Morgunblaðið - 20.05.2017, Blaðsíða 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
Komið og hittið starfsfólk Véla og verkfæra í bás C-9 á Amazing
Home Show. Við kynnummeðal annars snjallar læsingar fyrir
heimili, hurðarhúna, fjarlægðarmæla, höfuðljós, verkfæravagna,
hleðsluborvélar og verðmætaskápa. Frábær tilboð og spurninga-
leikur með veglegum vinningum.
Velkomin í bás
Véla og verkfæra
erum á svæðinu Nútímaheimilið
Laugardalshöllinni, 19.–21. maí
Grundvöllur krist-
innar trúar er Kristur,
sé hann tekinn úr
kristindóminum er lífið
farið úr þeirri trú sem
hann boðar. Þá verða
eftir líflaus trúarbrögð
sem enga merkingu
hafa og verða eins og
hver önnur trúarbrögð
sem eru hugmyndir
manna um „guð“ og er
blekking ein.
Kristur er lífið í kristinni trú og sé
hann tekinn í burtu er ekkert eftir
nema blekkingin ein. Öll trúarbrögð
er blekking því þau vísa frá Guði en
ekki til hans. Það er aðeins Jesús
Kristur sem er „vegurinn sannleik-
urinn og lífið“ sem getur fært okkur
til Guðs. Hann hefur því svo fyrir
komið að aðeins í Heilagri ritningu
fáum við mætt Guði og Jesú Kristi.
Jóhannes guðspjallamaður ritar í
guðspjalli sínu samtal sem Jesús átti
við Nikódemus sem átti sæti í öld-
ungaráði Gyðinga. Þar er ritað t.d.
„Því svo elskaði Guð heiminn að
hann gaf einkason sinn til þess að
hver sem á hann trúir glatist ekki
heldur hafi eilíft líf.“ Jóh.3.16. Þarna
sjáum við fagnaðarerindið sett fram
í fáum orðum.
Þetta er í raun allt sem segja þarf.
Fyrir trú á Jesúm Krist eignast
maðurinn eilíft líf með honum. Hefur
einhver af svokölluðu trúarbragða-
höfundum sagt eitthvað í líkingu við
þessi orð Jesú? Það held ég ekki.
Jesús segir einnig: „Ég er vegurinn,
sannleikurinn og lífið. Enginn kem-
ur til föðurins nema fyrir mig.“ Jóh.
14.6. Enginn hefur sagt þvílík orð.
En þetta er sá veruleiki sem fagnað-
arerindi Guðs boðar. Páll postuli rit-
ar til Korintumanna: „Því að það var
Guð sem í Kristi sætti heiminn við
sig er hann tilreiknaði mönnum ekki
afbrot þeirra og fól mér
að boða orð sátt-
argjörðarinnar.“ 2.
Kor. 5.19. En allt er
bundið því eina að við
tökum á móti þessu í
trú á Jesúm Krist: „til
þess að hver sem á
hann trúir …“ Þetta er
kristindómurinn og ef
við ætlum að taka Jesú
burt úr kristindóm-
inum verður hann eins
og hver önnur trúar-
brögð innihaldslaust
kenningarkerfi.
Að vísu er Jesús nefndur í t.d. ísl-
am, þar er hann settur á bekk með
öðrum spámönnum en það hæfir
frelsara heimsins ekki. Jesús stend-
ur einn gegn hverskonar hugmynd-
um manna um Guð og sama er að
segja um kristindóminn, hann stend-
ur einn gegn trúarbrögðum manna.
Það skal viðurkennt að margt er það
sem við skiljum ekki í boðun krist-
indómsins og það er eðlilegt að við
skiljum ekki Guð, og mörgum finnst
boðun krossins vera heimska og Guð
hafi heldur betur misreiknað sig. En
höfum það í huga að „orð krossins er
heimska þeim er stefna í glötun en
okkur sem hólpin verðum er það
kraftur Guðs“. 1. Kor. 1.18. Og einn-
ig; „Því að heimska Guðs er mönnum
vitrari og veikleiki Guðs mönnum
sterkari.“ 1. Korintubréf 1. 25.
Viljum við taka þá áhættu að
hafna slíku boði frá Guði. „Sá sem
trúir á soninn hefur eilíft líf en sá
sem óhlýðnast syninum mun ekki
öðlast líf heldur varir reiði Guðs yfir
honum.“ Jóh. 3. 36. Við skulum velja
lífið.
