Morgunblaðið - 20.05.2017, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
Slagurinn um efsta sætið ílandsliðsflokki á Skák-þingi Íslands stendur milliHéðins Steingrímssonar
og Guðmundar Kjartanssonar og
nær hámarki með uppgjöri þeirra í
síðustu umferð sem fram fer í dag.
Hinn 19 ára gamla Dag Ragn-
arsson mætti þó vel telja mann
mótsins en hann virðist nær
öruggur um 3. sætið. Það er vita-
skuld frábær frammistaða hjá ný-
liða en Dagur átti í nokkrum erf-
iðleikum með að tryggja sér sæti í
landsliðsflokki og rétt marði 2.
sæti á eftir Guðmundi Gíslasyni í
keppni áskorendaflokks í síðasta
mánuði. Staðan eftir sjöundu um-
ferð sem fram fór á fimmtudaginn
var þessi:
1. Héðinn Steingrímsson 6 ½ v.
(af 7) 2. Guðmundur Kjartansson 6
v. 3. Dagur Ragnarsson 5 v. 4. - 5.
Björn Þorfinnsson og Hannes Hlíf-
ar Stefánsson 3 ½ v. 6.-7. Sig-
urbjörn Björnsson og Davíð Kjart-
ansson 3 v. 8. Vignir Vatnar
Stefánsson 2 v. 9. Guðmundur
Gíslason 1 ½ v. 10. Bárður Örn
Birkisson 1 v.
Héðinn Steingrímsson hefur
þrisvar orðið Íslandsmeistari en
hann varð yngsti Ísandsmeistari
sögunnar 15 ára gamall þegar
hann vann óvæntan sigur í keppni
landsliðsflokks á Höfn í Hornafirði
árið 1990 og skaust upp fyrir
nokkra nafntogaða meistara.
Guðmundur Kjartansson hefur
einni sinni orðið Íslandsmeistari en
hann vann glæsilegan sigur á Ís-
landsþinginu 2014.
Hvað varðar frammistöðu ann-
arra vekur athygli slök frammi-
staða Hannesar Hlífars Stef-
ánssonar. Björn Þorfinnsson var
kominn vel á skrið eftir tap í fyrstu
umferð en tapaði svo tveim skák-
um og blandar sér ekki í baráttuna
um sigur. Vignir Vatnar og Bárður
Örn hafa átt erfitt uppdráttar en
öðlast þarna mikilsverða reynslu.
Á fimmtudaginnn beindist at-
hygli að efstu mönnum. Guð-
mundur Gíslason missti af góðu
færi í miðtaflinu og þegar fram í
sótti virtist Héðinn eiga sigurinn
vísan en gaf Guðmundi annað
tækifæri sem Ísfirðingurinn nýtti
sér ekki og tapaði að lokum. Guð-
mundur Kjartansson fékk þrönga
og erfiða stöðu eftír að hafa fiskað
upp peð, gerði fá mistök í fram-
haldinu og vann með vel útfærðri
gagnsókn:
Skákþing Íslands 2017; 7. um-
ferð:
Sigurbjörn Björnsson – Guð-
mundur Kjartansson
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4.
e5 c5 5. a3 Bxc3 6. bxc3 Da5 7.
Bd2 Da4
Skorðar a-peðið. Þessi leikaðferð
sást oft hjá Botvinnik.
8. Dg4 Kf8 9. Dd1 b6
Þeir hafa báðir fengið þessa
stöðu upp áður, Sigurbjörn gegn
Hollendingnum Kampen og Guð-
mundur gegn Einar Hjalta Jens-
syni á Íslandsmótinu í fyrra.
10. dxc5 bxc5 11. Rf3 Re7 12.
Be2 Ba6 13. O-O Rd7 14. Hb1 Rc6
15. Be3 h6 16. Bxa6 Dxa6 17. Dd3
c4 18. Dd2 Kg8 19. h3 Rdxe5 20.
