Fréttablaðið - 08.12.2017, Side 17
Bergur Ebbi
Í dag Ekkert hverfur. Sérstaklega ekki reiði. Hún kraumar alltaf í jafn miklu hlutfalli í veröldinni. Eins
og frumefni. Að erfa syndir feðranna.
Um það fjalla leikbókmenntirnar.
Allavega þær sem skrifaðar voru af
feðrunum.
Pergo parket. Fréttir af níðingum.
Í allan dag þessi gömlu góðu. Ylvolg
gítarsturta frá Rollingunum. Hlýðið
á húsbóndann smella svipu sinni á
ambáttina just around midnight.
Bíllinn fer yfir hraðahindrun og
útvarpið skiptir um stöð. Eða kannski
var ekið á smáhund. Skiptir ekki máli.
Úr hátölurunum berst íslenskt rapp.
Frískandi, bubblandi mulningur
fyrir alla aldurshópa. Þessir amerísku
næntís hlunkar voru of reiðir og gátu
aldrei klárað heilan texta án þess að
kalla konur tíkur. Guði sé lof fyrir létt-
kolsýrða útgáfu á aktavis ylhlýra. Það
sést hverjir drekka Kristal. Áhrifavaldar
okkar tíma.
Þegar ég lít í spegil hryllir mig við
hvað húð mín er slétt. Því ég hef lifað
aðra tíma. Ég man eftir Reykjavík
stútfullri af strippstöðum, Akureyri
stútfullri af strippstöðum. Ég man
eftir SkjáEinum og Bleiku og bláu. Ég
man eftir busavígslum, lambakjöts-
fréttum, flissi og axlayppingum og
líka útvarpsauglýsingum sem klykktu
út með setningunni: „fyrir konur sem
kyngja“. Og kannski er einhver annar
spegill uppi á háalofti einhverstaðar í
Þingholtunum sem safnar öllum baug-
unum, og ef svo er, þá vil ég aldrei sjá
hann. Eða kannski er húð mín löngu
orðin tekin, en ég þarf ekki að gefa
því gaum vegna þess að filterarnir eru
orðnir svo góðir.
Myrkur. Pollur við bíldyrnar. Instant
bleyta. Instant kvef, strepsils, svefn-
lausar nætur. Sandur á gangstéttinni,
appelsínugul umferðarkeila fokin á
hliðina. Ýlfrandi rokið, tikkið í fána-
stöngunum. Í allan dag, þessi gömlu
góðu. Hvenær skyldu Spice Girls detta
inn á Gullbylgjuna? Þær voru prótó-
þriðju-kynslóðar femínistar, las ég í
bloggi einhverstaðar. En alltaf reynist
mér erfitt að átta mig á hvort David
Beckham sé hluti af þeirri heimsmynd
sem hin eina kalkúleraða niðurstaða af
nútíma karlmennsku eða hvort hann
sé bara áhrifavaldaauglýsingagrín með
tattú. Ljái mér hver sem vill en sérhver
kynslóð þarf sínar fyrirmyndir og
norpandi á jólahlaðborðum um allan
bæ eru þúsundir karlmanna sem vita
ekkert hvernig þeir eiga að haga sér.
Við köllum það „útlenska rigningu“
þegar það rignir mikið. Það er vegna
þess að það rignir sjaldan mikið í einu
á þessu landi. Það brestur ekki á með
þrumum og eldingum og biblísku
skýfalli. Í Biblíunni rignir kröftuglega
og rigning veitir líkn. Rigning afléttir
spennunni, hræðslunni við þurrk og
uppskerubrest, hitanum, sóttinni,
kvíðanum. Regn boðar bæði heims-
endi og nýtt upphaf. Það felur í sér
þáttaskil. Það fellur, skarpt og öruggt,
líkt og tjald í leikhúsi; til marks um að
einum leikþætti sé lokið og að nú verði
fléttan tekin á næsta stig.
