Morgunblaðið - 20.05.2017, Síða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
Við fráfall Guð-
mundar Guðbjarna-
sonar, vinar og fé-
laga til margra ára,
vakna minningar um einstaklega
hógværan og vandaðan mann.
Hann var hlýr í viðmóti, jafnframt
traustur og einarður í öllum sam-
skiptum. Kynni okkar hófust fyrir
rúmum fimmtíu árum, þegar ég
kom með unnustu minni á heimili
Ástu Eiríksdóttur móður hans,
sem bjó þá ekkja með honum og
Ernu systur hans á Lindargöt-
unni, en Erla mín og Erna voru
vinkonur og skólasystur úr Verzl-
unarskólanum. Leiðir skildu um
sinn, þegar við Erla fluttum til
Ólafsfjarðar, en þar bjuggum við í
sjö ár, síðan níu ár í Svíþjóð við
framhaldsnám og störf. Sam-
bandið endurnýjaðist fyrir milli-
göngu systur Guðmundar, þegar
við snerum heim 1975. Það var svo
árið 1983, að við Guðmundur gerð-
umst ásamt 25 öðrum stofnfélagar
Rótarýklúbbsins Reykjavík –
Breiðholt. Guðmundur var fulltrúi
fyrir starfsgreinina „opinber
stjórnsýsla, varnarmál og al-
mennar tryggingar“. Guðmundur
reyndist einlægur og áhugasamur
liðsmaður rótarýhreyfingarinnar.
Þar naut hann góðs stuðnings
Þórunnar Magnúsdóttur eigin-
konu sinnar. Hann gegndi með
tímanum öllum helztu trúnaðar-
störfum í klúbbnum. Þá liggur eft-
ir hann skýrsla um tíu ár í starfi
klúbbsins. Núverandi forseti
klúbbsins, Sigurlaug H. Svavars-
dóttir, skólastjóri, minnist Guð-
mundar meðal annars með þess-
um orðum: „Hann var bóngóður
og alltaf tilbúinn til að leiðbeina
um klúbbstarfið, hann veitti til
dæmis óreyndum forsetum góð
ráð. Guðmundur hélt á lofti al-
þjóðlegum tengslum klúbbsins
um nokkra hríð og var frum-
kvöðull á því sviði, til að mynda
Euromeet.“ En það voru samtök
yngstu klúbbanna á í Evrópu, sem
skipulögðu gagnkvæmar heim-
sóknir þessara klúbba, meðal ann-
ars hér á Íslandi. Guðmundar er
saknað. Ástvinum hans flyt ég
samúðarkveðjur klúbbfélaganna.
Guðmundur B.
Guðbjarnason
✝ Guðmundur B.Guðbjarnason
fæddist 5. ágúst
1940. Hann lést 7.
maí 2017.
Guðmundur var
jarðsunginn 19.
maí 2017.
Að leiðarlokum vil
ég þakka góðum
dreng auðsýnda vin-
áttu og tryggð. Veri
hann Guði falinn.
Kæra Þóra, börn og
aðrir ástvinir, megi
Guð veita ykkur öll-
um huggun í sorg-
inni.
Kristján Búason.
Guðmundur Guðbjarnason var
26 ára þegar hann hóf störf hjá
ríkisskattstjóra. Hann kom beint
frá prófborðinu í háskólanum, það
varð ekki stutt viðdvöl – hann
varði nánast allri starfsævi sinni
þar.
Þekking Guðmundar Guð-
bjarnasonar á skatta- og bók-
haldslögum var yfirgripsmikil
hvort heldur það voru lög um
tekjuskatt, bókhald eða ársreikn-
inga enda átti hann drjúgan þátt í
samningu fjölmargra lagafrum-
varpa. Hann sat í ótal starfshóp-
um og nefndum og til hans var
leitað um ráð við úrlausn vanda-
samra álitamála. Um árabil var
hann lykilmaður við gerð leiðbein-
inga um framtalsskil og annaðist
gerð flestra eyðublaða. Hann
stýrði ennfremur námskeiðahaldi
á vegum ríkisskattstjóra og tók
saman kennslurit.
