Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 40

Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 Orð geta ekki lýst hversu sárt það er að þurfa að kveðja þig, elsku afi. Þú hefur alltaf verið stór hluti af okkar tilveru en nú er allt svo breytt. Þú kenndir okkur margt gott sem hefur mótað okk- ur í gegnum ævina og hafðir mik- ið fram að færa. Sýnin sem þú hafðir á lífið var ávallt jákvæð og skopskynið var aldrei langt und- an. Það var hægt að hlæja með þér í gegnum blítt og strítt, en þú kenndir okkur að taka hvorki lífið né sjálf okkur of alvarlega. Þið amma hefðuð fagnað 62 ára brúðkaupsafmæli ykkar á þessu ári. Það var yndislegt að upplifa ástríkt samband ykkar, sem var frábær fyrirmynd á svo marga vegu. Ást ykkar var sönn og ein- læg en hjá ykkur sáum við að hún getur varað að eilífu. Góðmennska þín skein í gegn- um allar þínar gjörðir og þú hefð- ir ekki getað verið betri fyrir- mynd, við höfum alltaf verið stolt af því að fá að kalla þig afa okkar. Þú varst glæsimenni sem hafðir gott lag á klæðaburði, hugsaðir vel um þig og varst reglusamur. Aldrei varðstu gamall heldur ávallt ungur í anda og lifðir lífinu eftir því. Akstri hafðir þú dálæti á og keyrsla landshluta á milli var ekkert vandamál, enda afbragðs bílstjóri. Þátttaka þín í félagslífi var mikil og þú varst reglulega á fundum hjá hinum ýmsu félags- og góðgerðarsamtökum til þess að láta gott af þér leiða. Þú eign- aðist nýja vini hvert sem þú fórst og á öllum aldri, enda alveg ynd- islegur. Jón Viðar Guðlaugsson ✝ Jón Viðar Guð-laugsson fædd- ist 29. nóvember 1934. Hann lést 5. maí 2017. Útför hans fór fram 19. maí 2017. Afahlutverkið lá vel fyrir þér og þú varst alltaf til í að hlusta og hjálpa okk- ur, fyrir það þökkum við þér. Þú sýndir okkur mikla hlýju og jákvæðni og við fundum að þú hafðir fulla trú á okkur hvað sem við tókum fyrir. Þessi stuðning- ur var ómetanlegur og merki um hversu hlýlegt hjartalag þú hafðir. Þú varst ekki síður yndislegur langafi en afi, langafabörnin kleipstu í kinnar og kreistir mjúka puttana. Það hló enginn meira að gullkornunum þeirra en þú, elsku afi. Hæfileika og dugnað skorti þig ekki en það er erfitt að hugsa til þess að þú munir ekki spila á pí- anóið fyrir okkur á ný. Þú varst einstaklega orðheppinn og þótti okkur gaman að lesa um prakk- arastrikin ófáu í bókunum þínum og hnyttnina í greinum sem þú skrifaðir. Vegna þessa var líka gott að eiga þig að þegar skila átti ritgerðum, sem þú last yfir fyrir hálft orð. Þú kunnir ógrynni af skemmtilegum sögum og hafðir einstaka frásagnarhæfileika. Með þeim heillaðir þú fólk hvert sem þú fórst, það var ekki hægt annað en að horfa á þig með stolti. Afi, þú lést gott af þér leiða, bættir lund og líf allra sem þig þekktu og varst sannur gleðigjafi allt til æviloka. Það væri hægt að skrifa endalaust en hér látum við staðar numið. Fyrir þig erum við endalaust þakklát, elsku afi okkar. Við kveðjum þig nú með söknuði. Þín, Jón Viðar, Nanna Ingibjörg og Elísa Rún. Í dag kveð ég yndislegan frænda. Ég er í rauninni ekki bara að kveðja besta föðurbróður í heimi, því með honum er ég að kveðja pabba minn líka. Já, skaparinn var rausnarlegur og gerði tvo eins, báðir eins og