Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 39

Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 39
mars Örnólfssonar. Þar reyndist vera annar hópur sem við tókum einnig þátt í af lífi og sál og varð annað akkeri í tilverunni. Í góðum hópi var Guðmundur yfirleitt léttur og skemmtilegur og lét gamansögur oft flakka þannig að jafnvel varð til frásagn- ar löngu síðar og þá ekki síður hvernig hann sagði frá. Ég læt eina sögu fylgja með til skýringar: Hann sagðist hafa farið til heim- ilislæknisins og tjáð honum áhyggjur af heyrn eiginkonunnar sem hefði hrakað þó hann vissi ekki hve mikið. Til þess að mæla það ráðlagði læknirinn honum að tala til hennar stundarhátt, fyrst í um 15 m fjarlægð, næst í 10 m svo í 5 m og að lokum rétt hjá henni hefði hann ekki þegar fengið ein- hver viðbrögð. Guðmundur sagð- ist hafa fylgt leiðbeiningunum, hálfkallað til hennar spurninguna um hvað væri í matinn en engin svör hafa fengið þangað til hann stóð rétt aftan við hana. Þá snýr hún sér snögglega við og segir: „Í fjórða og síðasta sinn Guðmundur. Það er kjúklingur í matinn!“ Ég vil að lokum votta Þórunni og fjölskyldu samúð mína. Við höf- um öll orðið fyrir miklum missi. J. Ingimar Hansson. Mér var mjög brugðið, þegar Magnús, sonur Guðmundar, hringdi og sagði mér andlát hans. Ég vissi að vísu, að hann gekk ekki heill til skógar, en hann bar sig svo vel, þegar við leikfimis- félagarnir hittumst heima hjá þeim Þórunni fyrir rétt rúmum tveim mánuðum að það hvarflaði ekki að mér, að hann ætti svo stutt eftir sem raun bar vitni. Kom í ljós, að hann hafði þá þegar verið kominn á sjúkrahús, en fengið sérstakt leyfi til þess að skreppa heim eina kvöldstund, til þess að geta tekið á móti okkur. Og hann lét ekki deigan síga þetta kvöld, þó augsýnilega sárþjáður væri, með stokkbólgna hönd í fatla, en skemmti okkur eins og hans var vani með gamanmálum á sinn ein- stæða og hógværa hátt eins og ekkert amaði að. Sannkölluð hetja, sá maður. Þarna kom í ljós hans sterki persónuleiki, óbilandi seigla og harka við sjálfan sig og að gefast aldrei upp, hvað sem í móti blési. Við leikfimisfélagarnir kveðj- um góðan dreng og vin með sökn- uði, og minnumst ótal ánægju- stunda með Guðmundi og Þórunni með miklu þakklæti. Samúð okkar eru öll með henni og börnunum. Blessuð sé minning Guðmundar Guðbjarnasonar. Valdimar Örnólfsson. Fallinn er frá góður vinur okk- ar. Kynntumst við honum fyrir um 20 árum og tókst á milli okkar góð vinátta. Við sáum fljótt að góð ástæða fyrir að hittast, og að eiga góðar stundir var að við þrenn hjónin áttum öll heitavatnspotta, af ýmsum gerðum. Þróaðist þessi vinátta fljótt í að koma saman jafnvel af litlu tilefni í einhverjum af þessum pottum, spjalla, og hafa gaman. Að sjálfsögðu með hverju ári sem leið var líka farið að elda mat áður en farið var í pottadýf- ingarnar. Oft á þessum samkom- um voru lesnar frumsamdar smá- sögur í léttum dúr. Guðmundur var á þessum árum formaður fé- lags okkar í Eyrarskógi og stóð sig að sjálfsögðu mjög vel, enda vel fróður um lög og reglur. Já, Guðmundur var hafsjór af fróðleik og gaman að hlusta á hans frá- sagnir og oft hjálpaði Þórunn okk- ar líka til við sögurnar. Eitt sinn fórum við hópurinn í skeljatínslu í Hvalfirði og eldað var af hjartans lyst. Annað skipti með nestiskörfu upp í gil Grjótár með ákveðnum og ógleymanlegum atvikum. Við munum minnast Guðmund- ar með söknuði og biðjum fyrir Þórunni og allri hans fjölskyldu. Hvíli hann í friði. Pottormarnir, Líney Björg, Sigurlína, Kristófer og Kristinn. MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 Elsku amma, nú hefur þú kvatt okkur. Ég finn fyrir miklum söknuði og þín er sárt saknað af okkur öllum. Ég trúi ekki að þú sért