Rxe5 Rxe5 21. f4 Rd7 22. f5 Dxa3
23. Hb7 Dd6 24. fxe6 Dxe6 25.
Bxa7 f6 26. Bd4?
Hann gat náð peðinu til baka
með 26. Hd1 og a.m.k. jafnri stöðu
en vill meira.
26. … Dc6 27. Hfb1 Kh7 28. Df4
De6 29. Dg3 Hhe8
Eftir að hrókurinn kemst í spilið
nær svartur smátt og smátt að
bæta stöðu sína.
30. Kh2 Ha7 31. Bb6 He7 32.
Bd4 Re5 33. H7b5 Ha2 34. Bc5
Hd7 35. Hb6 Df5 36. H6b2 Hxb2
37. Hxb2 De4 38. Bd4 Rg6 39. Be3
He7 40. Bd4 Rf4 41. Bc5 He5 42.
h4
Hindrar 42. … Hg5 en þá kemur
hnykkur úr annarri átt.
42. … Rxg2! 43. Hb7
Eða 43. Dxg2 Dxg4+ 44. Kg1
He1+ og vinnur.
43. … Dxh4+
– og hvítur gafst upp, 44. Kxg2
er svarað með 44. … Hg5 o.s.frv..
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Héðinn eða
Guðmundur –
Úrslitaskák í dag
oðið úrvalið
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Opið virka daga
10-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Misviturt fólk vann
það sér til afreka að
kljúfa Framsókn-
arflokkinn á 100 ára
afmæli flokksins sl.
haust. Sigurður Ingi
Jóhannsson, núver-
andi formaður, sá sig
knúinn á ómerkilegan
hátt til að bjóða sig
fram gegn sitjandi for-
manni, Sigmundi Dav-
íð Gunnlaugssyni, korteri fyrir
kosningar sl. haust eftir að hafa
marglýst því yfir, bæði á fundum og
í fjölmiðlum, að hann myndi aldrei
fara fram gegn sitjandi formanni,
þ.e. Sigmundi Davíð. Þetta mun
vera einsdæmi í Framsókn-
arflokknum og ber Sigurður Ingi
því við að skorað hafi verið á hann
að bjóða sig fram gegn Sigmundi
Davíð. Þetta var jafn ómerkilegt
fyrir það en auðvitað er öllum
frjálst að bjóða sig fram til for-
manns í Framsóknarflokknum, en
ekki sama hvernig farið er að og
hvernig er mönnum sæmandi. Þetta
lýsir þvílíku og ótrúlegu dómgreind-
arleysi að fáheyrt er. Boðað var til
flokksþings mánuði fyrir kosningar
sl. haust, sem aldrei hefði átt að
vera, heldur nú síðla vetrar og þá
gat Sigurður Ingi boðið sig fram.
Afrakstur þessa ótrúlega frum-
hlaups og dómgreindarleysis varð
að harkalegustu útreið, sem flokk-
urinn hefur hlotið og nú undir for-
ystu Sigurðar Inga formanns. Fylg-
ið hrundi af Framsóknarflokknum
og töpuðust um 14% atkvæða og
hvorki meira né minna en 11 þing-
menn undir stjórn Sigurðar Inga og
geri aðrir betur, svo ekki sé talað
um fjárhagslegt tap upp á um 50-60
milljónir í peningum. Nú, hálfu ári
seinna, hjakkar flokkurinn í rúmum
10%, tvíklofinn og engin teikn á lofti
um sættir.
Áskorendurnir
Þeir þingmenn Framsókn-
arflokksins sem taldir eru hafa lagt
hvað harðast að Sigurði Inga að
bjóða sig fram gegn Sigmundi Dav-
íð eru Silja Dögg
Gunnarsdóttir, Eygló
Harðardóttir, Willum
Þór, Karl Garðarsson,
Ásmundur Einar,
Höskuldur Þórhalls-
son, Þórunn Egils-
dóttir og Líneik Anna.
