Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2017, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 08.12.2017, Qupperneq 18
Leiðari ritstjóra Fréttablaðsins, Kristínar Þorsteinsdóttur sl. laugardag er helgaður erindi mínu á síðasta aðalfundi Dómara- félags Íslands. Þar gerði ég að umtals- efni ítrekaðan neikvæðan fréttaflutn- ing blaðsins af málefnum dómara og dómstóla, meðal annars umfjöllun blaðsins um launamál dómara í árs- byrjun 2016. Í leiðaranum er vísað til þess að hvorki fjölmiðlanefnd né siðanefnd blaðamanna hafi fundið nokkuð að fréttaflutningi blaðsins og því sé engu líkara en undirritaður halli vísvitandi réttu máli. Þetta er talið ósæmandi formanni félags dómara. Hinn 5. febrúar 2016 birti Frétta- blaðið frétt um launamál dómara undir fyrirsögninni: „Laun hækkuðu um 38% í fyrra“. Í undirfyrirsögn sagði svo: „Eftirlaun dómara hækk- uðu um alls 38% í fyrra með tveimur ákvörðunum kjararáðs. Meðalhækk- un eftirlauna hjá ríkinu var 11,8%. Sanngjörn og eðlileg hækkun, segir formaður Dómarafélagsins.“ Um var að ræða fjórðu frétt blaðsins á þess- um nótum frá áramótum og hafði þetta meðal annars leitt til þess að miðstjórn ASÍ samþykkti ályktun þar sem harðlega var mótmælt „meira en 40% hækkun á launum dómara“ og þess krafist að settir yrðu á hátekju- skattar til að stemma stigu við „ofur- launum“. Sama dag ritaði ég aðstoð- arritstjóra Fréttablaðsins tölvuskeyti þar sem ég kvartaði yfir því að enn á ný væri á síðum blaðsins fjallað með villandi hætti um launamál dómara og án þess að leitað væri viðbragða Dómarafélagsins eða annarra sem gætu varpað ljósi á málið. Óskaði ég eftir því að stutt athugasemd mín, sem fylgdi með bréfinu, yrði tafar- laust birt, en þar kom m.a. fram að raunhækkun launa dómara hefði verið um 6-7%. Aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins svaraði erindi mínu samdægurs svona: „Fyrirsögn fréttarinnar endaði fyrir mistök með þessum hætti. Það verður leiðrétting þess efnis í blaðinu á morgun.“ Fréttablaðið birti hins vegar enga leiðréttingu degi síðar heldur „áréttingu“ mánudaginn 8. febrúar. Í úrskurði siðanefndar blaða- manna 19. apríl 2016, vegna kæru minnar til nefndarinnar, var talið að þessi vinnubrögð hefðu ekki falið í sér brot á siðareglum blaðamanna. Fyrirsögnin hefði ekki verið röng en hefði mátt vera nákvæmari. Þá hefði Fréttablaðið uppfyllt leiðréttingar- kvöð siðareglna. Var þar vísað til þess að leiðréttingu minni hafði verið komið fyrir á vefnum visir.is enda þótt blaðið hefði hafnað því að birta hana á síðum blaðsins. Hver og einn getur lagt sitt mat á niðurstöðu siðanefndar blaðamanna en að henni vék ég ekki í fyrrnefndu erindi mínu á aðalfundi dómara- félagsins. Í erindi mínu sagði ég hins vegar að téðum fréttaflutningi blaðs- ins hefði ekki linnt fyrr en eftir kæru til siðanefndarinnar. Sú staðhæfing er rétt og því var hér ekki hallað réttu máli. Fullyrðing ritstjórans um að nefndin hafi ekki fundið nokkuð að fréttinni er einnig augljóslega röng og samræmist ekki einu sinni við- brögðum blaðsins sjálfs. Andstætt ritstjóra Fréttablaðsins ætla ég hins vegar ekki að væna hana um að mál- flutningur af þessu tagi sé henni eða blaðinu ekki sæmandi. „Dæmir sig sjálfur“ Skúli Magnússon formaður Dómarafélags Íslands 100% rafmagn 378 km drægi* *Samkvæmt NEDC-stöðlum. Nýr Nissan LEAF VERÐ FRÁ 3.490.000 FORSALA ER HAFIN Mest seldi rafbíll heims, Nissan Leaf, er nú væntanlegur í nýrri og tæknivæddri útfærslu og stefnir BL að því að frumsýna hann snemma á nýju ári. Vegna mikillar eftirspurnar um allan heim, höfum við opnað fyrir forsölu á nýjum LEAF. Nýttu