Jónsi, eða báðir eins og pabbi, hvernig sem á það er litið. Reynd- ar vildi Jónsi sem var klukkutíma eldri en pabbi, meina að skapar- inn hefði verið svo ánægður með verkið að honum hefði fundist nauðsynlegt að endurtaka það, hinsvegar var pabbi meira á því að skaparinn hefði ekki verið al- veg fullkomlega ánægður með verkið og sagt „ég hlýt að geta gert betur“. Sama hvað þeir þrættu um hvor væri betri þá voru þeir pínu eins, svo líkir að við systkinin tókum feil á þeim þegar við vorum lítil. Já, þegar pabbi dó þá lifði hann áfram í Jónsa, allir taktar og allt fas svo að manni þótti dýrmætt að eiga svona auka eintak. Jónsi tók líka hálfpartinn að sér að vera pabba og afa ímynd fyrir mig og börnin mín. Ef ég var að fara eitt- hvað þá fékk ég iðulega pabbaleg skilaboð frá honum á facebook „farðu nú varlega, Magga mín“. Því miður var langt á milli okkar, en að vita af honum var bara svo gott. Jónsi var einstakur maður, í minningunni var alltaf sól á Ak- ureyri (nú veit ég að hann er sam- mála mér), sumrin á Akureyri hjá Jónsa og Naningu voru yndisleg. Mér finnst meira að segja grasið og trén hafa ilmað einhvern veg- inn betur fyrir norðan og kartöfl- urnar verið betri. Það var líka svo mikil kátína, hann og pabbi voru miklir húmoristar og fundu sér allt til að metast yfir, hvort sem það var eigið ágæti eða veðrið fyr- ir norðan og sunnan. Jónsi elskaði fólkið sitt meira en allt, og vissi maður að ef hann væri væntanlegur suður þá væri von á stórfjölskyldunni líka. Ef maður vissi af Jónsa og Naningu í útlöndum þá var bókað að stór partur af fjölskyldunni væri þar líka. Hann Jónsi var einstaklega barngóður og var líka afalegur þegar kom að mínum börnum, vildi alltaf vita hvað væri að frétta af þeim og hvernig gengi. Í vetur þegar ég heimsótti hann á spít- alann fárveikan þá rétt opnaði hann rifu á augun og spurði mátt- farinn „hvar er skottan mín?“ og var hálfsvekktur að ég hefði ekki tekið litlu dóttur mína með mér að heimsækja hann nýkominn úr stórri aðgerð. Þegar ég kvaddi þá bað hann mig um að hafa hana með næst þegar ég kæmi og ég þorði ekki annað, og veikur eins og hann var þá varð hann samt að fá að klappa henni á kinnina, hún kallaði hann afa frænda. Þegar við biðum eftir sjúkraflugvélinni sem fór með hann norður aftur þá lofaði ég honum að við kæmum norður í sumar og ég hlakkaði svo til að hitta hann hressari, koma í graut og hlæja með honum. Ég veit að pabbi hefur tekið vel á móti bróður sínum og amma og afi himinlifandi að hafa lilla og brósa hjá sér. Þeir eru eflaust farnir að bralla eitthvað saman eins og þeim einum var lagið. Elsku Naninga, Svavar, Emma, Sigga og fjölskyldur. Ég veit að missir ykkar er mikill, ekki bara að kveðja lífsförunaut og pabba, tengdapabba og afa, heldur besta vin sem hægt er að hugsa sér. Minning hans er ljós í lífi okkar. Margrét Sigurjónsdóttir (Magga litla). Jón Viðar Guðlaugsson er lát- inn. Hann var besti vinur minn og ég held (og veit reyndar) að ég var meðal bestu vina hans. Við ræddum aldrei þessa vináttu en greindum hana báðir. Það voru einhverjir duldir strengir sem tengdu okkur saman þannig að úr varð einlæg og traust vinátta. Jón Viðar var mörgum kostum búinn. Ýmsa