Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 17
Bergur Ebbi Í dag Ekkert hverfur. Sérstaklega ekki reiði. Hún kraumar alltaf í jafn miklu hlutfalli í veröldinni. Eins og frumefni. Að erfa syndir feðranna. Um það fjalla leikbókmenntirnar. Allavega þær sem skrifaðar voru af feðrunum. Pergo parket. Fréttir af níðingum. Í allan dag þessi gömlu góðu. Ylvolg gítarsturta frá Rollingunum. Hlýðið á húsbóndann smella svipu sinni á ambáttina just around midnight. Bíllinn fer yfir hraðahindrun og útvarpið skiptir um stöð. Eða kannski var ekið á smáhund. Skiptir ekki máli. Úr hátölurunum berst íslenskt rapp. Frískandi, bubblandi mulningur fyrir alla aldurshópa. Þessir amerísku næntís hlunkar voru of reiðir og gátu aldrei klárað heilan texta án þess að kalla konur tíkur. Guði sé lof fyrir létt- kolsýrða útgáfu á aktavis ylhlýra. Það sést hverjir drekka Kristal. Áhrifavaldar okkar tíma. Þegar ég lít í spegil hryllir mig við hvað húð mín er slétt. Því ég hef lifað aðra tíma. Ég man eftir Reykjavík stútfullri af strippstöðum, Akureyri stútfullri af strippstöðum. Ég man eftir SkjáEinum og Bleiku og bláu. Ég man eftir busavígslum, lambakjöts- fréttum, flissi og axlayppingum og líka útvarpsauglýsingum sem klykktu út með setningunni: „fyrir konur sem kyngja“. Og kannski er einhver annar spegill uppi á háalofti einhverstaðar í Þingholtunum sem safnar öllum baug- unum, og ef svo er, þá vil ég aldrei sjá hann. Eða kannski er húð mín löngu orðin tekin, en ég þarf ekki að gefa því gaum vegna þess að filterarnir eru orðnir svo góðir. Myrkur. Pollur við bíldyrnar. Instant bleyta. Instant kvef, strepsils, svefn- lausar nætur. Sandur á gangstéttinni, appelsínugul umferðarkeila fokin á hliðina. Ýlfrandi rokið, tikkið í fána- stöngunum. Í allan dag, þessi gömlu góðu. Hvenær skyldu Spice Girls detta inn á Gullbylgjuna? Þær voru prótó- þriðju-kynslóðar femínistar, las ég í bloggi einhverstaðar. En alltaf reynist mér erfitt að átta mig á hvort David Beckham sé hluti af þeirri heimsmynd sem hin eina kalkúleraða niðurstaða af nútíma karlmennsku eða hvort hann sé bara áhrifavaldaauglýsingagrín með tattú. Ljái mér hver sem vill en sérhver kynslóð þarf sínar fyrirmyndir og norpandi á jólahlaðborðum um allan bæ eru þúsundir karlmanna sem vita ekkert hvernig þeir eiga að haga sér. Við köllum það „útlenska rigningu“ þegar það rignir mikið. Það er vegna þess að það rignir sjaldan mikið í einu á þessu landi. Það brestur ekki á með þrumum og eldingum og biblísku skýfalli. Í Biblíunni rignir kröftuglega og rigning veitir líkn. Rigning afléttir spennunni, hræðslunni við þurrk og uppskerubrest, hitanum, sóttinni, kvíðanum. Regn boðar bæði heims- endi og nýtt upphaf. Það felur í sér þáttaskil. Það fellur, skarpt og öruggt, líkt og tjald í leikhúsi; til marks um að einum leikþætti sé lokið og að nú verði fléttan tekin á næsta stig. 486 turntölva. Hungur í maga og höfði. Snjóflóðin fyrir vestan. Skamm- degi. Ibsen katalógur milli hvassra fjalla. Ekkert gleymist. Purusteik skor- in af innfluttu vinnuafli. Of feit fyrir mig. Þetta jólahlaðborð er vitlausu megin í 5:2 hlutfalli lífs míns. Svíninu blæddi. Ég hef ekkert að fela en samt reima ég á mig hlaupaskó í tíu vind- stigum og hleyp eftir norðurströnd Seltjarnarness. Hvers vegna eru allir svona reiðir? Sumir mótmæltu alltof mikið í Hruninu. Hverjir voru þessir mótmælendur? Er hægt að fá nöfn þeirra strax? Fram er komin eftirspurn eftir því að tryllast á þá sem gengu of langt í mótmælunum og berja í potta fyrir framan eyru barna þeirra? Halló?! Hvað voruð þið að spá?!! Ég trúi ekki á Guð en hef samt alltaf haldið að hann sé mjög upptekinn af mér. En nú finn ég svo sterkt að hann er ekki einu sinni að pæla í mér lengur. Ekkert hverfur. Sérstaklega ekki reiði. Hún kraumar alltaf í jafn miklu hlutfalli í veröldinni. Eins og frum- efni. Eða kannski gerir hún það ekki. Ég hrasa við Gróttu og dett í jörðina. Kannski feykti eitthvað mér um koll. Var það kraftaverkið sem ég hef beðið eftir eða voru það bara vindstigin tíu? Ég lít upp til himins en finn ekki fyrir neinu. Vandamálið við þetta land er að himinninn liggur of lágt. Veðrið og skýin eru sífellt oní okkur. Kannski erum við ekki stödd fyrir framan leiksviðið heldur baksviðs meðal þuklaranna. Og hvernig endar leikritið ef það voru áhorfendurnir sem stóðu fyrir sýningunni allan tímann? Hve- nær mun regnið steypast og skola burt syndugum í eitt skipti fyrir öll? Ég heyri í skruðningum að ofan. Hægt og löturlega falla stórar gervisnjóflyksur úr himninum og Deus Ex Machina hefur upp raust sína í takt við eitíslegar sleðabjöllur. „Snjókorn falla, á allt og alla.“ Ég heyri rödd innra með mér tauta að ég trúi því að heimurinn geti breyst. Og þó ég felli tár innan um gervilegar flyksurnar þá trúi ég því í alvöru. En í samfélagi sem hefur ekki einu sinni himin til að steyta hnefa gegn, hvert á þá reiðin að fara? Snjókorn falla (á allt og alla) Hverjir voru þessir mót- mælendur? Er hægt að fá nöfn þeirra strax? Fram er komin eftirspurn eftir því að tryllast á þá sem gengu of langt í mót- mælunum og berja í potta fyrir framan eyru barna þeirra? Halló?! Hvað voruð þið að spá?!! ŠKODA Fabia er margverðlaunaður bíll með marga kosti. Hann er lítill og lipur en stór að innan, vel útbúinn og ódýr í rekstri. Komdu og náðu þér í bíl ársins á frábæru verði og með fimm ára ábyrgð. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is BÍLL ÁRSINS Á VERÐI ÁRSINS ŠKODA FABIA Á SÉRKJÖRUM Í TAKMARKAÐAN TÍMA. ŠKODA FABIA frá: 2.017.000 kr. reddot design award best of the best car design S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö S T u d a g u R 8 . d e S e m B e R 2 0 1 7 0 8 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 6 E -5 9 1 4 1 E 6 E -5 7 D 8 1 E 6 E -5 6 9 C 1 E 6 E -5 5 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.