Morgunblaðið - 20.05.2017, Qupperneq 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
Red Bull Music Academy og Kex
hostel halda fyrstu árlegu eins dags
rapphátíðina Rappport á Kex hos-
teli í kvöld kl. 18. Hátíðin fer fram á
jarðhæð Kex hostels, þar sem Ný-
listasafnið var áður til húsa.
Íranska tónlistarkonan Sevdaliza
snýr aftur til Reykjavíkur á hátíð-
inni en hún kom fram á Sónar
Reykjavík í fyrra. Sevdaliza gaf ný-
verið út sína fyrstu breiðskífu,
ISON, og mætir til leiks í kvöld með
hljómsveit. Auk hennar koma fram
GKR, Alvia, Forgotten Lores,
Sturla Atlas og Cyber.
Hátíðin stendur til miðnættis og
er aðgangur ókeypis. Svöl Sevdaliza verður á Kex hosteli.
Hin íranska Sevda-
liza á Rappport
Arnfinna Björnsdóttir, bæjar-
listamaður Fjallabyggðar, opnar
sýningu í Ráðhússalnum á Siglu-
firði í dag kl. 14.
„Sýningin er yfirlitssýning á
verkum Abbýjar, eins og hún er
kölluð. Ár hvert hefur Abbý opnað
sýningu á vinnustofu sinni á þessum
degi sem einmitt er afmælisdagur
Siglufjarðar. En vegna bæjarlista-
manns-útnefningarinnar setur hún
upp sýningu í Ráðhússalnum,“ seg-
ir í tilkynningu. Þar kemur fram að
hún hyggist opna sýningu á Kaffi
Klöru á Ólafsfirði 17. júní og í til-
efni af 75 ára afmæli sínu setja upp
þriðju sýninguna á þessu ári í Bláa
húsinu hjá Rauðku 19. júlí.
Abbý Arnfinna Björnsd. á vinnustofunni.
Ný yfirlitssýning
Bandaríska hip hop-sveitin Migos
heldur tónleika í Laugardalshöll
16. ágúst nk. Hljómsveitin var
stofnuð árið 2009 í Lawrenceville í
Georgíu og er skipuð þremur röpp-
urum sem ganga undir listamanns-
nöfnunum Quavo, Takeoff og Off-
set.
Eftir að hafa sent frá sér nokkur
lög sem nutu töluverðra vinsælda
sendi Migos frá sér fyrstu breiðskíf-
una, Young Rich Nation, árið 2015.
Önnur plata kom svo út í janúar sl.
og nefnist hún Culture og komst á
bandaríska Billboard-listann yfir
mest seldu plöturnar. Í október í
fyrra gaf Migos út lagið „Bad and
Boujee“ með Lil Uzi Vert og fór það
beint á topp Billboard Hot 100
listans og er nú tilnefnt til Billboard
Music Awards sem besta rapplagið
og besta rappsamstarfið. Varð það
fyrsta lagið af plötunni Culture sem
notið hefur mikilla vinsælda meðal
rappunnenda.
Stefnt er að því að ein erlend
stjarna hiti upp á tónleikunum og
ein íslensk en tilkynnt verður síðar
hverjar þær eru. Miðasala á tón-
leikana hefst 2. júní á Tix.is.
Vinsælir Quavo, Takeoff og Offset, liðsmenn hip hop-sveitarinnar Migos.
Migos heldur tónleika í Laugardalshöll
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
Uppskeruhátíð tónlistardeildar
Listaháskóla Íslands, Ómkvörnin, fer
fram dagana 22. og 23. maí í Kalda-
lónssal Hörpu. Þar verða ný verk eft-
ir tónsmíðanemendur skólans flutt af
hljóðfæraleikurum skólans og tónlist-
arfólki annars staðar frá.
Hátíðin samanstendur af þrennum
tónleikum, kl. 18 og 20:30 fyrri daginn
og kl. 18 seinni daginn og er aðgang-
ur ókeypis.
Andrés Þór Þorvarðarson og Katr-
ín Helga Ólafsdóttir sömdu verk fyrir
hátíðina auk þess sem þau komu að
skipulagningu hennar ásamt Sólrúnu
Ylfu Ingimarsdóttur fiðluleikara.
Hatur og virðing
„Verkið mitt er strengjakvartett
sem ég er búinn að vera að vinna í alla
önnina,“ segir Andrés Þór um verkið
sitt „Ég hata þig en ég virði þig“.
„Nafnið á verkinu vísar í ástand sem
ég er að reyna að setja fram í nokkrar
mínútur. Það lýsir óánægju minni
með verkið á meðan ég var að semja
það en líka einhverskonar löngun til
að hafa það vel heppnað,“ segir Andr-
és Þór.
Katrín Helga samdi tvö verk fyrir
hátíðina og segir hún þau vera mjög
ólík. „Í verkinu „Litasinfónía“ vinn ég
með ofureinfalda nótnaskrift og býð
sjálfboðaliðum upp á svið. Tíu glös, öll
merkt með sínum lit, verða á sviðinu.
Litum verður varpað á skjá og sjálf-
boðaliðarnir spila þegar þeirra litur
kemur upp,“ segir Katrín Helga.
„Þetta einstaka tækifæri til að flytja
verk í Hörpu krefst einskis nema
þess að sjálfboðaliðar séu með fingur
og séu jákvæðir,“ bætir hún við glöð í
bragði.
