Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 43

Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 Elsku Sigga, Mábil, Siggi, Elín og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum, það yrði margt, ef telja skyldi það. Í lífsins bók það lifir samt í minnum, er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita stóra hjarta þá helstu tryggð og vináttunnar ljós er gerir jafnvel dimma vetur bjarta, úr dufti lætur spretta lífsins rós. (Margrét Jónsdóttir) Jón og Ásborg. Már vinur okkar hefur nú lokið langri og strangri göngu og er ef- laust hvíldinni þakklátur. „Már á Geysi“, eins og hann var oft nefndur, var lengi íþróttakennari og síðar byggði hann, af mikilli eljusemi og blindri trú á framtíð ferðaþjónustunnar, ásamt hinni harðduglegu fjölskyldu sinni upp stórveldi í kringum fjölskyldu- svæði sitt, Geysi í Haukadal. Það er lyginni líkast hversu miklu hef- ur verið áorkað á staðnum og enn meira er í bígerð með opnun glæsihótels á staðnum. Hefði ver- ið eining til staðar á meðal allra þeirra, sem eiga land innan girð- ingar við Geysi þá væri allt svæðið orðið í stíl við þann glæsileik sem Már og fjölskylda hafa byggt upp „utan girðingar“. Skammsýnin ræður miklu, því miður, á Íslandi og tefur fyrir framförum. Vonandi fara menn nú að taka til hendinni „innan girðingar“ við Geysi og koma svæðinu til bjargar. Már skildi þetta allt saman, en hristi oft hausinn yfir skammsýn- inni hjá mörgum varðandi upp- byggingu „innan svæðis“. Már glímdi við erfið veikindi um margra ára skeið en hélt sínu striki og var eilíflega á ferðinni, akandi traktorum, skurðgröfum, bifreiðum af öllum tegundum og gerðum. Kom þó stundum fyrir að bifreiðar hans voru ekki alltaf á veginum, enda erfiðleikum bundið að halda þeim þar vegna veikind- anna. Már sá að það hlyti að ganga betur með mótorhjólin og var hann meistari í að aka þeim og átti nokkur, bæði tví- og þríhjóla. Eitt sinn kem ég upp að Geysi og þá kemur Már þjótandi niður Biskupstungnabraut á flugvél, eða flygildi, sem er með öflugan hreyfil aftan á. Menn spenna sig fasta í sæti og svo er þust af stað og upp í loft. Már snarhemlar flygildinu hjá mér og réttir mér aukahjálm og segir mér að setjast aftan á og koma með. Ég gerði auðvitað eins og foringinn sagði og spennti mig fyrir aftan hann og svo var allt sett af stað og vélin komin í hæsta snúning með þess- um geysilega hávaða og svo var öllum bremsum sleppt og við þustum fram hjá Geysissjoppunni á mjög miklu hraða og þá fóru að renna á mig tvær grímur. Ég hugsaði með mér: „Hvað í ósköp- unum er ég nú kominn út í? Er ég virkilega að fara að fljúga um upp- sveitir Biskupstungna með Má við stjórnvölinn?“ Ég kallaði til Más og bað hann í guðanna bænum að stöðva flygildið áður en við færum á loft og hristi hann aðeins til. Þá sló hann úr hraðanum og snéri sér skellihlæjandi að mér og benti til beggja hliða og sagði: „Sjáðu, ég er ekki með vængina, Sigga leyfir mér ekki að hafa vængina.“ Ég hef aldrei fallið í yfirlið af stressi nokkurn tíma um ævina en þarna var spennufallið ansi mikið og munaði litlu að ég dytti í götuna af stressi. Svona var Már, skemmti- legur og glettinn og dreif hlutina áfram og naut þess að lifa. Ég heimsótti hann nokkrum sinnum á Sjúkrastofnun Selfoss en þar hafði hann prýðisaðstöðu og mjög góða umönnun. Már er núna væntanlega kominn með vængina og farinn að þjóta um uppsveit- irnar á englavænum vélfákum. Ég þakka fyrir samfylgdina og sendi frú Sigríði, börnunum og öllum aðstandendum og vinum mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Friðrik Á. Brekkan. ✝ Erna Svav-arsdóttir fædd- ist á Blönduósi 27. október 1945. