Morgunblaðið - 20.05.2017, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 20.05.2017, Qupperneq 60
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 140. DAGUR ÁRSINS 2017 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Ekki öllum hleypt inn í Costco 2. Sölvi og Sunna að hittast 3. Nýtt 70 milljarða kr. hverfi 4. Smárabíó verði …  Fyrirbæri nefnist listsýning sem Guðbjörg Lind opnar í Náttúru- fræðistofu Kópavogs í dag kl. 14. Verk sýningarinnar eru innblásin af safngripum Náttúrufræðistofu og því rannsóknarstarfi sem þar fer fram. Sýningin stendur til 2. september og er opin mán. til fim. kl. 9-18 og fös. og lau. kl. 11-17. Fyrirbæri í Náttúru- fræðistofu Kópavogs  Unnur Sara Eld- járn og Hlynur Þór Agnarsson stjórna klukku- stundarlangri söngstund í Hannesarholti á morgun, sunnu- dag, kl. 15 fyrir al- menning þar sem textar birtast á tjaldi og allir syngja með. Frítt fyrir börn í fylgd með full- orðnum. Syngjum saman í Hannesarholti  Hymnodia og Voces Thules efndu í vetur til samstarfs um tónleikahald á Akureyri og í Reykjavík. Hóparnir koma fram í Seltjarnarneskirkju í dag kl. 16. Efnisskráin er sótt í gamlan menningararf og er nýtt skapað úr gömlu með framsæknum hætti. Byggt er á þeim athugunum sem félagarnir í Voces Thules hafa gert á tónlistararfi fornra íslenskra handrita og prentbóka. Leikið er á mið- aldahljóðfæri og gerðar til- raunir með flutning þessa gamla efnis. Einnig eru flutt verk tónskálda frá sextándu öld. Hymnodia og Voces Thules með tónleika FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Breytileg átt eða hafgola og víða léttskýjað. Hætt við þokulofti við sjávarsíðuna. Hiti 9 til 19 stig, hlýjast inn til landsins suðvestantil og norðaustantil. Milos Milojevic sagði í gær upp starfi sínu sem þjálfari karlaliðs Vík- ings í knattspyrnu eftir að hafa stjórnað því frá ársbyrjun 2015 og verið einn með liðið frá miðju því ári. Þar með eru tveir þjálfarar í Pepsi-deild karla horfnir á braut að þremur umferðum loknum, en Breiðablik rak Arnar Grétarsson á dögunum. » 1 Milos Milojevic hættur sem þjálfari Víkings „Umgjörðin er ólík, einfald- lega vegna þess að allt er stærra í sniðum í kringum fótboltalandsliðin. Meira fjár- magn, fleira starfsfólk og þess háttar enda eru þetta ólíkir heimar hvað það varðar. Hins vegar er fagmennskan hjá landsliðsmönnunum sjálf- um í fótboltanum og hand- boltanum mjög svipuð,“ segir sjúkraþjálfarinn Pétur Örn Gunnarsson. »2-3 Ólík umgjörð en svipuð fagmennska „Þetta verður svakalegt. Það er rosa- lega sérstakt andrúmsloft þegar maður labbar inn í höll klukkutíma fyrir leik og það er bara allt pakkað. Það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig menn höndla það. Þetta er búið að vera mjög áhugavert einvígi,“ segir Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, en rætt er við hann um úrslitaleik FH og Vals um Íslands- meistaratitil karla í handbolta sem fram fer á morgun. »4 Búið að vera mjög áhugavert einvígi Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hjartslátturinn þarf að verða að- eins hraðari og lungun að fyllast af súrefni. Ráðlagður dagskammtur í allri hreyfingu er hálftími á dag fyrir fullorðna og börnin þurfa klukku- tíma í æfingum sem þau taka af mik- illi ákefð,“ segir Sabína Steinunn Halldórsdóttir. Hún er í forsvari Ungmennafélags Íslands, sem stendur fyrir hreyfiviku sem verður dagana 29. maí