farin frá okkur en ég veit að þú ert komin á betri stað og það til afa sem hefur beðið eftir þér. Þú varst yndisleg amma, það var alltaf svo notalegt að koma til þín. Skipti engu máli hvort maður rétt kíkti við eða um veislu var að ræða. Þú vildir alltaf að öllum liði vel hjá þér og aldrei fór maður svangur frá þér. Alltaf var boðið upp á kræsingar og oftar en ekki var það eitthvað heimabakað sem þú hafðir hrist fram úr erminni. Þú varst góð húsmóðir, ég kemst ekki með tærnar þar sem þú varst með hælana. Þér fannst alltaf gaman að fá mig í heimsókn og síðan börnin mín þegar fjölskyldan stækkaði. Það sást alltaf á þér hvað þér fannst gaman að fá þau í heim- sókn. Gleymi heldur ekki hvað þú varst stolt þegar ég skírði Guðjón Leif í höfuðið á föður þínum, hon- um langafa. Svo þegar ég gifti mig fyrir þremur árum varst þú svo ánægð fyrir mína hönd. Það var svo yndislegt að fá að hafa þig með á þessum degi mínum. Guðjón Leifur og Ólavía Karen minnast þín sem yndislegrar langömmu. Þegar ég sagði þeim frá því að þú væri farin þá vökn- uðu margar spurningar hjá þeim. Svo sagði Guðjón Leifur en þá kemur „amma“ ekki í afmælið mitt og svo komu tár hjá honum. Ég svarði honum nei en þú værir með okkur og myndir fylgjast með okkur úr fjarlægð. Ég man líka eftir því þegar maður fékk að gista hjá þér og afa og þá gerðir þú kósí fyrir okkur á gólfinu inni í stofu með svefnpok- um og sængum. Og þá var jafnvel poppað. Og ekki má gleyma kvöldkaffinu. Þið afi fenguð ykkur kaffi og bakkelsi og við fengum okkur af bakkelsinu. Jafnvel feng- um að dýfa einum sykurmola í kaffið. Svo fannst mér aldrei leið- inlegt að fá melónu hjá þér, þú hafðir stráð smá sykri yfir hana, eða fá epli í rjóma. Þegar ég nýtti tækifærið til að heimsækja þig í matartímanum mínum á sínum tíma breyttir þú meira að segja til og hafðir ekki fisk því þú vissir að ég var að forðast fiskinn í vinnunni. Fyrir mér var ákveðin jólahefð að koma til þín á jóladag og þú bauðst fjölskyldunni þinni allri í mat uppúr hádegi, alltaf var það hangikjöt, síðan ís og frómas í eft- irrétt. Ekki leið á löngu áður en heitt súkkulaði með rjóma og kök- ur voru bornar fram. Ég hjálpaði þér ávallt með þetta eftir að ég varð nógu stór. Þetta fannst mér tilheyra jólunum að koma til ykk- ar afa. Hvíldu í friði, elsku amma. Stella Rún, Einar Birgir og börn. Elsku besta amma mín. Þú veist ekki hversu erfiður dagurinn í gær var þegar ég fékk símtalið að þú værir farin frá okkur. Farin á betri stað, farin til að vera með ástinni þinni, farin til að geta hugsað skýrt aftur, andað eðlilega og hlaupið um eins og þegar þú varst yngri. Ég get ekki hætt að gráta því ég er alltaf að hugsa um þig og hversu mikið ég sakna þín. Þú sagðir mér oft margar eft- irminnilegar sögur. Ein góð var Stella Þórdís Guðjónsdóttir ✝ Stella ÞórdísGuðjónsdóttir fæddist 15. apríl 1928. Hún andaðist 2. maí 2017. Útför Stellu Þór- dísar fór fram 19. maí 2017. um þig og afa og hvernig þið kynntust. Fyrst sem ferming- arbörn og síðar eltist hann við dömuna og það gekk eftir og úr varð þetta stór- skemmtilega hjóna- band sem náði yfir 60 ár. Þið voruð gestris- in. Alltaf boðið upp á kaffi og bakkelsi, því ekki máttum við fara frá þér án þess að fá eitthvað gott í gogginn. Þannig sátum við öll við eldhúsborðið og spjölluðum um hvað var í gangi í lífi hvers og eins og fengum okkur nýbakaða köku. Uppáhaldið mitt var samt brauð með skinku og osti sem sett var í örbylgjuofninn og bragðaðist hvergi jafn vel og hjá þér, amma. Þitt brauð var einfaldlega best. Uppáhaldshefðin mín var þeg- ar við komum öll saman heima hjá þér og afa á jóladag og hittum alla fjölskylduna, borðuðum hangikjöt og daimís og fengum svo heitt súkkulaði og spiluðum á