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Ísa- fold í Garðabæ 29. apríl 2017. Foreldrar henn- ar voru Guðmann Svavar Agnarsson verkamaður, f. 22. febrúar 1912, d. 19. júlí 1978, og Þóra Þórðardóttir saumakona, f. 10. febrúar 1915, d. 16. júlí 2005. Systir Ernu er Guðrún Agnes Svavarsdóttir, f. 26. mars 1948. Hinn 8. ágúst 1967 giftist Erna Stefáni B. Steingrímssyni, f. 11. janúar 1938, d. 10. júlí 2015. Dóttir þeirra er Þóra Stef- ánsdóttir, f. 1. nóvember 1968. Börn hennar og Inga Guðjóns- sonar, fyrrv.sambýlismanns, eru Kolbrún Erna, f. 24. mars 2001, og Bergvin Logi, f. 11. júní 2005. Erna sleit barnsskónum á Blönduósi. Hún byrjaði ung að vinna eins og tíðkaðist þá, eða strax að loknu skyldunámi og námi í Kvennaskól- anum á Blönduósi. Hún vann þá á Hér- aðshæli A- Húnvetninga og Hótel Blönduósi. Síðar einnig á Hótel Borgarnesi. Í fram- haldi af því flutti hún til Reykjavíkur og vann þá bæði við afgreiðslustörf í kjötbúð Guð- laugs Guðmundssonar og umönnunarstörf á Kleppi. Frá árinu 1967 bjó Erna á Blönduósi og vann þar bæði við þjónustu- og skrifstofustörf, m.a. hjá Kaupfélagi Húnvetninga og Vél- smiðju Húnvetninga. Erna átti svo og rak blómabúðina Bæjar- blómið á Blönduósi og sinnti því starfi af áhuga og gleði allt þar til hún flutti til Reykjavíkur árið 1997. Hún hóf þá störf á sauma- stofunni í Kringlunni og vann þar til hún hætti störfum 65 ára. Útför Ernu hefur farið fram í kyrrþey. Elsku mamma, það er erfitt að kveðja þig sem hefur fylgt mér alla ævi. Móðir og besta vinkona í senn. Missirinn er mikill og sárt er að hugsa til þess að sá tími sem við fengum notið saman sé liðinn. Ég er afar þakklát fyrir þann tíma og það veganesti sem þú gafst mér. Þú varst mitt sterka bakland, ávallt til staðar fyrir mig og börnin mín. Þú varst ein- staklega traust, umhyggjusöm og drífandi. Aldrei féll þér verk úr hendi. Einstaklega vandvirk og lagin í höndunum. Þau eru ófá listaverkin sem eftir þig liggja. Hannyrðir og garðyrkja voru helstu áhugamál þín. Þú undir þér vel í garðinum þínum fallega á Blönduósi og við störf í Blóma- búðinni þinni síðustu árin ykkar pabba á Blönduósi. Undanfarin ár, á meðan heilsan leyfði, leið þér best við að dunda hér í garð- inum hjá mér. Ræktaðir matjurt- ir og hlúðir að blómum og trjám sumarlangt. Börnin mín voru ein- staklega heppin að eiga þig fyrir ömmu og þú gafst þig alla í umönnun þeirra. Þau voru þér allt. Þú varst ávallt til reiðu fyrir þau að loknum skóladegi, tókst á móti þeim, nærðir þau með nær- veru þinni, hlýju og umhyggju. Smekkleg varstu og snyrtileg í alla staði og fylgdist vel með tísk- unni. Vissir alltaf hvað var ný- móðins. Gjafmildi þín var tak- markalaus, þú komst ávallt færandi hendi. Þú fylgdist líka vel með málefnum líðandi stund- ar allt til enda. Kunnir að spyrja réttu spurninganna og hafðir áhuga á því hvernig fólki reiddi af. Ákveðin varstu, lausnamiðuð og fljót til svara. Síðustu árin voru þér vissu- lega erfið og mótdræg og þú þurftir hvað eftir annað að klífa margar brattar brekkur. Með einstakri þrautseigju tókst þér að gera það besta úr aðstæðum. Aldrei kvartaðir þú þó svo að lík- amleg heilsa væri bágborin. Stóðst hvern storminn á fætur öðrum af þér með reisn. Síðasta ár var þér og okkur öllum mjög erfitt þar sem þú þurftir að flytj- ast að heiman og dvelja langdvöl- um á sjúkrastofnunum þar sem hinn skæði sjúkdómur var farinn að herja svo mjög á þig. Elsku mamma við héldumst hönd í hönd allt til enda. Ég kveð þig með sorg í hjarta, en hugga mig við að nú ertu loksins frjáls og komin til pabba sem ég veit að tók á móti þér í faðminn sinn hlýja. Takk fyrir allt, elsku mamma. Fyrir umhyggjuna, hvatn- inguna, stuðninginn og ástina. Þín dóttir, Þóra. Elsku amma. Ég á ótrúlega erfitt með að trúa því að þú sért búin að kveðja okkur. Það er svo sár tilfinning. Ég er samt heppin að eiga marg- ar