tækifærið og tryggðu þér nýjan LEAF úr fyrstu framleiðslulotunum, en fyrstu bílarnir eru væntanlegir í lok mars 2018. Hafðu samband við sölufulltrúa okkar og fáðu meiri upplýsingar um nýjan Nissan LEAF. Nissan.is BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Athugasemd ritstjóra: Á þessum skrifum sannast að enginn er dóm- ari í eigin sök. Ekkert var rangt í umræddum leiðara Fréttablaðsins. Skúla Magnússyni láðist að geta þess í ræðu sinni á aðalfundi Dómara- félags Íslands, að umkvartanir hans fengu engar undirtektir hvorki hjá siðanefnd Blaðamannafélags Íslands né fjölmiðlanefnd. Fjölmiðlanefnd kvað upp úr með að ágreiningslaust væri að grunnlaun og þar með eftir- laun dómara hefðu hækkað um 38% með tveimur úrskurðum kjararáðs í nóvember og desember 2015. Skýr- ara getur það ekki verið. Í úrskurði siðanefndar blaðamanna 19. apríl 2016, vegna kæru minnar til nefndarinnar, var talið að þessi vinnubrögð hefðu ekki falið í sér brot á siðareglum blaðamanna. Einu sinni var maður sem hat-aði kristið fólk. Hann gekk svo langt að hann vildi drepa það. Hann taldi þessa kristnu kenningu mesta bull sem hann hefði heyrt og svo hættulega að það þyrfti að stöðva þá sem aðhylltust hana. Honum varð nokkuð ágengt þangað til sá sem hann ofsótti ákvað að skerast sjálfur í leikinn. Þegar Jesús sjálfur spurði reiða manninn hvers vegna hann væri að ofsækja sig varð fátt um svör. Honum rann hins vegar reiðin. Þessi reynsla olli því að maðurinn varð einn öflugasti fylgismaður Jesú og hefur hann allar götur síðan verið þekktur undir nafninu Páll postuli. Þessi saga kom mér í hug þegar ég las, enn eina aðventuna, áróður gegn kirkjuheimsóknum á skóla- tíma. Það virðist ekki vera nóg að bjóða börnum val um hvort þau fari í kirkju eða ekki, heldur vilja þeir sem eru á móti Jesú alls ekki að ann- arra manna börn fari heldur. Þetta heitir stjórnsemi. Reynt er að ala á þeirri skoðun að trú sé einkamál. Trú má og á að vera einkamál þeirra sem vilja ekki opinbera trú sína, en það er jafn mikilvægt að styðja þau börn sem eru trúuð og leyfa þeim að finna að skólasamfélagið líti ekki á trú sem hættulega. Í þessu birtist umburðarlyndi. Það er ástæða fyrir því að Mannréttindasáttmáli Evr- ópu skuli tryggja rétt fólks til trúar og trúariðkunar. Það er einmitt til að forðast þöggun. Þöggun elur á fordómum. Við höfum fordóma gagnvart því sem við þekkjum ekki. Eðlilegt er að skólasamfélagið fagni fjölbreytileikanum og börnum sé kennt frá upphafi að það sé eðlilegt að það séu ekki allir sömu trúar eða skoðana. Jesús var einn öflugasti mann- réttindafrömuður sem heimurinn hefur alið. Það er útilokað að segjast styðja mannréttindi en vinna gegn áhrifum og kenningu Jesú Krists. Enginn annar hefur gengið jafn langt í að sýna í verki hvernig elska skuli óvini sína. Ég er ein þeirra sem telja að Jesús hafi sagt satt. En þó svo að aðrir telji hann hafa sagt ósatt og vilji afmá spor hans í skólastarfi á aðventunni þá er siðferðisboðskap- ur hans þess virði að gefa gaum að og kenna. Enginn annar leiðtogi, hvorki fyrr né síðar, hefur náð svo langt að tímatal hins vestræna heims sé miðað við fæðingu hans. Jesús, jólin og skólinn Dögg Harðardóttir hjúkrunar­ fræðingur Það virðist ekki vera nóg að bjóða börnum val um hvort þau fari í kirkju eða ekki, heldur vilja þeir sem eru á móti Jesú alls ekki að ann- arra manna börn fari heldur. 8 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F Ö s T U d A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 E -5 E 0 4 1 E 6 E -5 C C 8 1 E 6 E -5 B 8 C 1 E 6 E -5 A 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.