Morgunblaðið - 20.05.2017, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
Vistvænna prentumhverfi
og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri
og fyrsta flokks þjónusta.
www.kjaran.is | sími 510 5520
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Saksóknaraembættið í Svíþjóð til-
kynnti í gær að það hefði látið rann-
sókn sína á meintum kynferðisbrot-
um Julian Assange, stofnanda
Wikileaks, falla niður. Rannsóknin
hefur staðið yfir í sjö ár, en hún
leiddi meðal annars til þess að Ass-
ange leitaði hælis í sendiráði Ekva-
dor í Lundúnum, höfuðborg Bret-
lands árið 2012, en þar hefur hann
dvalist síðan.
Breska lögreglan gaf hins vegar
til kynna að hún gæti enn ákveðið að
handtaka Assange, ef hann stigi
fæti út fyrir dyr sendiráðsins, en
Assange rauf skilyrði lausnar gegn
lausnargjaldi þegar hann gaf sig
ekki fram við lögregluna á sínum
tíma, þegar evrópsk handtökuheim-
ild var gefin út á hendur honum árið
2012.
Telja ekki líkur á framsali
Marianne Ny, sem fer fyrir
ákæruvaldinu í Svíþjóð, sagði í yf-
irlýsingu að ákvörðunin hefði verið
tekin vegna þess að það væri „engin
ástæða til þess að ætla að ákvörð-
unin að fá hann framseldan til Sví-
þjóðar kæmi til framkvæmdar í ná-
inni framtíð“.
Sagði þar jafnframt að þar sem
ekki væri lengur hægt að halda
rannsókn málsins áfram undir nú-
verandi kringumstæðum, virtist
sem það væri ekki lengur ástæða til
þess að reka málið áfram.
Assange sagði í yfirlýsingu að
hann myndi hvorki gleyma né fyr-
irgefa sænsku saksóknurunum fyrir
að hafa reynt að fá sig framseldan til
Svíþjóðar þar sem hann hefði í raun
verið í haldi í sjö ár án ákæru. Hann
hefði misst af uppvexti barna sinna
og séð mannorð sitt dregið í svaðið.
„Slapp undan réttvísinni“
Konan sem sakaði Assange um að
hafa nauðgað sér, sagði hins vegar
ákvörðunina hneyksli, að sögn lög-
fræðings hennar. „Það er hneyksl-
isvert að grunaður nauðgari getið
sloppið undan réttvísinni og þannig
forðast réttlætið,“ sagði Elisabeth
Fritz, lögmaður konunnar við AFP-
fréttastofuna. Lögfræðingar Ass-
ange kölluðu hins vegar eftir því að
Bretar myndu leyfa honum að yf-
irgefa sendiráðið og halda til Ekva-
dor, þar sem hann gæti um frjálst
höfuð strokið.
Rannsóknin fellur niður
Ákæruvaldið í Svíþjóð hefur látið rannsókn sína á meintum kynferðisglæpum
Julian Assange niður falla Óvíst hvort Assange getur yfirgefið sendiráðið
AFP
Beðið átekta Breskir lögregluþjónar á vakt fyrir utan sendiráð Ekvadors í
gær, en lögreglan hefur setið um sendiráðið og Julian Assange frá 2012.
Málið gegn Assange
» Sænsk kona sakaði Assange
árið 2010 um að hafa sofið hjá
sér án smokks eftir að hún
neitaði honum um óvarin mök.
» Árið 2012 flúði Assange inn í
sendiráð Ekvadors í Lundúnum
eftir að breskur dómstóll hafði
úrskurðað að hann yrði fram-
seldur til Svíþjóðar.
» Assange segir málið gegn
sér tilbúning og yfirvarp, sem
ætlað sé að fá sig framseldan
til Bandaríkjanna.
Kjörsókn var með miklum ágætum í forsetakosning-
unum í Íran, sem fram fóru í gær. Ríkti að sögn mikil
gleði meðal væntanlegra kjósenda, svo sem þessara
þriggja kvenna, sem voru ánægðar með atkvæði sitt.
