Fréttablaðið - 08.12.2017, Síða 36
E in stærsta breytingin frá því fyrir 30 árum er sú að það hefur orðið vakning, eða almennur skilningur á mikilvægi sálgæslu og and-legs stuðnings þegar fólk
verður fyrir áföllum,“ segir Hulda Guð-
mundsdóttir formaður Nýrrar dögunar,
samtaka um sorg og sorgarviðbrögð sem
eru 30 ára í dag.
Í tilefni afmælisins verður opið hús
og kvöldkaffi í safnaðarsal Háteigs-
kirkju sem hefst klukkan 20. Þau sem
notið hafa stuðnings samtakanna eru
velkomin, sem og þau sem unnið hafa
fyrir samtökin þessi 30 ár frá stofnun
þeirra, sérstaklega frumkvöðlahópur-
inn, bendir Hulda á.
„Nú þykir sjálfsagt og eðlilegt að leita
sér stuðnings ef maki eða barn deyr,
eða annar sem stendur hjartanu nærri.
Vandinn er bara sá að það fer mikið
eftir því hvernig dauðann ber að, hversu
markvissa aðhlynningu aðstandandi
fær. Þau sem missa skyndilega sitja ekki
við sama borð og hin þar sem aðdrag-
andi er að andláti.
Til að útskýra hvað ég á við get ég
nefnt að ef andlát ber að inni á sjúkra-
stofnun, eftir t.d. langvarandi krabba-
meinsmeðferð, þá fá aðstandendur
góðan stuðning frá viðkomandi sjúkra-
húsi og geta leitað ráðgjafar og stuðnings
hjá félögum eins og Krabbameinsfélag-
inu, Krafti og Ljósinu alveg frá því að
veikindi koma upp og eftir að sjúklingur
deyr.
Ef andlát verður hins vegar skyndi-
lega, t.d. af slysförum, þá er ekkert net
sem grípur aðstandendur og þeir geta
lent í hræðilega einangrandi stöðu, án
allrar aðstoðar. Þetta á ekki síst við um
fólk sem kærir sig ekki um trúarlega
aðkomu, en prestar eru jú sú stétt sem
hefðin sýnir að kallaðir eru til, þegar
dauðsföll verða.“
Hún segir að samfélagið þurfi að gera
betur og að samtökin hafi hugsað um
þetta á afmælisárinu. „Til að byrja með
teljum við mikilvægt að hjálparsíminn
1717 hafi upplýsingar um úrræði, þann-
ig að þau sem verða fyrir dauðsfalli sinna
nánustu viti að í hjálparsímanum 1717
fáist svör við því hvert hægt er að leita
eftir stuðningi í sorginni.
Hjá 1717 verði upplýsingabanki um
viðurkennda stuðningsaðila. Sá stimpill
er mikilvægur til að tryggja fagmennsku
í þjónustunni. Í náinni framtíð þarf svo
að ákveða hvort hægt er að samhæfa
betur þá krafta sem í dag eru dálítið á
tvist og bast þegar kemur að stuðningi
í sorg.“
Hún segist vilja sjá Sorgarmiðstöð
taka til starfa þar sem hlúð verði að fólki
eftir smærri og stærri áföll. Samhljómur
sé meðal stuðningsaðila um þetta. „Gild
rök eru fyrir því að góður stuðningur
geti dregið úr dýrkeyptum afleiðingum
sorgar og áfalla sem upp geta komið, ef
enginn úrvinnsla fylgir. Það væri e.t.v.
ekki úr vegi að hefja umræðu um þetta
lýðheilsumál við nýjan heilbrigðisráð-
herra, Svandísi Svavarsdóttur, áður en
afmælisárið er liðið.“
benediktboas@365.is
Stuðningur mikilvægur
þegar sorgin knýr dyra
Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, er 30 ára í dag. Þrettán manns komu að
stofnun samtakanna og hittist sá kjarni enn. Í tilefni afmælisins verður opið hús í safnað-
arsal Háteigskirkju. Ákveða þarf hvernig má samhæfa krafta þeirra sem veita stuðning.
Sigfinnur Þorleifsson, fyrsti formaður félagsins, og núverandi formaður, Hulda Guðmundsdóttir. Fréttablaðið/EyÞór
Nú þykir sjálfsagt og
eðlilegt að leita sér
stuðnings ef maki eða barn deyr,
eða annar sem stendur hjartanu
nærri.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Nanna Lára Pedersen
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
síðastliðinn þriðjudag.
