Morgunblaðið - 20.05.2017, Qupperneq 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
Kristín Ósk Hlyns-dóttir, upplýs-inga- og skjala-
stjóri á Veðurstofunni, á
50 ára afmæli í dag. Hún
ætlar að halda veislu í
dag í salnum á Veður-
stofunni og býður til sín
vinum og ættingjum.
„Starf mitt felst að-
allega í skjalastjórn fyrir
Veðurstofuna en það fel-
ur í sér að halda utan um
allar upplýsingar sem
okkur ber að vista sam-
kvæmt lögum en Veður-
stofan fylgist ekki bara
með veðrinu heldur nátt-
úrunni og allri nátt-
úruvá. Við erum í mikl-
um samskiptum við
stofnanir, innlendar sem
erlendar.
Ég sé líka um bóka-
safnið og upplýsinga-
þjónustu fyrir starfs-
menn en margir
fræðimenn sem þurfa að
afla upplýsinga vinna hérna. Ég er einnig farin að sjá um Twitter-síðu
Veðurstofunnar og veit því núna miklu betur en áður hvernig náttúr-
an hagar sér.“
Kristín Ósk er að ljúka skemmtibátaprófi, er búin með það skrif-
lega og tekur verklega prófið í júní. „Ég á 22ja feta seglskútu með
stjúpbróður mínum og við geymum hana í Snarfara.
Ég hef verið að sigla frá því ég var tíu, tólf ára. Ég byrjaði í Sigl-
ingaklúbbi Garðabæjar og fór að sigla með mömmu og pabba á stórri
seglskútu, en þau voru miklir siglarar. Við sigldum um Ródos og fleiri
grískar eyjar og einnig um Sikiley. Pabbi lést í fyrra og þá ákvað ég
fá mér réttindi. Svo er bara að æfa sig og rifja þetta upp í sumar, það
er langt síðan ég hef séð um bát alveg sjálf og hlakka til að gera það,
fer jafnvel eitthvað að veiða.
Svo var ég að flytja og er að koma mér fyrir með fjölskyldunni. Er
komin með garð og ætla að dútla í honum í sumar og svo prjóna ég og
hekla mikið og sinni fjölskyldunni og vinum.“
Kristín Ósk er í sambúð með Unnþóri Helga Helgasyni, verkstjóra
hjá Loftorku. Þau eiga samtals sjö börn, Kristín Ósk á þrjú og Unnþór
fjögur.
Skjalastjórinn Kristín Ósk Hlynsdóttir.
Rifjar upp gamla
takta á seglskútunni
Kristín Ósk Hlynsdóttir er fimmtug í dag
Þ
órarinn Tyrfingsson
fæddist í Reykjavík
20.5. 1947 og ólst þar
upp. Hann varð stúdent
frá MR 1967 og lauk
embættisprófi í læknisfræði frá HÍ
1975.
Þórarinn var heilsugæslulæknir á
Hvammstanga 1977-79, hefur verið
læknir hjá SÁÁ frá 1979 og unnið
að skipulagningu meðferðarmála
þar frá 1980. Hann var yfirlæknir á
Sogni 1980-86, í Vík frá 1986, á
Staðarfelli frá 1980, á Vogi frá 1984
og yfirlæknir á stofnunum SÁÁ
samkvæmt breyttri skipan frá 1990
og stjórnarformaður SÁÁ 1998-
2012.
Þórarinn sat í stjórnskipaðri
nefnd um úrbætur í áfengisvörnum
1984-86. Hann var kosinn formaður
SÁÁ 1988.
Þórarinn lék handbolta með
meistaraflokki ÍR 1964-75 og 1983,
var í unglingalandsliðinu í
handbolta 1965 og í stjórn
handknattleiksdeildar ÍR 1964-70
og formaður hennar 1981-82.
Nú fer að styttast í starfslokin,
Þórarinn. Ertu farinn að gera áætl-
anir um nýjan kafla æviskeiðsins?
„Ó, nei. Þetta er eins og hver
önnur tímamót og ég hef svo sem
áður staðið á tímamótum í lífinu,
eins og reyndar flestir sem komnir
eru á minn aldur.
Maður sér aldrei árin fyrir og ég
er ekkert að gera mér neina rellu
út af því sem við tekur. Ég hef eng-
ar áhyggjur af því að mig skorti
verkefni, né heldur áhyggjur af því
að ég þurfi að koma svo og svo
miklu í verk. Við reynum flest að
vera ærleg og koma að gagni en
síðan lýtur hver og einn dómi sög-
unnar.
Ég hef reyndar alltaf hreyft mig
mikið, reynt eins og Grikkirnir til
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir hjá SÁÁ – 70 ára
Í vinnunni Þórarinn hefur starfað á vegum SÁÁ frá 1979. Hér er hann í góðum hópi frábærs samstarfsfólks á Vogi.
Hefur fært þúsundum
nýtt líf og nýja von
Hress Þórarinn með eiginkonu
sinni, Hildi Guðnýju Björnsdóttur.
Ljósmynd/Spessi
Reykjavík Sigurgeir
Logi Karlsson fædd-
ist á Landspítalanum
klukkan 02.46, 3. júní
2016. Hann vó 4.446
g og var 52 cm langur.
Foreldrar hans eru
Karl Ásgeir Geirsson
og Petrea A.
Ásbjörnsdóttir.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Ármúli 8, 2. hæð - 108 Reykjavík
Sími: 414-4466 - www.draumahus.is
Föst söluþóknun - Allt innifalið *
399.900
Föst söluþók - Allt innifalið
AnnaTeitsdóttir
Nemi til löggildingar
787-7800
Lárus Óskarsson
Fasteignasali
823-5050
*
* gildir fyrir eignir
undir 60.000.000 kr.
í einkasölu.