kostina fékk hann eflaust í vöggugjöf en aðra rækt- aði hann með sjálfum sér. Hann var afar fjölhæfur tónlistarmað- ur, góður rithöfundur, afbragðs ræðumaður, málamaður góður, fróðleiksbrunnur með afburða- gott skopskyn, gleðimaður, og góður félagsmálamaður. Þannig mætti lengi telja, og var nema von að maður laðaðist til vináttu við svona fjölbreytilegan mann. Það var ekki síst hárfínt skopskyn Jóns Viðars sem gerði okkur að bestu vinum. Það var reyndar annað sem dró okkur enn meira saman og gerði okkur að enn nán- ari vinum; einlæg trú á frelsarann Jesúm Krist. Þennan trúarneista ræktuðum við meðal annars í KFUM, Kristniboðssambandinu og Gídeonfélaginu. Nú mörgum áratugum síðar sé ég enn Jón Viðar fyrir mér í ræðustólnum í Kristniboðshúsinu Zíon á Akur- eyri þar sem hann talaði um orð Krists: „Frið læt ég eftir hjá yð- ur.“ Mér er enn í fersku minni eft- ir áratugi hve listilega Jón Viðar túlkaði þessi orð Krists. Jón Við- ar dró upp afar skýra mynd af þeim friði sem heimurinn gefur og friði Guðs, heimsfriði og Guð- sfriði. Þessi mynd af Jóni Viðari í ræðustóli að túlka Guðs orð mun fylgja mér ævilangt. Þannig var ræðumaðurinn Jón Viðar. Jón notaði bæði skopskyn sitt og þekkingu í daglegum sam- skiptum við fólk, og hversdags- legir hlutir urðu að ævintýrum við nærveru hans. Slíkum gleðimönn- um hlýtur að líða vel því þeir dreifa einnig gleði í kringum sig. Oftsinnis er ég þurfti að fara með gamanmál og hafði ekkert hand- bært þá var lausnin sú að hringja í Jón Viðar sem sagði mér margar gagnlegar skopsögur og gaman- málunum var bjargað. Þannig var skopsagnamaðurinn Jón Viðar. Við hjónin viljum með þessum línum kveðja vin okkar Jón Viðar Guðlaugsson. Þakka honum og hans ágætu fjölskyldu fyrir sam- fylgd, bæði veraldlega og trúar- lega. Jón Viðar gerði líf okkar innihaldsríkara og skemmtilegra. Hann var okkur góð fyrirmynd. Blessuð veri minning hans. Bjarni E. Guðleifsson. Hann var annálaður húmoristi, „legend“ og ákveðin ímynd Akur- eyrar í mínum huga. Skrifaði sög- una Fjörulalla sem kom út 1980 og sló í gegn hjá mér og fleirum. Sannar skáldsögur af uppátækj- um og bralli hans sjálfs en áður hafði hann sagt sögurnar á fund- um í KFUM þar sem hann var styrkur stólpi í mörg ár. Hann var í framvarðarsveit Gídeonfélagsins á Akureyri í ára- tugi og forseti Gídeonfélagsins á Íslandi 1983-1985. Árlega vitjaði ég Akureyrar sem framkvæmdastjóri Gídeon- félagsins hér á árum áður og fé- laganna þar sem áttu eftir að verða dýrmætir vinir mínir. Þau hjónin Jón Viðar og Kristjana eða Naninga eins og hann kallaði hana og við eftir honum, voru gjarnan snögg til að bjóða mér gistingu á sínu heimili, aka mér til og frá flugvelli og sjá til þess að ég fengi konunglegar móttökur á allan hátt í a.m.k. 12-14 ár. Jón Viðar var sérlega orðhepp- inn, sá eitthvað spaugilegt út úr öllum sínum ferðum, samskiptum, kringumstæðum eða atvikum. Sína leiftrandi kímnigáfu náði hann að nýta vel og blanda við hjartanlega einlæga trú á frelsar- ann sinn Jesú Krist, sem hann treysti og lagði líf sitt í hendurnar á. Hann var farvegur kærleika hans í öllu lífi og starfi svo eftir var tekið. Jón Viðar lék undir söng á pí- anó, gerði söngtexta, stjórnaði