Þess má geta hér að
Sigmundur Davíð
gerði auðvitað sjálfur
vitleysu með því að
segja af sér sem for-
sætisráðherra, þar átti
hann að sitja sem fast-
ast því hann hafði ekkert brotið af
sér en í staðinn rétti hann Sigurði
Inga forsætisráðuneytið á silfurfati.
Það voru mikil mistök. Málið um
Wintris-reikninginn var rógur, upp-
spuni og lygi. Ásmundi Einari tók
Sigmundur Davíð við í forsæt-
isráðuneytið á sinni tíð en hann var
síðan látinn fara eftir að hafa ætlað
að skara eld að sinni köku og nota
ráðuneytið til þess. Höskuld gerði
hann að formanni Samgöngu-
nefndar, sem leiddi til þess að hann
var kosinn í mikla trúnaðarstöðu,
sem formaður Norðurlandaráðs. Af
framansögðu má sjá að sjaldan
launar kálfurinn ofeldið.
Reiðmenn vindanna
Hestamennirnir Sigurður Ingi
Jóhannsson forsætisráðherra og
skemmtikrafturinn Guðni Ágústs-
son eiga að vita það manna best að
ekki er mjög vænlegt til árangurs
að skipta um hest í miðri á en þeir
félagar í hestamennskunni létu sig
hafa að fara út í það feigðarflan og
árangurinn kom svo sannanlega í
ljós í kosningunum, eða rúm 10%
fylgi og 8 þingmenn varð árang-
urinn eftir ótrúlegt feigðarflan.
Guðni Ágústsson má nú muna þá tíð
er hann blauður lét hrekja sig úr
formannssæti í flokknum og Val-
gerður Sverrisdóttir tók við við lít-
inn orðstír, enda hvorugt þeirra
kosið til embættisins. Á eftir áskor-
endunum, þingmönnunum, komu
svo bakraddirnar svokölluðu,
flokkseigendurnir, og gerðu mjög í
því að rægja Sigmund Davíð á allan
máta. Þar fóru fremst, auk Guðna,
þau Jón Sigurðsson fyrrverandi for-
maður, sem vann sér það til frægð-
ar að drulla flokknum niður í 6 % í
skoðanakönnun og einnig kom við
sögu Valgerður Sverrisdóttir, einn-
ig fyrrverandi formaður í stuttan
tíma. Valgerður vann sér það til
frægðar í sinni ráðherratíð m.a. að
vera aðalleikarinn í svokölluðu einu
frægasta spillingarmáli Íslands-
ögunnar, Búnaðarbankamálinu.
Einnig er Valgerður sögð hafa „rið-
ið um héruð“ til stuðnings Sigurði
Inga.
Það er nánast óskiljanlegt hvern-
ig þetta ólánsfólk telur sig þess um-
komið í sinni heimsku að koma fram
við Sigmund Davíð eins og raun ber
vitni. Hann er maðurinn sem leiddi
flokkinn til næststærsta sigurs í
kosningum flokksins í 100 ára sögu
hans. Ég tel að viðlíka fólk eigi vart
heima í Framsóknarflokknum,
nema að sýnd sé veruleg iðrun og
ekkert óraunhæft hatur og nú er
komið að skuldadögunum.
Hvernig ætlar Sigurður Ingi og
hans lið að sameina Framsókn-
arflokkinn á ný? Við því er ekki
nema eitt ráð. Sigurður Ingi verður
að víkja.
Vandinn í
Framsóknarflokknum
Eftir Hjörleifur
Hallgríms »Hvernig ætlar
Sigurður Ingi að
sameina tvíklofinn
Framsóknarflokkinn
eftir að hafa illa veist að
Sigmundi Davíð?
Hjörleifur Hallgríms
Höfundur er eldri borgari á Akureyri.
Atvinna