En hver var Jesús? Var hann bara
góður fræðari, byltingamaður, spá-
maður? Hann hefur fengið nokkra
titla sem menn hafa gefið honum.
Sjálfur spurði hann lærisveina sína
þeirrar spurningar: „Hvern segja
menn Mannssoninn vera?“ Þessarar
spurningar spurði Jesú lærisveina
sína er þeir „komu í byggðir Sesareu
Filippí Matt 16.13-16. Lærisvein-
arnir svöruðu honum: „Sumir Jó-
hannes skírara, aðrir Elía og enn
aðrir Jeremía eða einn af spámönn-
unum.“ Hann spyr: „En þið, hvern
segið þið mig vera?“
Símon Pétur svarar: „Þú ert
Kristur, sonur hins lifanda Guðs.“
Þetta er grundvöllurinn „Þú ert
Kristur, sonur hins lifanda Guðs.“
Jesús var hinn fyrirheitni Frelsari
sem Ritningarnar höfðu talað um.
„Því að barn er oss fætt, sonur er
oss gefinn“ Jes. 9:5. Þetta þekkjum
við frá því lesið var úr ritningunni
um hver jól. Hver gaf okkur þetta
barn? Jú, það var Guð. Guð átti
frumkvæðið, Hann gaf. Guð hefur
talað. Sjáum t.d. Hebreabr. 1. 1 Guð
talaði fyrrum oftsinnis og með
mörgu móti til feðranna fyrir munn
spámannanna. 2 En nú í lok þessara
daga hefur hann til okkar talað í syni
sínum sem hann setti erfingja allra
hluta. Fyrir hann hefur hann líka
heimana gert. 3 Hann, sem er ljómi
dýrðar hans og ímynd veru hans og
ber allt með orði máttar síns, hreins-
aði okkur af syndum okkar og settist
til hægri handar hátigninni á hæð-
um. Hebr.1. 1-3.
Þetta segir okkur að Jesús flytur
okkur mikilvægasta boðskap Guðs
til okkar.
Við skulum hafa það í huga að
kristindómurinn er ekki aðeins orð
né heldur samansafn trúarlegra
hugmynda né heldur samansafn
siðaboða. Hann er fagnaðarerindi.
Hann er frelsisboðskapur til okkar
mannanna. Páll postuli segir að
kristindómurinn sé „fagnaðarerindi
„Guðs … um son hans, Jesúm Krist
Drottin vorn sem Guð gaf fyrirheit
um fyrir munn spámanna sinna í
helgum ritningum.
Viljum við taka þá áhættu að
hafna Jesú Kristi.
Grundvöllurinn er Kristur
Eftir Ólaf Gunnar
Vigfússon »Kristur er lífið í
kristinni trú og sé
hann tekinn í burtu er
ekkert eftir nema blekk-
ingin ein.
Ólafur Gunnar
Vigfússon
Höfundur er fyrrverandi versl-
unarmaður.
Þú ert sósíalisti.
Ekki örvænta. Þú
þarft ekki að fá þér
Ché Guevara bol eða
syngja með í viðlag-
inu: „Fuck you, I
won’t do what you tell
me!“ Skemmtilegt, en
engin skylda. Auðvit-
að hafa þeir hlutir
eitthvað með sósíal-
isma að gera en sósíal-
isti er hver sá sem lætur sig sam-
félagsleg hugðarefni varða. Í
bókinni Höfundur Íslands eftir
Hallgrím Helgason segir að-
alpersónan um róttækni sína á
kreppuárunum: „Að vera sósíalisti
var að vera maður.“ Þar hittir hann
í raun naglann á höfuðið, nema hvað
þátíðarmyndin er örlítið villandi. Að
vera sósíalisti er að vera maður.
Sanngirni er samofin eðli okkar
sem spendýrum. Allir sem eru í ein-
hverjum tengslum við samvisku
sína vilja að fólk fái að njóta af-
raksturs erfiðis síns burtséð frá því
hvert eignarhaldssamband þess við
framleiðslutækin er. Ég leyfi mér
að ganga svo langt að segja að allir
nema siðblint fólk séu í raun sósíal-
istar. Allir hægrisinnar sem ég
þekki eru sammála vinstrisinnum
með allar hugsjónir. „Auðvitað væri
það best ef við gætum haft jöfnuð,
réttlæti og bræðralag,“ segja þeir
en bæta svo við: „Það er bara ekki
framkvæmanlegt.“
Sko, ég sagði þér: þú ert sósíal-
isti. Þú ert bara svartsýnn sósíalisti.
