Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 53
DÆGRADVÖL 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
HERMOD
SVEFNSÓFI
SVEFNFLÖTUR 160x200
Einnig til í gráyrjóttu áklæði
kr. 269.800
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er ekki alltaf svo að hlutirnir fari
nákvæmlega eins og þeim er ætlað. Leggðu
af þessa vitleysu og notaðu fjármuni þína í
annað. En eins og þú veist er stundum ekkert
að njóta.
20. apríl - 20. maí
Naut Fólk sem hagar sér heimskulega veldur
vandræðum, en reyndu sjá að fyndnu hliðina
á því. Farðu að með öllu að gát í akstri, göngu
eða hjólreiðum til að vernda sjálfan þig og
aðra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú getur ekki velkst í vafa lengur
heldur verðurðu að taka af skarið. Vertu
hreinn og beinn en ekki of yfirþyrmandi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú ertu tilbúinn til þess að tala um
tilfinningar þínar við þá sem skipta þig máli.
Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila
og það er þér í hag að halda öllu í skefjum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú metur sjálfa/n þig eftir gildismati
þínu eins og flestir. Haltu fast við áform þín
og láttu skoðanir annarra ekki hafa áhrif á
þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hláturinn lengir lífið svo það er ágætt
að hafa gamanmál á takteinum þegar það á
við. Fjölskyldulífið er í fyrirrúmi hjá þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ákaflega gefandi að aðstoða aðra
þegar aðstæður eru til þess. Afsakanir heyr-
ast áður en dagur er á enda og þannig greið-
ist úr flækjunum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ævintýraþrá þín kemst alltaf í
hámark í nálægð vissrar manneskju. Umbæt-
urnar munu bæði koma sjálfri/sjálfum þér og
öðrum til góða. Veltu því málunum vandlega
fyrir þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Stundum er einfaldasta lausnin
sú besta. Vertu bara þú sjálfur og sinntu þín-
um störfum sem best þú getur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fikraðu þig í átt að markmiði þínu
með eitt takmark í huga, en þröngt sjónar-
horn. Vertu bara vandlátur í vali á trúnaðar-
vini; það borgar sig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Spennan sem þú finnur fyrir
vegna nýrra kynna við einhvern er gagn-
kvæm. Ef þú þarft að láta í minni pokann
skaltu gera það með reisn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Aðstoð þín við aðra getur leitt til þess
að mikilvægur árangur náist. Innlegg frá
maka reynist vera hrein snilld. Slík tækifæri
eru ekki á hverju strái og því væri réttast að
grípa það.
Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinnsson:
Kastvopn þetta kallað er.
Köpuryrði beint að þér.
Buxur, vesti og brók ég tel.
Bætir leppur skóinn vel.
Nú brá nýrra við þar sem aðeins
ein rétt lausn barst. Hún var frá Árna
Blöndal:
Bætt með skap og bros á vör
býst nú munda orða hjör,
ei þó beri maga mör
mun þó lausnin vera SPJÖR
Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Nefna megum spjótið spjör.
Spjör er köpuryrði á vör.
Í spari og hversdags spjarir fer.
Spjör í skónum leppur er.
Þá er limran:
Hve Valdi er frár á fæti,
finnst mér, að undrum sæti,
er skýst hann sem ör
og í engri spjör
til Veru í Vonarstræti.
Síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund og þykir mér rétt að árétta að
ráðningar verða að berast ekki síðar
en á miðvikudag:
Dags nú fyrir djarfar brún,
drolla skal ei lengur.
Þiggið gátu, þó að hún
þyki lítill fengur:
Um bæjarhlað er brautin sú.
Bikar henni stendur á
Í tóbakshorni er tappi sá
Tilheyrum slíkum ég og þú.
Pétur Stefánsson yrkir á Boðn-
armiði undir „Skálda-Sveinshætti“:
Heima dvel ég daga langa,
dreg þar fyrir glugga tjöld.
Iðja sú er ekki góð.
Oft fer ég þó út að ganga,
einkanlega seint um kvöld
til þess eins að yrkja ljóð.
Löngum þá ég leita fanga
í lautum þar sem blómin anga,
jafnvel út í urð og mó,
aðeins til að finna ró.