fundum og samverustundum á einlægan og alvörugefinn hátt í bland við svo fyndnar frásagnir að fólk grét, veinaði og veltist um af hlátri. Og svo átti hann líka þessa yndislegu konu, hana Naningu sem hann elskaði og dáði. Þau voru einstakar fyrirmyndir, svo jákvæð, skemmtileg og kærleiks- rík. Börnin þeirra þrjú, tengda- börn og barnabörn höfðu einnig forgang í þeirra hjarta. Höfðu þau yndi af að dást að þeim og flytja stolt fréttir af þeim á svo hlýjan og fallegan hátt. Jón Viðar var gæddur fágætri náðargáfu sem hreif fólk með. Þótt við hefðum kannski ekki ver- ið í eins miklu sambandi síðustu ár breyttist vináttan ekki. Umhyggj- an var ávallt til staðar. Þegar við hjónin vorum á ferð um Akureyri sumarið 2012 stökk Jónsi út úr bifreið sem hann ók, nánast á ferð, skildi bílinn eftir á miðri götu með opna hurð, hljóp á eftir mér og kallaði: Er þetta ekki Sigurbjörn? Það er fáheyrt í seinni tíð að svona einstakir Sig- urbirnir ganga hér um götur og hvað þá hér í úthverfunum. Fékk ég því næst að mæta brosinu hans kankvísa og njóta faðmlagsins góða sem ég hafði saknað. Djúp og varanleg vinátta er dýrmætari en veraldlegar viðurkenningar, og allt heimsins gull og silfur. Henni þarf ekki endilega alltaf að fylgja svo mörg orð heldur gagnkvæmt traust og raunveruleg umhyggja. Kærleikur, sem ekki yfirgefur. (Sigurbjörn Þorkelsson) Kæri vinur, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þú ert klárlega einn af póstunum í mínu lífi sem eiga sér sérstakan stað í mínu hjarta. Ég hlakka til að fá að hitta þig heima á himnum þegar þar að kemur, þar sem hamingjan býr. Þá verð- ur sko gaman. Elsku Naninga! Góður Guð blessi þig og alla þína. Takk fyrir vináttu ykkar Jónsa og einstaka hlýju alla tíð. Guð launi það allt og blessi. Ykkar vinur, Sigurbjörn Þorkelsson. Í dag kveðjum við góðan og trúfastan félaga. Jón Viðar var einn af stofnfélögum KFUM á Akureyri 1. desember 1951, þá ungur maður. Allar götur síðan var hann öflugur félagsmaður sem vann mikið og óeigingjarnt starf fyrir félagið. Það er eigin- lega sama hvar í starfinu er borið niður, allstaðar hafði Jón eitthvað gott fram að færa. Trúin á Guð var honum mikils virði og hann vildi deila þeirri blessun sem hún var honum, með samferðafólki sínu. Hann var einn af burðarstólpum barnastarfsins í mörg ár, studdi vel við unglinga- starfið og tók einnig þátt í fullorð- insstarfi félagsins. Jón Viðar var miklum gáfum gæddur, var glaðlyndur, orð- hnyttinn, snöggur til svars og góður rithöfundur. Átti hann ætíð skemmtilegar sögur og frásagnir í pokahorninu til að miðla á sam- verum og skipti engu hvort áheyrendahópurinn var börn, unglingar eða fullorðnir. Hann náði athygli allra með léttleika og húmor sem var honum í blóð bor- inn. Tónlist skipaði stóran sess í lífi hans og lék hann listilega á píanó. Í áratugi bar hann uppi tónlistar- líf í félaginu og ætíð tók hann vel í að spila á samkomum. Sumarbúðirnar okkar að Hóla- vatni fengu líka að njóta starfs- krafta hans, sérstaklega á upp- hafsárum sumarbúðanna. En umfram allt var Jón góður vinur og erum við þakklát Guði fyrir að hafa fengið að vera samferðafólk hans í gegnum lífið. Jón ávaxtaði vel þær talentur sem Guð fól hon- um