Skátablaðið Faxi - 12.10.1969, Síða 7

Skátablaðið Faxi - 12.10.1969, Síða 7
Vetrawtilegur eru lítið þekk t fyrirbæri hér hjá okkur í Faxa, en þær eru oft á tíðum mun skenunti1egri en sumartútilegur. Eg ætla aö telja upp það helzta er nauðsynlegt er að hafa með ser í vetrarúti1egur; gott tjald með föstmn botni, vindsæng, svefnpoki ullartepui og prímus til að hita upp tjaldið og matinn. Ef skátarnir eru með þennan útbúnað og vel klæddir er þeim ekkert að vanbúnaði þo að það se nokkra stiga gaddur eða jafnvel snjór. Ef farið er í útilegu í snjá skal gæta þess vel að troða snjóinn á tjaldstæðinu og í kring um það áður en tjaldað er, og varast skal að láta snjó berast inn x tjaldið. Þið kannist öll við þá hræðslu að ykkur verði kalt 1 'útilegu pg þá sérstaklega á veturna. Þessi hræösla er alveg óþörf ef rétt er að farið. Þó eigið þið alltaf a.ð hafa með ykkur föt til skiptanna ef hætta. er á bleytu og skipta strax um föt, en látið alls ekki fötin þorna á ykkur því þá eruð þið næs.tum örugg með að fá kvef. Þegar farið er í pokanna skal þess vandlegá gætt að ekkert liggi utan 1 tjaldinu og þið skuluð vera það langt frá tjaldgaflinum að ::ó -þið byltið ykkur eitthvað þá farið þið ekki utan í tjaldið. Svefnpokanum skuluð þið loka eins þétt og unnt er og breiða teppið vel yfir ykkur. Sá misskilningur er allt of algengur að mönnum verði heitara í svefnpokanxun ef þeir fara í fötunum ofan í pokann. Þetta á alls ekki að gera, þið eigið að sofa vetur, sumar, vor og háfet í svefnpoka eins og þiö sofið í rúminu h.eima hjá ykkur, aftur á móti er gott að stinga ofan í pokan hjá sér sokkunum og skyrtunni er maður fer í fyrst þegar maö.ur skríður glaður og vel útsofinn úr svefnpokanum næsta morgun. Eg skora á ykkur að fara í útilegu í vetur farið . vel búinn og hugsið áður en þið framkvæmið og þá verða þessar útilegur ekki síðri en sumarútilegurnar og ykkur verður ekki kalt. Sig. Þ. Jónsson „Lukkutröllum" —7—

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.