Fréttablaðið - 08.12.2017, Síða 42
þÁ HÁTÍÐ ER Í BÆ
J
Al þ j ó ð l e g i m a n n -r é t t i n d a d a g u r i n n er næsta sunnudag og þá ætlar hópur kvenna úr #metoo byltingunni að koma
saman á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins kl. 16 og lesa frásagnir úr bylting-
unni á Íslandi. Á sama tíma verða
samsvarandi viðburðir haldnir á
Akureyri, Ísafirði og Seyðisfirði. Á
meðal þeirra sem standa fyrir þessu
er Silja Hauksdóttir leikstjóri en hún
bendir á að strangt til tekið sé þessi
uppákoma þess eðlis að það sé þörf
fyrir leikstjóra. „En ætli það séu ekki
helst við Sara Marti Guðmundsdóttir,
leikkona og leikstjóri, sem komumst
nálægt því að kallast leikstjórar að
þessari dagskrá en ekkert af þessu
hefði orðið að veruleika nema fyrir
hinar öflugu jarðýtur sem eru í for-
svari fyrir hópinn.“
Nafnlaus flóðbylgja
Silja leggur áherslu á mikilvægi þess
að konurnar sem stíga á svið séu
ekki að fara að lesa sínar eigin sögur.
„Þetta er úrval af sögum úr sem
flestum kvennahópum; sviðslistum,
stjórnmálum, vísindum, íþróttum,
fjölmiðlum og fleiri en þeir sem lesa
mynda líka ákveðinn þverskurð. Sög-
urnar sem þær lesa eru nafnlausar og
valdar út úr hópnum þannig að það
er ekki eins og viðkomandi kona sé
að lesa sínar sögur.
Það er ekki síst vegna þess sem
hefur komið í ljós að undanförnu, að
í krafti nafnleysisins treysta konur
sér til að opna munninn um það sem
þær hafa orðið fyrir í gegnum árin í
sinni grein. Fyrir vikið stöndum við
frammi fyrir gríðarlegum fjölda af
sögum kvenna um raunverulegar
og erfiðar upplifanir sem hafa liðist
í skjóli þöggunar. Það má segja að
þetta sé eins konar nafnlaus flóð-
bylgja sem er að ganga yfir og þetta
er bara rétt á byrjunarstigi.“
Hin sorglega miklu áhrif
En hvers vegna að fara með þetta inn
á leiksvið og lesa – er þetta gjörn-
ingur eða leikhús? „Ætli það megi
ekki helst kalla þetta gjörning því
þetta er ekki leikhús, ekki flutningur
í leikhúslegum skilningi. Það sem við
erum að horfa til er hvað þetta gerir
umfram fyrir þessar sögur sem þegar
hafa komið fram og umræðuna sem
hefur skapast í kjölfarið. Þetta beinir
vissulega athygli að þessu en það eru
líka þarna hlutir sem maður upp-
lifir sem erfiða. Sögur sem taka á
mann sem lesanda. En að heyra þær
úr munni kvenna verður til þess að
maður áttar sig endanlega á því að
það er þarna manneskja sem lifði
þetta, lenti í þessu, þoldi þetta. Þetta
er ekki texti í leikriti, þetta er ekki
slúður eða kjaftasaga. Þetta er raun-
veruleg persónuleg reynsla og því
miður oft mikill harmur sem þarf að
koma upp á yfirborðið.“
Eruð þið þá að leitast við að raun-
gera þennan veruleika með þessum
flutningi? „Já, það má segja að það
sé nákvæmlega það sem gerist. Þetta
ljær þessu annað rými og annað kast-
ljós og þegar maður situr og horfir á
manneskju flytja sögu sem annað-
hvort hún eða einhver önnur hefur
lent í, þá áttar maður sig skýrar á
raunveruleikanum. Áttar sig á raun-
veruleikanum að baki sögunni og
hvernig upplifunin var og hvaða
áhrif þetta hafði og hversu lengi þetta
hefur setið í viðkomandi konu. Hin
sorglega miklu áhrif sem þetta getur
haft á líf kvenna og starf.“
Öll enn í sárum
Aðspurð hvort það verði einvörð-
ungu konur á Nýja sviði Borgarleik-
hússins á sunnudaginn segir Silja að
það verði vissulega þannig á sviðinu
sjálfu. „En mikið væri nú ótrúlega
yndislegt að sjá strákana líka, ekki
síst vegna þess að það kemur sumum
mjög á óvart hvernig raunveruleikinn
er búinn að vera og þá ekki síst karl-
mönnum. Þetta er ekki eins mikið
þeirra raunveruleiki og það fylgir
því ákveðið áfall að komast að því
hvernig þetta er, en vonandi mun
það leiða til einhverra breytinga til
frambúðar.“
En hvernig finnst þér viðbrögðin
í samfélaginu hafa verið? „Ég veit
það ekki,“ segir Silja hugsi en heldur
svo áfram: „Þau hafa vissulega verið
ótrúlega mikil og sterk en samt ekki
vegna þess að sprengingin sjálf var
það öflug. En ég upplifi ekki að það
sé verið að þagga þetta niður heldur
að þeir sem áttuðu sig ekki á þessu
séu líka í áfalli. Að við séum bara öll
dáldið í sárum enn þá. En áhrifin til
lengri tíma eru held ég að það er auð-
veldara að benda á það sem miður fer
þegar það gerist.“
Silja segir einnig um viðbrögðin að
konurnar í sviðs- og kvikmyndalista-
hópnum hafi komið með skýrt ákall
um aðgerðaplan og gefið stofnunum
og samtökum þrjá mánuði til þess að
verða við því ákalli. „En maður vill
líka gefa fólki tækifæri til þess að átta
sig og hugsa hvernig það vill bregðast
við. Ekki hvort heldur hvernig. Vegna
þess að ég trúi því einlægt að allir vilji
gera það en það þarf að gera það með
skýrum hætti og það er allt í lagi að
fólk taki sér ákveðinn tíma í það en
þó ekki of mikinn. Viðbrögðin þurfa
að vera íhuguð og á forsendum þeirra
þolenda sem eru að koma fram núna
með sínar sögur.“
Þetta er ekki texti í leikrit, slúður eða kjaftasaga
#metoo byltingin stígur á Nýja sviðið í Borgarleikhúsinu á sunnudaginn þegar konur lesa sögur þolenda úr
ýmsum atvinnugreinum. Silja segir að þetta hjálpi viðtakendum til þess að átta sig á þessum veruleika.
Sara Marti Guðmundsdóttir og Silja Hauksdóttir eru á meðal þeirra kvenna sem koma að #metoo viðburðinum á sunnudaginn. Fréttablaðið/SteFáN
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
8 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F Ö s T U d A G U r30 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
menning
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
E
-4
5
5
4
1
E
6
E
-4
4
1
8
1
E
6
E
-4
2
D
C
1
E
6
E
-4
1
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K