og nú hefur hann gengið inn í fögnuð herra síns. Við vottum Kristjönu eigin- konu Jóns, börnum þeirra og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúð og biðjum Guð að blessa minningu hans. Fyrir hönd stjórnar KFUM og KFUK á Akureyri, Katrín Harðardóttir. Á björtum og hlýjum vordegi berast ótíðindin. Góður vinur er hrifinn á brott. Þótt hann hafi verið veikur í nokkurn tíma, þá einhvern veginn trúðum við því að hann myndi hrista veikindin af sér og hressast á ný. Skyndilega verður allt dimmt og kalt, fregnin nístir hjartað. Spurning leitar aft- ur og aftur á hugann. „Hvers vegna?“ Við vitum að þessari spurningu verður ekki svarað. Guð sér lengra en við skammsýn- ir menn og við trúum líka að góð- ur Guð leggi líkn með þraut. Leiðir fjölskyldna okkar hafa legið saman í nær 60 ár. Við vor- um nýlega flutt í hálfbyggt húsið okkar við Byggðaveg þegar Jón og Naninga keyptu neðri hæð í næsta húsi. Þeirra hús var þá ekki nema rétt fokhelt og við leit- uðum hvert til annars með aðstoð og góð ráð og einnig til hjónanna Möggu og Þórodds sem seinna fluttu á efri hæðina hjá Jónsa og Naningu. Það kom fljótt í ljós að þarna höfðum við ekki eingöngu eignast góða granna, heldur einn- ig góða vini fyrir lífstíð. Sú vinátta hefur síðan gengið í erfðir. Börnin okkar hafa stundum talað um að þau eigi þrjú sett af foreldrum því alltaf gátu þau leitað til þeirra ef við vorum ekki á staðnum. Þessi vinátta er dýrmæt og minning- arnar ylja hugann, því það var alltaf glatt á hjalla þegar hópur- Ástkær eiginkona, móðir og tengdamóðir, ARNFRÍÐUR HANSDÓTTIR WIUM, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 12. maí. Útför hennar fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 23. maí klukkan 13. Stefán Rúnar Jónsson Ingi Hrafn Stefánsson Jóna Bára Stefánsdóttir Antonio Fulignoli Ástkær eiginmaður, faðir og afi, GUNNAR RAFN GUÐMUNDSSON vélsmiður frá Patreksfirði, Hálsaseli 37, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 10. maí. Útförin fer fram í Áskirkju miðviku- daginn 24. maí klukkan 15. Guðrún Jónsdóttir Jóhanna Gunnarsdóttir Jón Gunnarsson barnabörn Okkar ástkæri GUNNAR EIRÍKSSON, Grjóti, Þverárhlíð, andaðist í Brákarhlíð, Borgarnesi, miðvikudaginn 17. maí. Hann verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugardaginn 27. maí klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Brákarhlíðar, Borgarnesi. Sjá heimasíðu: www.brakarhlid.is. Guðjón B. Karlsson og fjölskylda Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HRÖNN JÓNSDÓTTIR, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, lést á líknardeildinni í Kópavogi 11. maí. Sálumessa verður sungin frá Kristskirkju, Landakoti, þriðjudaginn 23. maí klukkan 13. Jóna Pálína Grímsdóttir Karl Rútsson Magnús Sveinn Grímsson Chaweewan Tumporu og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HRAFNHILDUR STELLA EYJÓLFSDÓTTIR, áður Grettisgötu 12, Reykjavík, lést 9. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmunda M. Sigurðardóttir Eyjólfur Júlíus Sigurðsson Margrét Hjálmarsdóttir Hulda Guðbjörg Halldórsd. Magnús Guðmundsson Hjördís Rósa Halldórsdóttir Jón Atli Brynjólfsson og ömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.