til 4. júní. Þetta er hluti af evrópskri lýðheilsuherferð samtakanna ISCA (International sport and culture association) sem UMFÍ er í samstarfi við. 42 þúsund þátttakendur í fyrra Hvatning til fólks um að hreyfa sig hefur beint og óbeint frá fyrstu tíð verið eitt af meginstefjunum í starfi ungmennafélaganna. Það er líka verk að vinna. Athuganir hafa leitt í ljós að einungis þriðji hver Evrópubúi hreyfir sig nóg. Úr því vilja margir bæta með tilliti til for- varna, líkamlegrar og andlegrar heilsu. „Hreyfivikan er þannig að hver og einn finnur hvað hentar honum best og heldur af stað. Það geta allir verið boðberar hreyfingar, eins og við köllum það, skráð sig til leiks og hrifið aðra með sér í hreyfingu,“ segir Sabína. Hún segir þar mikil- vægt að fólk stimpli sig inn á vefnum hreyfivika.is og veki athygli á sínum viðburði svo aðrir geti verið með. Með því móti er hægt að fylgjast með fjöldi þátttakenda, hvaða sport er vinsælast og sjá samanburð út frá ýmsum forsendum svo sem milli hópa, íþróttafélaga, byggðarlaga og hvernig Ísland stendur í samanburði við hin 37 þátttökulöndin í þessu lýð- heilsuverkefni. „Við Íslendingar höf- um tekið þátt síðan 2012 og í fyrra varð sprenging í fjölda þátttakenda, sem þá urðu alls 42 þúsund. Við- burðirnir þá urðu 480 og verða von- andi fleiri í ár,“ segir Sabína. Landsbyggðin kemur sterk inn Landsbyggðin kemur sterk inn í Hreyfivikunni. Af því sem þar er á döfinni má nefna að Bláskógaskóli að Laugarvatni býður áhugasömum í göngu um fjöll og firnindi. Þrjár mismunandi ferðir verða í boði, það eru göngur á Mosfell, Laugarvatns- fjall og umhverfis Laugarvatn. Vill skólinn með þessu styðja þá stefnu Bláskógabyggðar að verða heilsuefl- andi samfélag. Í slíku felst að mögu- leikar til að bæta heilsu eru hluti af allri almennri stefnumörkun hvers sveitarfélags, sem þá hefur gert sér- stakan sáttmála við embætti Land- læknis þar að lútandi. Hreyfivikan með mikilli ákefð  Ráðlagður dag- skammtur og þús- undir verða með Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þátttaka Allir geta skráð sig til leiks og hrifið aðra með sér í hreyfingu, segir Sabína Steinunn Halldórsdóttir. Í heilsueflandi samfélagi er stöðug áhersla lögð á að bæta bæði hið manngerða og félagslega umhverfi íbúa, vinna gegn ójöfnuði og draga úr tíðni og afleiðingum sjúkdóma með margvíslegu forvarnastarfi. Má þar nefna að Seyðisfjörður er orðinn heilsubær og þar verður ýmislegt á döfinni í Hreyfiviku, sem og í Reykjanesbæ, Hafnar- firði, Snæfellsbæ, Dalvík, Húsavík, Reyðarfirði og víðar. „Já, ég reyni að ná góðri hreyf- ingu á hverjum degi. Hjóla, syndi og fer í gönguferðir hér um Laugardalinn í Reykjavík og í hin- um Laugardalnum austur í sveit- um, það er að Laugarvatni þar sem ég er uppalin. Sú sveit finnst mér einmitt gott dæmi um heilsuefl- ingu; þar er góð íþróttaaðstaða og fólk duglegt við að hreyfa sig, sem er alveg til fyrirmyndar,“ segir Sabína Steinunn Halldórsdóttir. Heilsuefling til fyrirmyndar BÆTA UMHVERFIÐ MEÐ FORVARNASTARFI VEÐUR » 8 www.mbl.is Á sunnudag og mánudag Austlæg átt, 5-13 m/s, hvassast við suðurströndina. Víða léttskýjað norðan- og vestanlands en sums staðar hætt við þokulofti, einkum við Húna- flóa. Skýjað og úrkomulítið um landið suðaustanvert. Hiti 12 til 19 stig í innsveitum, en hiti 7 til 12 stig annars staðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.