og fallegar minningar um þig. Ég hefði ekki getað átt ynd- islegri ömmu en þig, en þú varst líka mín besta vinkona. Ég er svo þakklát fyrir tímann sem við átt- um saman. Okkur leið alltaf vel hvorri í návist annarrar, en við vorum að mörgu leyti líkar. Þú hefur kennt mér svo ótrúlega mikið í lífinu og varst alltaf til staðar fyrir mig. Þú varst hlý, hjálpsöm, gjafmild og umhyggju- söm. Ég á fáar betri minningar en þegar við föndruðum eða bök- uðum saman. Ég naut þess líka svo mikið að spjalla við þig og þegar þú sagðir mér sögur frá Blönduósi. Þessar stundir eru mér mjög kærar. Ég veit að þú verður alltaf hjá mér og ég elska þig óendanlega mikið. Ég geymi minninguna um þig í hjarta mínu alla tíð. Þín ömmustelpa, Kolbrún Erna. Elsku amma mín, alltaf hefur þú verið mér svo ótrúlega góð. Ég á margar yndislegar minn- ingar með þér eins og þegar ég kom heim eftir skóla og þú tókst á móti mér og vinum mínum. Alltaf bauðstu okkur upp á eitt- hvert góðgæti eins og ávexti og kleinuhringi. Þú varst alltaf með allt á hreinu. Alltaf tilbúin með íþróttadótið mitt og þegar ég ætl- aði út þá sagðir þú alltaf: „Klæddu þig nú vel, Bergvin minn.“ Amma, þú varst alltaf prjón- andi, prjónaðir oft þægilega vett- linga fyrir mig og Kollu og þegar það kom gat á buxurnar mínar þá vissi ég alveg í hvern ég átti að hringja. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért búin að kveðja okkur, elsku amma mín. Þú varst yndisleg, falleg, góð og hjálpfús og varst mér svo kær. Ég elska þig, amma. Þinn ömmustrákur, Bergvin Logi. Erna Svavarsdóttir HINSTA KVEÐJA Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Blessuð sé minning þín. Þín systir Agnes. Smáauglýsingar Bækur Bækur - rýmingarsölu lýkur um helgina 50% afsláttur Kolaportið Ný söfn - gott úrval* Stóri bóksalinn Þorvaldur Opið laugardag og sunnudag kl. 11- 17 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Sumarbústaðalóðir til sölu í Vaðnesi Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með aðgangi að heitu og köldu vatni í vinsælu sumarhúsahverfi í landi Vaðness í Grímsnes- og Grafnings- hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár. Allar nánari upplýsingar gefur Jón í síma 896-1864 og á facebook-síðu okkar: vaðnes-lóðir til sölu. Rotþrær og heitir pottar Rotþrær-heildarlausnir með leiðbeiningum um frágang. Ódýrir heitir pottar-leiðbeiningar um frágang fylgja. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Til sölu Verslun Trúlofunar- og giftingarhringar í úrvali Auk gullhringa eigum við m.a. hvíta- gull, silfur, titanium og tungstenpör á fínu verði. Demantar og vönduð arm- bandsúr. ERNA, Skipholti 3, s. 5520775, www.erna.is Ýmislegt Vélar & tæki Vinnulyftur ehf Eigum á lager nýjar skæralyftur frá Skyjack og bómulyftur frá Niftylift. eyvindur@simnet.is, sími 774 2501 www.skyjack.is. Hjólbarðar Sumardekk til sölu Ný Continental sumardekk til sölu 2215/55 R17. Verð 60.000. kr Uplýsingar í síma 820-3725 Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald VIÐHALD FASTEIGNA Lítil sem stór verk Tímavinna eða tilboð ℡ 544 4444 777 3600 jaidnadarmenn.is johann@2b.is  JÁ Allir iðnaðarmenn á einum stað píparar, múrarar, smiðir, málarar, rafvirkjar þakmenn og flísarar. Viðhalds- menn Tilboð/tímavinna s. 897 3006 vidhaldsmenn.is vidhaldsmenn@gmail.com Hreinsa þakrennur ryðbletta þök og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Lagersala Innihurðir Vandaðar Þýskar innihurðir með körmum. Þykktir: 10 cm, 12 cm og 14 cm. Hvítar, Dekor eik og eikar spónn. Allt á að seljast. Uppl. í S: 664 - 9471 og 595-1910. Til sýnis Skútuvogi 6. Vestri endi. Þjónustuauglýsingar Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1390 eða á augl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.