Mikil breyting varð á tæknium-
hverfi framtalsgagna upp úr 1980
þegar tekið var í notkun nýtt
framtalseyðublað þar sem hver
reitur þess bar ákveðið númer.
Guðmundur og samstarfsmenn
hans hjá ríkisskattstjóra og Skýrr
þróuðu þá ný verkfæri til nota við
yfirferð framtala þar sem unnt
var að bera saman einstaka reiti
og veita betri hagrænar upplýs-
ingar. Jafnframt hafði Guðmund-
ur umsjón með gerð svokallaðrar
ábendingaskrár, þar sem stigin
voru fyrstu skrefin í vélrænni yf-
irferð skattframtala landsmanna.
Naut Guðmundur sín mjög við
þetta verkefni og flutti mörg er-
indi á fundum skattstjóra til að
kynna þetta frumkvöðlastarf
embættisins og hvetja fundar-
menn til dáða.
Árið 1986 var Guðmundur skip-
aður í stöðu skattrannsóknar-
stjóra til að stýra rannsóknardeild
ríkisskattstjóra. Gegndi hann því
embætti þar til rannsóknardeildin
var lögð niður í árslok 1992. Þá tók
við síðasti hluti starfsævinnar að
semja frumvörp til nýrra laga um
bókhald og ársreikninga og síðar
stofnun og rekstur ársreikninga-
skrár sem hann veitti forstöðu um
árabil. Og þegar hann var kominn
á eftirlaun var hann kallaður til
lokaverkefnisins, að taka saman
hvernig skattframkvæmd var
háttað fyrr á árum. Samdi hann
stórfróðlegan greinaflokk sem
birt var í Tíund, fréttablaði rík-
isskattstjóra.
Mikið annríki einkenndi starfs-
ævi Guðmundar enda var hann
samviskusamur og lagði alúð í þau
verkefni sem honum var trúað
fyrir. Hann var bóngóður og vilj-
ugur til verka en hann gat verið
fastur fyrir í rökræðum og hafði
ákveðnar skoðanir sem ekki var
auðvelt að hnika. Hann var glögg-
ur og sökkti sér niður í flókin álita-
mál og flutti mál sitt alvörugefinn.
Undir alvarlegu yfirborðinu var
þó stutt í kímni og gamansemi þar
sem hann naut sín í líflegum um-
ræðum.
Við sem störfuðum með Guð-
mundi árum saman minnumst
hans sem góðs félaga sem gaman
var að sækja heim, ekki síst í sum-
arbústaðinn sem var þeim Þór-
unni, eiginkonu hans, athvarf í
aldarfjórðung. Af hálfu vinnu-
félaga hans var sumarbústaðurinn
aldrei kallaður annað en þræla-
búðirnar enda kom Guðmundur
oft þreyttur til starfa eftir helg-
ardvöl þar.
Að leiðarlokum er þakkað fyrir
störfin og félagsskapinn og Þór-
unni og börnum þeirra vottuð
innileg samúð.
Skúli Eggert Þórðarson,
Indriði H. Þorláksson,
Snorri Olsen.
Nafn Guðmundar Guðbjarna-
sonar bar fljótt á góma þegar ég
nýútskrifaður lögfræðingurinn
hóf störf innan skattkerfisins fyrir
ríflega tveimur áratugum síðan.
Væri Guðmundur einn þeirra sem
stæði flestum öðrum framar við að
leysa úr flóknum leikreglum
skattframkvæmdar. Enda var það
svo að Guðmundi hafði á löngum
starfsferli innan skattkerfisins
verið treyst fyrir margvíslegum
verkefnum, mörgum hverjum
mikilvægum er fólu í sér grund-
vallarbreytingar á gildandi fram-
kvæmd eins og innleiðing skatt-
breytinganna 1980, þar sem
Guðmundur gegndi þýðingar-
miklu hlutverki.
Guðmundur gegndi starfi
skattrannsóknarstjóra á árunum
1986-1992, þegar verkefni hans
voru enn innan embættis ríkis-
skattstjóra. Hann var síðan einn
höfunda frumvarps til laga er
lögðu grundvöll að stofnun sjálf-
stæðs embættis skattrannsóknar-
stjóra á árinu 1993 og var Guð-
mundur settur
skattrannsóknarstjóri fyrsta
mánuð nýstofnaðs embættis í jan-
úar 1993.