Í þessu síðasta hreti orti Hólm-
fríður Bjartmarsdóttir:
Kuldinn bítur kinn og nef,
af kulinu ég tárast.
Víst er þetta vonlaust stef
og vísan er að klárast.
Nú er kalt um Norðurland,
nú er lífið hokið.
Nú vildi ég eiga whiskybland.
Vísunni er lokið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Við skulum spyrja hann
spjörunum úr
Í klípu
„JÁ, ÞETTA VIRKAR NÚNA, EN ÉG
ER EKKI ENN VISS UM AÐ VIÐ SÉUM
AÐ GERA ÞETTA RÉTT.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞAÐ ER AÐ BRENNA HEIMA HJÁ
NÁGRANNANUM. VILTU HORFA Á?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bíða eftir rétta
manninum.
LÁTA ÞESSI GLERAUGU MIG
LÍTA GÁFULEGAR ÚT?
NEIBBS ÞÚ LÆTUR GLERAUGUN
LÍTA HEIMSKULEGAR ÚT
ÞAÐ AÐ VERA Á KÚPUNNI
TAKMARKAR HVAÐ ÉG
GET GERT FYRIR ÞIG,
ÁSTIN MÍN!
ÞAÐ ER
FLOTT!
ÞAÐ ER Í LAGI,
LÚTUR MINN! ÉG
ÞARF EKKI MIKIÐ!
ÉG VEIT EKKI HVERSU MÖRG
LÖG ÉG GET SPILAÐ MEÐ BARA
EINUM STRENG!
Víkverji var virkilega sleginn affréttum af andláti Chris Cornell í
vikunni. Þessi hæfileikaríki tónlist-
armaður sem varð fyrst frægur með
hljómsveitinni Soundgarden framdi
sjálfsmorð á hótelherbergi sínu að-
eins 52 ára að aldri.
x x x
Söngvarinn sagði frá því í viðtölumað hann hefði átt við eitur-
lyfjavandamál að stríða. Hann notaði
eiturlyf daglega þrettán ára gamall
en hætti notkuninni 14 ára. Þegar So-
undgarden hætti árið 1997 fór hann
aftur að misnota eiturlyf, ekki síst
læknadóp, og sagðist í viðtali vera
frumkvöðull í að misnota OxyContin.
Hann fór í meðferð og leitaði sér
hjálpar síðar á ævinni en það dugði
því miður ekki til.
x x x
Cornell var einn af þeim fjórumsöngvurum sem voru hvað mest
áberandi í Seattle-gruggsenunni í
upphafi tíunda áratugarins. Hinir
söngvararnir þrír voru Kurt Cobain
úr Nirvana, Layne Staley úr Alice in
Chains og Eddie Vedder úr Pearl
Jam. Aðeins sá síðastnefndi er á lífi.
Cobain framdi sjálfsmorð árið 1994
og Staley lést af of stórum skammti
eiturlyfja árið 2002. Eiturlyf og
ótímabær dauði hafa því verið í
kringum Cornell alla ævi. Til við-
bótar lést góður vinur hans og fyrr-
verandi herbergisfélagi, Andrew Wo-
od, söngvari Mother Love Bone,
forvera Pearl Jam, úr heróínof-
neyslu, rétt áður en fyrsta plata
þeirra átti að koma út.
x x x
Fólk veitir því athygli þegar frægtfólk fellur fyrir eigin hendi og
eins og hjá öðrum vita nákomnir ekki
alltaf alveg hvað er í gangi. Einn liður
í því að fækka þessum dauðsföllum er
að ræða þunglyndi opinskátt. Þá
verður leiðin til hjálpar kannski örlít-
ið styttri og beinni. Cornell vildi sjálf-
ur hjálpa illa stöddum einstaklingum
og hann stofnaði góðgerðarsamtök
ásamt konu sinni, Vicky Cornell.
Samtökin hafa það að markmiði að
styðja þau börn sem þurfa að búa við
fátækt, misnotkun og vanrækslu. Það
geta kannski ekki allir stofnað sam-
tök en allir geta hjálpað náunganum
á einhvern hátt. vikverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni vegu þína og treyst hon-
um, hann mun vel fyrir sjá.
(Sálmarnir 37:5)