Grunnhugsjón sósíalismans er sú
að allir eigi að gera það sem þeir
geta og uppskera það sem þeir
þurfa. (Að sögn Karls Marx var
þetta sjálfur hornsteinn komm-
únismans en við skulum end-
urheimta eitt hugtak í einu.) Eins
og mannfræðingurinn David Grae-
ber bendir á þá væru vinsamleg
samskipti manna á milli ómöguleg
ef þau byggðust ekki á þessum
grunni. Þá hefðum við ekkert sam-
félag. Þá væri mannkynið útdauð
tegund. Útspil Graebers í umræður
sem hefjast á staðhæfingunni:
„Sósíalismi virkar
ekki“ er því einfalt. Svo
ég umorði hann lít-
illega: „Sósíalismi er
það eina sem virkar.“
Það verður aldrei til
„sósíalistaríki“ en án
sósíalisma helst ekkert
ríki saman.
Ef þú mættir velja
annað hvort að leyfa
fjárfestum að græða á
sjúklingum eða veita
Íslendingum gjald-
frjálsa heilbrigðisþjónustu mynd-
irðu alltaf velja það síðarnefnda.
Ef þú mættir velja annað hvort
að leyfa sægreifum að mokgræða á
auðlind þjóðarinnar og geyma pen-
ingana í aflandsfélögum eða leyfa
þeim sem veiða fiskinn og verka
hann að njóta gróðans af honum
myndir þú alltaf velja það síð-
arnefnda.
Ef þú mættir velja annað hvort
að leyfa starfsmannaleigum að
stunda þrælahald á íslenskri grundu
eða veita erlendu starfsfólki samn-
ingsrétt um mannsæmandi afkomu
myndirðu alltaf velja það síð-
arnefnda.
Ef þú mættir velja annað hvort
að leyfa fjármálafyrirtækjum að
kaupa upp íbúðir og mokgræða á
þeim og keyra upp húsnæðisverð
eða veita ungu fólki von um að geta
eignast eigið húsnæði einhvers stað-
ar sunnan við fimmtugsaldurinn
myndirðu alltaf velja það síð-
arnefnda.
Þú myndir alltaf velja það síð-
arnefnda.
Af því að þú ert sósíalisti.
Málið er bara að þú heldur að þú
hafir ekkert val.
Góðu fréttirnar eru þær að það er
ekki rétt hjá þér.
Opið bréf til
íslensku hægri-
manneskjunnar
Eftir Símon
Hjaltason
Símon Hjaltason
» Það verður aldrei til
„sósíalistaríki“ en án
sósíalisma helst ekkert
ríki saman.
Höfundur er söngvaskáld og læri-
meistari. sih5@hi.is
Matur
Það streyma inn auglýsingapésar
frá garðyrkju- og húsaviðgerðar-
fyrirtækjum þessa dagana. Bækl-
ingar af vönduðustu gerð, gefa
væntingar um vandað fyrirtæki.
En ekki er allt sem sýnist. Aflið
ykkur upplýsinga á rsk.is áður en
stofnað er til viðskipta. Skoðið
hvort fyrirtækin hafi skilað árs-
reikningum, það eitt gefur
ákveðna sýn. Um helgina barst
mér fallegur bæklingur frá fyr-
irtæki sem býður upp á fasteigna-
viðgerðir og viti menn, fyrirtækið
hefur ekki skilað ársreikningum til
ríkisskattstjóra svo árum skiptir.
Bæklingurinn gefur aftur á móti
allt önnur fyrirheit.
Allt annað: Ég keypti herðatré
(úr við), þau brotnuðu undan úlp-
um. Þegar ég kvartaði við versl-
unina, fékk ég svarið: „Þetta eru
ekki forstofuherðatré“. Ég keypti
rándýra salernissetu, sem ég 65
kg konan settist á, þ.e. lokið, setan
sprakk undan mér. Svarið sem ég
fékk var: „Þetta er lok en ekki
seta, það er ekki ætlast til að það
sé sest á salernislok“.
Varið ykkur á svikurum og
sviknum vörum.
Sigríður.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Svikinn neytandi – Varið ykkur
Morgunblaðið/Ásdís
Klósettlok Það ætti að vera óhætt að setjast þegar lokið er niðri.