Mér var hlýtt til Guðmundar.
Það var auðsótt að leita til hans
um hver þau álitaefni sem upp
komu og þörfnuðust skoðunar.
Hann svaraði ávallt af heilindum
og yfirvegun og ekki laust við að
hann hefði gaman af því þegar
ófyrirséð álitaefni komu upp við
túlkun eða framkvæmd skatta-
laga sem þörfnuðust úrlausnar.
Við hjá embætti skattrann-
sóknarstjóra ríkisins þökkum
Guðmundi samfylgdina. Eigin-
konu hans og börnum vottum við
okkur dýpstu samúð.
Bryndís Kristjánsdóttir,
skattrannsóknarstjóri.
Það var einhvern tíma á átt-
unda áratug síðustu aldar að mér
bauðst að vera fjórði maður í bad-
mintonhópi. Einn í hópnum var
Agnar Egilsson mágur minn en
hinir voru Guðmundur Guðbjarna-
son og Ingimar Hansson. Þá
þekkti ég ekkert og ekki hvarflaði
að mér að hér væri verið að stofna
til innilegrar ævilangrar vináttu.
Konurnar kynntust og við áttum
öll svo vel saman. Við fórum út að
dansa, í útilegur, veiðiferðir og
tónleika svo nokkuð sé nefnt.
Börnin kynntust í tjaldferðum og
danskennslu. Badmintoniðkunin
sjálf entist ekki nema áratug, en
annað starf efldist og aðalfundir
hafa verið haldnir í Badminton-
félaginu árlega allt til þessa dags,
til skiptis í sumarbústöðum félag-
anna. Þau hjón Guðmundur og
Þóra voru þar hrókar alls fagnað-
ar. Alltaf voru fjörugusu fundirnir
í bústaðnum þeirra í Svínadalnum.
Margir sem kynntust Guð-
mundi sem samviskusömum, ná-
kvæmum embættismanni sjá hann
fyrir sér í minningunni sem al-
vörugefinn og heldur hlédrægan,
en við sem þekktum hann, kynnt-
umst kímnigáfu hans og glettni í
góðum hópi. Guðmundur var ein-
lægur og traustur vinur. Hann
hafði mikið yndi af tónlist og hefði
ábyggilega viljað helga henni
meira af tíma sínum ef tækifæri
hefðu gefist.
Við höfum átt okkar miklu
gleði- og sorgarstundir í þessu litla
félagi. Tvö hafa kvatt okkur áður
og nú sjáum við á bak Guðmundi.
Það er sár missir og badminton-
hópurinn er ekki samur, en við vit-
um að þau öll vildu að við héldum
merkinu á lofti og héldum áfram
að hittast og halda þeirri vináttu
sem á sér svo djúpar rætur.
Við badmintonfélagar sendum
Þóru, börnunum og fjölskyldunni
allri okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Minningin lifir um góðan
dreng.
Gunnar Már Hauksson.
Við frekar óvænt andlát Guð-
mundar Guðbjarnasonar lætur
maður ósjálfrátt hugann reika og
hugsar til allra þeirra góðu sam-
verustunda sem ég átti með hon-
um. Við Guðmundur lentum í
sömu bekkjardeild í 3. bekk
Menntaskólans í Reykjavík. Með
okkur tókst vinskapur sem hélst
ævilangt. Við dvöldum á mennta-
skólaárunum töluvert hvor á
heimili annars, einkum þó á heim-
ili Guðmundar þar sem móðir hans
tók mér opnum örmum. Þar gerð-
um við okkur ýmislegt til dundurs.
Eitthvert sinn fór ég í Ríkið og bað
um grænan vínanda. Ég hafði ein-
hverju sinni smakkað þannig
drykk og fannst hann mjög ljúf-
fengur en mundi ekki tegundar-
heitið. Eftir drykklangan tíma
fannst stór og rykfallin flaska með
grænum vökva í. Fór ég rakleitt
með hana til Guðmundar. Var
strax skenkt í tvö vatnsglös og
sopið á. Bragðið reyndist hins veg-
ar ömurlegt. Ákveðið var að
geyma flöskuna í rúmfataskúffu
Guðmundar þar sem hún einfald-
lega gleymdist þangað til Guð-
mundur eignaðist kærustu. Eftir
fyrstu nóttina saman finnur hún
flöskuna og mun hafa spurt heldur
snúðugt hvort hann væri bara ein-
hver fyllibytta. Svörin munu hafa
verið svo neyðarleg að þeim var
strax trúað enda varð hún honum
tryggur lífsförunautur.
