nýskráðar 25 stærri hópferða- bifreiðar og 62 dráttarvélar voru fluttar inn á fyrstu fjórum mánuðum ársins. » 15 byggingakranar voru fluttir inn frá janúar-apríl.  12% nýrra bíla með vistvænan orkugjafa  5,34% af heild Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á STUTT Sjávarútvegsfyrirtækið Aurora Seafood hefur hlotið 1,7 milljóna evra styrk, jafngildi liðlega 190 milljóna króna, úr Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins til að þróa og tæknivæða veiðar og vinnslu á sæbjúgum. Mun það vera í fyrsta sinn sem íslenskt sjávar- útvegsfyrirtæki hlýtur svo háan styrk á þeim vettvangi. Um er að ræða svokallaðan „SME Instrument“-styrk, sem er tveggja þrepa umsóknaferli. Í tilkynningu segir að árangur Aurora Seafood sé einstakur því umsóknir fyrirtæk- isins hlutu brautargengi í fyrstu at- rennu í báðum þrepum og liðu að- eins níu mánuðir frá því að umsókn um fyrsta þrep var send inn þar til hinn stóri styrkur var í höfn. ESB styrkir sæbjúgnaveiðar ● Rakel Sveins- dóttir, fram- kvæmdastjóri Spyr, er nýr formaður Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA. Hún var kjörin á aðalfundi félagsins í Iðnó á fimmtu- daginn, en einnig bauð Fjóla G. Frið- riksdóttir sig fram til formanns. Fráfarandi formaður, Þór- dís Lóa Þórhallsdóttir, var ekki í fram- boði en hún hefur gegnt formennsku félagsins undanfarin fjögur ár. Á aðalfundinum var jafnframt kosið í þrjú sæti í stjórn félagsins. Kosningu í stjórn hlutu Áslaug Gunnlaugsdóttir, Guðrún Ragnarsdóttir og Ragnheiður Aradóttir. Innan vébanda FKA eru ríflega eitt þúsund konur í leiðtogastörfum á öllum sviðum atvinnulífsins. Telst yfir helm- ingur þeirra til forstjóra, framkvæmda- stjóra og eigenda fyrirtækja. Fram- kvæmdastjóri FKA er Hrafnhildur Hafsteinsdóttir en í félaginu starfa 14 nefndir, deildir og ráð sem um 100 félagskonur sinna yfir árið. Rakel hlaut kosningu sem nýr formaður FKA Rakel Sveinsdóttir BUDAPEST Í UNGVERJALANDI GDANSK Í PÓLLANDI WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Búdapest hefur verið kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu Ungverja má rekja hundurðir ára aftur í tímann. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands og þó víða væri leitað. Saga hennar nær aftur til ársins 997. Þetta er borg með mikla sögu en hún var helsta vígi Hansakaupmanna i Evrópu. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og fjölmargar tónlistarhátíðir hafa gert borgina við flóann að vinsælustu ferðamannborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. RIGA Í LETTLANDI Miðaldaborg fra 12 öld. Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Flogið er tvisvar í viku allt árið. GLÆSILEGAR BORGIR Í AUSTUR-EVRÓPU Við bjóðum uppá glæsilegar borgir i A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 3-4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði i mat og drykk. Þá eru hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki. Viku ferðirsumarið 2017,frá 137.000 kr. permann i 2ja mannaherbergi Dæmi um borgir sem við getum boðiðVerð frá 85.000kr. Dagskrá: Kl. 13.30 Framkvæmdastjóri Ramma hf., Ólafur Helgi Marteinsson, býður gesti velkomna. Kl. 13:35 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, flytur ávarp. Kl. 13:50 Álfhildur Stefánsdóttir gefur skipinu formlega nafn. Kl. 13:55 Sóknarpresturinn í Ólafsfirði, Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, blessar skipið. Kl. 14:00 Gestum boðið að skoða skipið. Til hamingju með nýja skipið Í dag laugardaginn 20. maí tekur Rammi hf. formlega á móti frystitogaranum Sólbergi ÓF-1 á Siglufirði. Af því tilefni efnir Rammi til móttöku á Siglufirði. Allir velkomnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.