486 turntölva. Hungur í maga og
höfði. Snjóflóðin fyrir vestan. Skamm-
degi. Ibsen katalógur milli hvassra
fjalla. Ekkert gleymist. Purusteik skor-
in af innfluttu vinnuafli. Of feit fyrir
mig. Þetta jólahlaðborð er vitlausu
megin í 5:2 hlutfalli lífs míns. Svíninu
blæddi. Ég hef ekkert að fela en samt
reima ég á mig hlaupaskó í tíu vind-
stigum og hleyp eftir norðurströnd
Seltjarnarness. Hvers vegna eru allir
svona reiðir? Sumir mótmæltu alltof
mikið í Hruninu. Hverjir voru þessir
mótmælendur? Er hægt að fá nöfn
þeirra strax? Fram er komin eftirspurn
eftir því að tryllast á þá sem gengu of
langt í mótmælunum og berja í potta
fyrir framan eyru barna þeirra? Halló?!
Hvað voruð þið að spá?!! Ég trúi ekki á
Guð en hef samt alltaf haldið að hann
sé mjög upptekinn af mér. En nú finn
ég svo sterkt að hann er ekki einu sinni
að pæla í mér lengur.
Ekkert hverfur. Sérstaklega ekki
reiði. Hún kraumar alltaf í jafn miklu
hlutfalli í veröldinni. Eins og frum-
efni. Eða kannski gerir hún það ekki.
Ég hrasa við Gróttu og dett í jörðina.
Kannski feykti eitthvað mér um koll.
Var það kraftaverkið sem ég hef beðið
eftir eða voru það bara vindstigin tíu?
Ég lít upp til himins en finn ekki fyrir
neinu. Vandamálið við þetta land er
að himinninn liggur of lágt. Veðrið og
skýin eru sífellt oní okkur. Kannski
erum við ekki stödd fyrir framan
leiksviðið heldur baksviðs meðal
þuklaranna. Og hvernig endar leikritið
ef það voru áhorfendurnir sem stóðu
fyrir sýningunni allan tímann? Hve-
nær mun regnið steypast og skola burt
syndugum í eitt skipti fyrir öll?
Ég heyri í skruðningum að ofan.
Hægt og löturlega falla stórar
gervisnjóflyksur úr himninum og Deus
Ex Machina hefur upp raust sína í takt
við eitíslegar sleðabjöllur. „Snjókorn
falla, á allt og alla.“ Ég heyri rödd
innra með mér tauta að ég trúi því að
heimurinn geti breyst. Og þó ég felli
tár innan um gervilegar flyksurnar
þá trúi ég því í alvöru. En í samfélagi
sem hefur ekki einu sinni himin til að
steyta hnefa gegn, hvert á þá reiðin að
fara?
Snjókorn falla (á allt og alla)
Hverjir voru
þessir mót-
mælendur?
Er hægt að fá
nöfn þeirra
strax? Fram
er komin
eftirspurn
eftir því að
tryllast á þá
sem gengu of
langt í mót-
mælunum og
berja í potta
fyrir framan
eyru barna
þeirra?
Halló?! Hvað
voruð þið að
spá?!!
ŠKODA Fabia er margverðlaunaður bíll með marga kosti. Hann er lítill og lipur
en stór að innan, vel útbúinn og ódýr í rekstri. Komdu og náðu þér í bíl ársins
á frábæru verði og með fimm ára ábyrgð.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
BÍLL ÁRSINS
Á VERÐI ÁRSINS
ŠKODA FABIA Á SÉRKJÖRUM Í TAKMARKAÐAN TÍMA.
ŠKODA FABIA frá:
2.017.000 kr.
reddot design award
best of the best car design
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö S T u d a g u R 8 . d e S e m B e R 2 0 1 7
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
E
-5
9
1
4
1
E
6
E
-5
7
D
8
1
E
6
E
-5
6
9
C
1
E
6
E
-5
5
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K