spil. Núna um jólin kom ég heim í jólafrí með nýju hlustunarpípuna mína og blóðþrýstingsmælinn og ætlaði að fá að æfa mig á þér. Það var nú skemmtilegt, því þú sagðir alltaf ég hef ekki farið í neina að- gerð, ég hef ekki brotnað og margt annað sem hafði nú komið fyrir og ég vissi af. Síðan spurði ég þig um verki og hvort þú værir með verki þessa stundina og þú sagðir bara nei, mér líður bara ágætlega, þó ég vissi að þú værir með verki en kvartaðir aldrei yfir þeim. Einhvern veginn finnst mér eins og það hafi verið skrifað í stjörnurnar að ég ætti að koma óvænt heim til Íslands um páskana, svo ég fengi að kveðja þig, knúsa og kyssa áður en þú færir. Ég kom heim á föstudags- kvöldi og morguninn eftir var ég mætt heim til þín til að koma þér á óvart og hjálpa mömmu að gefa þér lyfin og fá að knúsa þig. Á þessum tíma varstu orðin voða- lega slöpp og það var erfitt að sjá þig svona. Og nokkrum dögum síðar varstu komin á hjartadeild- ina, þar sem ég fagnaði 89 ára af- mælinu þínu með þér. Þegar ég kvaddi þig áður en ég fór út, datt mér ekki í hug að þetta væri í síðasta sinn sem ég fengi að tala við þig, hlæja með þér, horfa á þig, kyssa þig og faðma. Ekki datt mér í hug að myndirnar sem ég tók af okkur þennan dag væru síðustu myndirnar sem ég myndi eiga af okkur saman. Þú veist ekki hvað ég er ótrúlega þakklát, ótrú- lega heppin, ótrúlega hamingju- söm að hafa fengið að njóta þess- ara síðustu augnablika og síðustu minninga með þér þessa páska- viku. Falleg, ástrík, barngóð, dýravin- ur mikill, jákvæð, frábær, skemmtileg, brosmild eru nokkur af mörgum lýsingarorðum sem lýsa hversu einstök persóna þú varst. Elsku Stella amma mín, ég óska þér alls hins besta hinum megin og hlakka til að sjá þig eftir mörg mörg ár. Þitt barnabarn Sandra Dís. Dropi fellur himni að ofan, dimm skýin umlykja allt. Félagarnir flykkjast og berja kofann. Skyndilega er allt svo kalt. Brostin sumarfyrirheit, droparnir fremur streyma. Drungi heltekur þennan reit. Best er sumrinu að gleyma. Það verða engir sólargeislar, engan heiðskíran himin að sjá. Myrkrið gleðina beislar, fátt er nú að dá. Það verður ekkert fuglatíst, engin sumargola. Eitt er fyrir víst, veturinn verð áfram að þola. Loks er létta fer til, úrhellinu að linna. Glittir þá í nýjan hyl, meðal manna minna. Þótt líði árin, droparnir streyma enn. Gróa aldrei sárin, ekkert verður eins og í den. (Hafsteinn Dan 2. maí 2017 dánardag Stellu Þórdísar.) Með blik í augum, útgeislun og hjartahlýju brosir amma hinum megin við eldhúsborðið og segir: „Æðislegt, heldurðu að það sé lúx- us.“ Dýfir sykurmola í kaffi, sting- ur upp í sig og sýgur, grípur með báðum höndum um bollann og hlustar af athygli meðan ég segi henni nýjustu tíðindi. Afi byrjar á sögu sem ég hef heyrt nokkrum sinnum og amma áreiðanlega hundrað sinnum en hún hlustar af áhuga eins og hún sé að heyra bráðskemmtilega frásögnina í fyrsta sinn. Síðan hoppar hún inn í og þau skiptast á sögubútum í fullkomnum takt. Þau eru bestu vinir, óaðskiljanleg og milli þeirra er djúpstæð ást. Árum seinna við sama eldhús- borð spyr amma frétta, segist vera stolt af barnabarninu. Afi er farinn og söknuðurinn er mikill en amma lætur ekki á sér sjá. Hún er sterk, hefur farið í gegnum ým- islegt í lífinu án þess að kveinka sér; fengið lungnabólgu sem ung- lingur að vinna í ókyntri verslun meðan stjórinn yljar sér við ofn bakatil. Við rifjum upp þegar ég gisti hjá þeim og amma segir frá því hvernig afi gekk á eftir henni. Sjaldnast segir hún þó sögur af sér eða hreykir sér, heldur sýnir okkur áhuga og umhyggju. Hún er mikil fjölskyldumanneskju, ná- in börnum og barnabörnum sín- um. Segist vera ofboðslega rík og heppin að eiga svona myndarlega