Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019
Valin verk úr safneign
STEINA - ELDRÚNIR (PYROGLYPHS) 4.3. - 20.8.2017
ART OF MEMORY - Woody Vasulka 20.1 - 1.9. 2017
VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 17.09.2017
Opið daglega kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 14.9.2017
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sunnudaginn 21. maí kl. 14:
Leiðsögn um sýninguna Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Steinholt-saga af uppruna nafna í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Grímsey á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudaginn 21. maí kl. 14: Söng- og sögustund fyrir 4-7 ára.
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga frá 10-17.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það var fyrir 29 árum, haustið1988, að ég gekk inn í versl-un Fálkans á Laugaveginum
og sá þar plötuna Hold með Ham á
útsölu. 99 krónur. Ég var fjórtán
ára, farinn að hlusta á „skrítna“ og
óáheyrilega tónlist af miklum krafti
og hafði heyrt um þessa hljómsveit.
Ég var forvitinn, þetta var spenn-
andi og dularfullt og magnað um-
slagið (og enn magnaðra vegg-
spjaldið innan í) fékk hjartað til að
hamast. Ég setti plötuna á heima við
og hafði aldrei heyrt annað eins á
ævinni. Ég hafði enga reynslu af
svona þungri tónlist og stóð án gríns
agndofa við fermingargræjurnar.
„Trúboðasleikjari“, með grófum
textanum og sínu níðþunga skriði,
lak úr hátölurunum. Þetta gat ekki
Sem hið ljúfasta
fjallahunang …
verið. Og þetta gat reyndar ekki
verið, þar sem ég var að leika 45
snúninga plötu á 33 1/3 snúninga
hraða.
Ham hefur fylgt mér alla tíð
síðan og væntumþykjan nær út fyrir
gröf og dauða. Oft hendi ég því fram
að hér fari besta hljómsveit í heimi
og ég meina það – innilega. Kunn-
ingsskapur, m.a. vegna starfa míns,
hefur tekist með mér og meðlimum í
seinni tíð og þó að unglingshjartað
fari stundum á brokk er ég stend
andspænis Hertoganum eru öll sam-
skipti línulegri, ef við getum sagt
sem svo. Það var því ekki leiðinlegt
að taka á móti bassaleikara sveit-
arinnar síðasta miðvikudag, honum
S. Birni Blöndal, er hann kom í
heimsókn, vopnaður forláta prufu-
þrykki af vínylútgáfu plötunnar
nýju sem ber hæfandi Ham-heiti,
Söngvar um helvíti mannanna.
Blöndal sagði mér upp og ofan
af plötunni. Arnar Guðjónsson hefði
tekið upp og gamall félagi, sjálfur
Howie Weinberg, hefði verið feng-
inn í hljómjöfnunina. Sticky Re-
cords, útgáfa Priksins, gefur út og
mikill og almennur hressleiki með
þetta allt saman. „Ja … sko,“ segir
S. Björn kímileitur, þegar hann er
spurður út í innihaldið. „Eitt sem við
höfum lengi rætt okkar á milli er að
okkur langaði til að vera nýbylgju-
band.“ Svo hlær hann sínum ein-
kennandi, prakkaralega hlátri. Og
sjá, það er rétt. Hlustið t.a.m. á upp-
haf lagins „Þú lýgur“ sem fór í loftið
í vikunni. Klingjandi, hvassir gítarar
opna lagið, ekki þessi níðþungi tví-
gítar sem einkennir mörg laga Ham.
Lagið er keyrt áfram, er hratt og
Ný plata með Ham, Söngvar um helvíti mann-
anna, lítur dagsins ljós á næstu dögum. Pistilhöf-
undur komst í prufuþrykk af vínylnum í vikunni
og eys hér úr gleðibrunninum.
Óp Söngvar um helvíti mannanna.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Þetta var mjög athyglisvert af því
hljómsveitin var ekkert sér-
staklega vel þekkt þegar hún kom
fyrst til Íslands,“ segir Arnar Egg-
ert Thoroddsen poppfræðingur um
tónleika Rammstein sem haldnir
voru á Íslandi fyrir sextán árum.
Þungarokkhljómsveitin þýska lað-
aði þá til sín um sex þúsund
manns í Laugardalshöllina við
mikinn fögnuð sem fór vart fram
hjá neinum það árið. Í dag snýr
hún aftur og býr sig undir að slá
síðustu tónleikum við með sextán
þúsund manna stórtónleikum í
Kórnum í Kópavogi.
Rammstein-æðið 2001
Arnar segir stemninguna árið
2001 hafa verið vandlega byggða
upp: Lög Rammstein hafi lengi
verið spiluð í útvarpsþættinum
Tvíhöfða og þannig fangað athygli
þjóðarinnar. Hljómsveitin hafi svo
sjálf undirbúið jarðveginn fyrir
tónleikaferðina með því að koma
til Íslands í sérstakar viðtalsferðir
haustið áður.
„Það var flott hvernig þeir léku
sér með þessa austur-þýsku
ímynd,“ segir Arnar. „Fólk varð
gersamlega heltekið af þessu. Æð-
ið í blaðaumfjölluninni náði há-
punkti þegar við birtum mynd í
Morgunblaðinu af söngvaranum
Till Lindemann að veifa eftir leigu-
bíl í Hafnarstræti. Stemningin var
slík að manni fannst jafnvel þetta
fréttnæmt.“
Arnar hlær en bendir þó á að á
þessum tíma hafi verið minna um
ferðir erlendra stórstjarna til Ís-
lands. „Þjóðin var þakklát fyrir að
þessi hljómsveit væri að sýna okk-
ur svona mikinn áhuga. Fólkið
elskaði að sjá hvernig þeir fíluðu
sig á Íslandi. Okkur þótti það rosa-
lega merkilegt,“ segir hann.
Arnar segir einnig merkilegt að
áhugi Íslendinga hafi haldist svo
stöðugur á hljómsveitinni í um sex-
tán ár. „Núna er áhorfendahóp-
urinn líklega tvískiptur: Þeir eldri
sem mæta í nostalgíukasti og hinir
yngri sem rétt misstu af þeim á
sínum tíma en vita af þessu t.d. í
gegn um eldri bræður. Þetta er
eins og á Iron Maiden-tónleikum í
dag, þá koma þrjár kynslóðir: Af-
inn, pabbinn og barnabarnið.“
2017: „Tíu sinnum stærra“
„Þetta verður varla mikið
stærra,“ segir Þorsteinn Stephen-
sen, eigandi Hr. Örlygs og skipu-
leggjandi tónleikanna í ár. Hann
segir fyrri tón-
leikana ekki
standast sam-
anburð við það
sem nú sé í
vændum. „Þetta
er ekki sambæri-
legt við síðasta
skiptið. Þetta er
búið að marg-
faldast að stærð
og umfangi.
Þetta verður tíu sinnum stærra. Á
þeim tíma var hljómsveitin enn að
ryðja sér til rúms og var líklega
hvergi eins heit hlutfallslega og á
Íslandi. Rammstein-æðið sem
greip Ísland á þeim tíma var óvíða
eins mikið.“
„Verður varla mikið stærra“
Þýska þungarokkhljómsveitin Rammstein heldur stórtónleika í Kórnum í Kópavogi „Þetta er
búið að margfaldast að stærð og umfangi,“ segir skipuleggjandi Ham sér aftur um upphitun
Ljósmynd/ Bryan Adams
Þorsteinn
Stephensen
Rammstein Þýsku
rokkararnir verða í
Kórnum í kvöld.