Engir eiginlegir kjörklefar eru á kjörstöðum í Íran, en
það leiðir til þess að fólk ræðir val sitt jafnvel opinskátt
og hjálpast að við að greiða atkvæði, en kjósendur þurfa
að rita nafn frambjóðanda síns með eigin hendi.
AFP
Karnivalstemning yfir kosningum
Michel Temer,
forseti Brasilíu,
biðlaði til þings-
ins í gær um að
lýsa yfir stuðn-
ingi við sig, eftir
að hæstiréttur
landsins heim-
ilaði rannsókn á
hendur honum á
fimmtudaginn
var. Temer er grunaður um að
hafa lagt blessun sína yfir mútu-
greiðslur til Eduardo Cunha, fyrr-
verandi forseta neðri deildar
þingsins, til þess að koma í veg fyr-
ir að hann tjáði sig um spilling-
armál, en Cunha dvelur nú í fang-
elsi fyrir mútuþægni.
Temer komst í forsetastólinn á
síðasta ári eftir að Dilma Rousseff,
fyrirrennari hans, var hrakin úr
embætti fyrir að hafa verið viðrið-
in spillingarmál.
Vill að þingið leysi
sig úr snörunni
Michel Temer
BRASILÍA
Friðarviðræðum
á vegum Samein-
uðu þjóðanna
lauk í gær án
þess að sam-
komulag hefði
tekist á milli
stríðandi fylk-
inga. Fyrr um
daginn höfðu
herþotur banda-
manna Bandaríkjanna gert árás á
vörubílalest Sýrlandsstjórnar í
refsiskyni fyrir meint ódæðisverk
sem Bandaríkjastjórn sagðist hafa
komist á snoðir um að væru framin
í fangelsum á vegum Bashar al-
Assads Sýrlandsforseta.
Ríkisstjórn Sýrlands fordæmdi
loftárásina harðlega, sem og stjórn-
völd í Moskvu. Uppreisnarmenn
fögnuðu hins vegar árásinni mjög,
en þeir krefjast þess að Assad láti
af embætti áður en samið verður.
Viðræðum slitið í
skugga loftárásar
Bashar al-Assad
SÝRLAND
Stjórnvöld í Tyrklandi gáfu í gær út
handtökuheimildir á hendur þrem-
ur blaðamönnum og eiganda dag-
blaðsins Sozcu, en mennirnir eru
sakaðir um stuðning við klerkinn
Fethullah Gulen, sem er í útlegð í
Bandaríkjunum.
Ritstjórnarstefna Sozcu þykir
mjög fjandsamleg Erdogan Tyrk-
landsforseta og AKP-flokki hans.
Þá leggur blaðið áherslu á hina ver-
aldlegu arfleifð Tyrklands og Ke-
mal Ataturks, stofnanda landsins.
165 blaðamenn hafa verið hand-
teknir í Tyrklandi frá valdaránstil-
rauninni síðasta sumar.
Yfirvöld handtaka
óþæga blaðamenn
TYRKLAND
Richard Rojas,
fyrrverandi sjó-
liði í Bandaríkja-
flota, var í gær
ákærður fyrir
morð og tilraun
til manndráps en
Rojas ók bifreið
sinni á mann-
fjölda við Times
Square-torgið
fræga í New York á fimmtudags-
kvöldið.
Ein kona, hin átján ára Alyssa
Elsman, lést og 22 aðrir særðust í
árás Rojas, en yfirvöld segja ekkert
benda til þess að um hryðjuverk hafi
verið að ræða. Fjórir hinna slösuðu
eru enn í lífshættu.
Rojas var sjóliði á árunum 2011 til
2014. Hann hlaut orðu fyrir störf sín
í flotanum, en vinir hans og vanda-
menn sögðu að hann hefði sagst
„heyra raddir“ eftir að hann sneri til
baka úr herþjónustu sinni. Rojas var
tekinn fyrir ölvunarakstur árin 2008
og 2015 og merki um vímuefni fund-
ust í blóðsýnum úr honum í gær.
Ákærður
fyrir morð-
tilræði
Sagðist „heyra
raddir“ fyrir ódæðið
Richard Rojas