Reynir Olgeirsson Karlína Friðgeirsdóttir
Níels Sigurður Olgeirsson Ragnheiður Valdimarsdóttir
Sigrún Olgeirsdóttir Ásgeir Árnason
Bryndís Olgeirsdóttir Þorvaldur Hermannsson
Salvör Lára Olgeirsdóttir Þorsteinn Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hörður Sveinbjörnsson
Hörður fæddist í Vesturkoti á Skeiðum 14. nóvember 1956.
Hann lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Tallbacken í
Trollhättan, Svíþjóð, 30. nóvember 2017.
Minningarathöfn fer fram í Iðnó í Reykjavík föstudaginn
15. desember 2017 klukkan 14. Ástvinir afþakka blóm
og kransa, en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Torill Nordwall
Fannar Snær Harðarson Hildur Sveinsdóttir
Freyja Fannarsdóttir
Fönn Fannarsdóttir
Áslaug Rún Harðardóttir Ola Gustaf Nolåker
Tor Alvar Erik Nolåker
Ísar Fergus Peter Nolåker
Helena Huld Harðardóttir Magnus Salama
María Sif Harðardóttir Ebba Olsson Wikdahl
Þorbjörg Rós Bjarnadóttir Anders Fogelberg
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
Elís Gunnar Þorsteinsson
afi Elli, f. 5. júlí 1929,
Gullsmára 9, Kópavogi,
fyrrverandi bóndi á
Hrappsstöðum í Dalasýslu
og verkstjóri Vegagerðarinnar í Búðardal,
lést 3. desember.
Kveðjuathöfn verður í Fossvogskirkju
föstudaginn 15. desember kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Emilía Lilja Aðalsteinsdóttir
Leifur Steinn
Bjarnheiður
Alvilda Þóra
Gilbert Hrappur
Guðrún Vala
Elskulegi faðir okkar, bróðir og mágur,
Sigurjón Kristmannsson
f. 23. janúar 1955,
lést á Hrafnistu í Reykjavík
16. nóvember 2017.
Kveðjuathöfn hefur farið fram og
þeim sem vilja minnast hans er bent
á Klúbbinn Geysi. Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar og
heimaþjónustu í Hátúni 10b.
Gísli Már Sigurjónsson
Kristjana Sigurjónsdóttir
Sigrún H. Kristmannsd. Landvall Peter Landvall
Stefán Sólmundur Kristmannss. Johanna Engelbrecht
Gísli Ólafsson Katrín G. Sigurðardóttir
Þökkum innilega auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
elsku eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Báru Bjargar
Oddgeirsdóttur
Álftamýri 19, Reykjavík.
Gunnar Gregor Þorsteinsson
Kristín Birgitta Gunnarsdóttir Marteinn Stefánsson
Helga Gregor Gunnarsdóttir Jónas Þórðarson
Katrín Erla Gregor Gunnarsdóttir Elís Rúnarsson
og ömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Aðalheiður Jónsdóttir
lést á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 28. nóvember. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Aðstandendur þakka veitta
samúð og vinarhug.
Haraldur Sæmundsson
Elín A. Eltonsdóttir Hrafn Sveinbjörnsson
Sigurlína Kristín Scheving
Helga Haraldsdóttir Hróðmar I. Sigurbjörnsson
Hrefna Haraldsdóttir Björn B. Björnsson
Halla Haraldsdóttir Víðir Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Sigurbjörg Hreiðarsdóttir
frá Garði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Lundi
4. desember. Útförin fer fram frá
Hrunakirkju föstudaginn
15. desember kl. 14.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Helga Ragnheiður Einarsdóttir Sigurdór Karlsson
Örn Einarsson Marit Einarsson
Björn Hreiðar Einarsson Margrét Óskarsdóttir
Hallgrímur Einarsson Elísabet Reynisdóttir
Eiður Örn Hrafnsson Hrönn Sigurðardóttir
8 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F Ö s T U d A G U r24 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
E
-8
0
9
4
1
E
6
E
-7
F
5
8
1
E
6
E
-7
E
1
C
1
E
6
E
-7
C
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K