Í framhaldsnáminu eftir
menntaskóla og fyrstu starfsárin
varð hlé í samverunni. Báðir vor-
um við að koma upp fjölskyldu og
á kafi í vinnu. Þegar rofaði til fór-
um við að iðka saman badminton.
Brátt fengum við fleiri til liðs við
okkur. Myndaðist þarna hópur
traustra vina sem gerðu ýmislegt
saman. Þegar við hættum í íþrótt-
inni fórum við að frumkvæði Guð-
mundar og Þórunnar konu hans að
látast vera í íþróttafélagi sem heit-
ir Badmintonfélagið. Þar þarf auð-
vitað að halda árlegan aðalfund
sem auðvitað verður að standa yfir
heila helgi.
Síðar bauðst okkur Guðmundi
að vera saman í leikfimihópi Valdi-
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær eiginkona mín. Yndisleg móðir mín
og tengdamóðir, stjúpmóðir, amma og
langamma,
JÓNÍNA GUÐBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR
skólastjóri,
Reiðskólanum TOPPHESTUM,
er látin.
Útför hennar fer fram í Grafarvogskirkju föstudaginn 26. maí
klukkan 13.
Þórður Rafn Guðjónsson
Sigrún Óladóttir Hafsteinn Stefánsson
Óli Hrafn Olsen
Katrín Tinna Hafsteinsdóttir
Stefán Haukur Hafsteinsson
Ívar Hauksson Karen Ósk Sampsted
Guðjón Þórðarson Jensína Finnbjarnardóttir
Ingvar Þórðarson Sophie Mahlo
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURÐUR KRISTINSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík
14. maí.
Jarðarför fer fram frá Kópavogskirkju
í dag, laugardaginn 20. maí, klukkan 11.
Guðríður Magnúsdóttir
Óskar Á. Sigurðsson Rebekka Alvarsdóttir
Karen Rakel Óskarsdóttir Stefán Þór Helgason
Guðríður Svava Óskarsdóttir Halldór Benjamín Guðjónsson
Alvar Óskarsson Eydís Örk Sævarsdóttir
Edith Ósk Óskarsdóttir Kristinn Dan Guðmundsson
Kristín Eva Óskarsdóttir Ágúst Birgisson
barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR BJARNASON
rafvirkjameistari,
Klapparstíg 5a,
lést að Hrafnistu 11. maí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 24. maí
klukkan 13.
Brynhildur Bjarnarson
Sturla Rafn Guðmundsson Eyrún Ísfold Gísladóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir Bergþór Guðjónsson
Elín Guðmundsdóttir Páll Þormar
Hafsteinn Guðmundsson Soffía Káradóttir
Jón Bjarni Guðmundsson Brynhildur Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
STEINÞÓR ÞORVALDSSON
skipstjóri,
Árnastíg 1, Grindavík,
lést á líknardeild Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja miðvikudaginn 17. maí.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 23. maí
klukkan 13.
Pétur Ásgeir Steinþórsson, Guðrún Jóhanna Þorbjarnard.
Sigrún Steinþórsdóttir Hommerding
Hafsteinn Már Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar,
MARGRÉT EYJÓLFSDÓTTIR,
Teigagerði 5,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 17. maí.
Útför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Jónsdóttir
Gyða Jónsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR RAGNHEIÐUR
ÓLAFSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést að kvöldi 15. maí á hjúkrunarheimilinu
Ísafold.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 6. júní
klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kristniboðssambandið,
reiknnr. 0328-26-002800, kt. 550269-4149.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hendrikka J. Alfreðsdóttir Pétur Ásgeirsson
Ólöf Petrína Alfreðsdóttir Anderson
Sveinn Alfreðsson Valdís Ólöf Jónsdóttir
börn, barnabörn og barnabarnabörn
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800