fjölskyldu. Góðmennskan, gest- risnin og hjálpsemin birtist í ásjón og öllu hátterni hennar. Áfram ræðum við daginn og veginn. „Endilega fáðu þér meira,“ segir amma og otar kleinum og drykkjarföngum að mér. „Varstu í útlöndum, en gaman,“ segir hún. Augnabliki síðar spyr hún mig sömu spurningar og ég fer yfir frásögnina í þriðja sinn. Hún er farin að rifja meira upp hvar hún sleit barnsskónum og sögur af æskuvinkonunum. Þótt minnið sé ekki það sama og það var hafa persónukostirnir haldið sér. Hlýj- an, væntumþykjan til fjölskyld- unnar og dýra, kærleikur til allra Guðs barna og óþrjótanleg upp- spretta stuðnings, hvatningar, at- hygli og ástar á niðjunum er enn fyrir hendi. „Ég á ekki margar eigur,“ segir amma „en ég er auð- ug, á eitthvað meira en gimsteina og perlur, ég á þig og hin barna- börnin mín,“ bætir hún við, brosir og virðist vera við það að springa úr stolti. Sit við sjúkrarúm, ræði við ömmu í hinsta sinn; kveð með tár- in í augunum. Elsku besta amma mín, að hafa átt þig að og fengið að kynnast þér er mér dýrmæt- asti fjársjóður. Manngerð þín verður mér ávallt til eftirbreytni og kærleikur þinn leiðarljós mitt. Hafsteinn Dan Kristjánsson. Það er komið að kveðjustund, elsku amma mín, og erum við fjöl- skyldan afar lánsöm að hafa feng- ið allan þennan tíma með þér. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Lítill ömmu- og afasnúður á svo margar góðar minningar úr Sólheimum. Að fá að gista hjá ömmu og afa og ræða um allt á milli himins og jarðar er ómetan- leg minning. Það voru nefnilega alltaf gæðastundir þegar við hitt- umst. Þegar fjölskyldan mín stækk- aði var alltaf gaman hjá börnun- um að hitta Stellu langömmu sem og langafa. Söknuðurinn er mikill en við vitum að þér líður nú vel hjá afa þar sem þið munuð vaka yfir okkur. Dýrmætar minningar og góð ráð munu fylgja okkur um ókomna tíð. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Atli Kristjánsson og fjölskylda. Það kvarnast smám saman úr vinahópn- um. Síðastur féll í valinn Einar Grétar Þórðarson. Á vináttu þeirra hjóna Thelmu og Einars hefur aldrei fallið skuggi. Við Helga sendum einlægar samúðar- kveðjur til Thelmu og fjölskyldunnar með þökk fyrir allar góðu stundirnar í gegnum tíðina. Pálmi Jónsson. Einar Grétar Þórðarson ✝ Einar Grétar Þórðarsson fæddist 17.desember 1933. Hann lést 30. apríl 2017. Útför Einars fór fram 5. maí 2017. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ELÍAS ARASON frá Valstrýtu í Fljótshlíð, til heimilis á Hrafnistu í Hafnarfirði, áður Hellisgötu 19, lést 17. maí og verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 23. maí klukkan 11. Guðný S. Elíasdóttir Guðm. Grétar Bjarnason Sigurður Ari Elíasson Sigríður Ágústsdóttir Erna Björk Elíasdóttir Gissur Skarphéðinsson barnabörn, langafabörn, langalangafabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA JENNÝ GUÐLAUGSDÓTTIR, áður til heimilis að Kirkjusandi 5, andaðist á Hrafnistu 15. maí. Útför fer fram 2. júní klukkan 15 í Neskirkju. Blóm og kransar afþakkast vinsamlegast, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík. Marta Hauksdóttir Brandur Gíslason Halla Hauksdóttir Baldur J. Baldursson Jenný Björk Sigmundsdóttir Haraldur Arason Birgir Smári Sigmundsson Lena Wanselius Svanur Þór Brandsson Lilja Ómarsdóttir Haukur Brandsson og langömmubörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐLAUGUR WÍUM, Hraunbæ 13, Hveragerði, lést á heimili sínu 10. maí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 23. maí klukkan 13. Hjördís Jónsdóttir Katrín Guðlaugsdóttir Kristján U. Nikulásson Hjörtfríður Guðlaugsdóttir Stefán Þór Sveinbjörnsson Hjördís Harpa Guðlaugsd. Tryggvi Hofland Sigurðsson barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.