Hitt verkið sem Katrín Helga
samdi fyrir hátíðina heitir „Há-
pólitískt verk“. „Þar ætla ég að prófa
að leika mér með rýmið og læt flytj-
endurna hreyfa sig á meðan þeir
koma sér fyrir og þegar þeir spila. Í
byrjun kemur textaverk sem er
kynning á því sem koma skal og svo
fylgir því tónverkið sjálft sem er
blanda af hreyfingum og nótum,“
segir Katrín Helga. Hún bætir því við
að hún vilji sjá sem flesta á hátíðinni.
„Ég verð að fá einhvern til að spila í
verkinu mínu,“ segir hún og hlær.
Líka flytjendahátíð
Ómkvörnin er ekki einungis fyrir
tónskáld heldur er hún líka flytj-
endahátíð því verkin spila sig ekki
sjálf. Sólrún Ylfa fiðluleikari segir
samstarfið við tónskáldin misjafnt og
að sumir semji verkin fyrir ákveðna
flytjendur en aðrir semji fyrir ákveðin
hljóðfæri. „Flytjendurnir verða oftar
en ekki hluti af ferlinu við sköpun
verkanna vegna þess að tónskáldin
þurfa oft að spyrja flytjendur ýmissa
tæknilegra spurninga sem tengjast
hljóðfæraleik hvers og eins,“ segir Sól-
rún Ylfa og bætir því við að þess vegna
þurfi samstarfið á milli tónskálda og
flytjenda að vera mjög gott.
Fleiri tónskáld eiga verk á hátíð-
inni, en það eru Friðrik Margrétar-
Guðmundsson, Ari Hálfdán Að-
algeirsson, Hafsteinn Þráinsson,
Anna Þorvaldsdóttir, Bergþóra
Kristínardóttir, Viktor Ingi Guð-
mundsson, Þráinn Þórhallsson, Jó-
hanna Guðrún Sigurðardóttir, Gunn-
hildur Birgisdóttir, Pétur
Eggertsson, Emilía Ófeigsdóttir,
Óskar Magnússon, Brendan Patrick
K. Clinton, Árni Halldórsson, Bart
Bruinsma, Sophie Meyer, Sævar
Helgi Jóhannsson, Þorbjörg Roach
Gunnarsdóttir, Magni Freyr Þór-
isson, Alessandro Cernuzzi, Bjarki
Hall og Björn Jónsson.
Nánari upplýsingar um dagskrá
uppskeruhátíðarinnar má finna á vef-
síðu LHÍ.
Samstarf milli tónskálda
og flytjenda þarf að vera gott
Uppskeruhátíð tónlistardeildar LHÍ
fer fram í Kaldalóni 22. og 23. maí
Morgunblaðið/Stella
Uppskera Sólrún Ylfa, Katrín Helga og Andrés Þór komu að skipulagningu Ómkvarnarinnar. Katrín og Andrés
sömdu auk þess verk sem verða flutt á hátíðinni og Sólrún leikur á fiðlu í tveimur verkum.
501 nagli nefnist listsýning Gretars
Reynissonar sem opnuð verður í
forkirkju Hallgrímskirkju á morg-
un, sunnudag, við messulok kl.
12.15. Sýningin er á vegum List-
vinafélags Hallgrímskirkju sem
fagnar 35. starfsári sínu á þessu
ári.
„Hinn 31. október 1517 negldi
Marteinn Lúther 95 mótmælagrein-
ar gegn aflátssölu kaþólsku kirkj-
unnar á dyr Hallarkirkjunnar í Wit-
tenberg í Þýskalandi. Sá atburður
markaði upphaf siðbótarinnar og
er þess nú minnst um allan heim að
fimm aldir eru liðnar frá þeim at-
burði. Eins og fram kemur í um-
fjöllun Steins Arnar Atlasonar í
sýningarskrá vísar 501 nagli í
gjörning Lúthers með beinum
hætti, bæði í naglana sem voru not-
aðir til að festa greinarnar á kirkju-
dyrnar og í að 500 ár eru liðin frá
því að atburðurinn átti sér stað.
Gretar hefur stimplað 501 merki-
miða, hvern með einu ártali frá
1517 til 2017, og neglt þá á veggina
í forkirkju Hallgrímskirkju. Verk-
ið, sem er unnið sérstaklega fyrir
Hallgrímskirkju, er annars vegar
mótað af tímatalinu mældu í árum
og hins vegar af upplifun og sjón-
rænni framsetningu tímans. 501
nagli kallast á við önnur verk Gret-
ars frá síðustu tveim áratugum þar
sem hann glímir við tímann,“ segir í
tilkynningu. Sýningastjóri er Rósa
Gísladóttir. Sýningin stendur til 21.
ágúst og er opin alla daga kl. 9-21.
501 nagli í Hallgrímskirkju
Merkimiðar Hluti af verki Gretars Reynissonar sem sjá má í kirkjunni.
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 2, 4, 6
SÝND KL. 8, 10.20 SÝND KL. 5, 8, 10.30
SÝND KL. 10SÝND KL. 2, 4.10SÝND KL. 8
ÍSL. TAL
ÍSL. TAL
SÝND KL. 2
ÍSL. TAL