Skátablaðið Faxi - 01.12.1989, Blaðsíða 10
Dróttskátanámskeið
Helgina 10., 11. og 12. mars var
haldið dróttskátanámskeið hér í Eyj-
um. Leiðbeinendur voru Guðmundur
Pálsson og Páll Magnússon. Drótt-
skátar eru þeir skátar sem eru 16 ára
og eldri. Dróttskátastarf er mjög fjöl-
breytt og skemmtilegt og byggist mikið
upp á hinum ýmsu sérnámskeiðum,
sem samt ráða dróttskátasveitirnar
sjálfar mestu um það hvernig starfið er
byggtupp.
Föstudagur 10. mars
Kl. 20:00 voru allir mættir niður í
skátaheimili hressir og kátir og vel
undirbúnir til þess að takast á við
helgina. Eftir námskeiðið hafði verið
sett, skrifuðu allir niður það sem þeir
vonuðust til að fá út úr námskeiðinu.
Svo var slædsmyndasýning þar sem
byrjað var á myndum frá Gilwellnám-
skeiði, en það er vikunámskeið fyrir 18
ára og eldri dróttskáta. Næst voru
sýndar myndirfrá Landsmótinu í Viðey
1986 og margar fleiri skemmtilegar
myndir. Að þessu loknu fór Gummi
Páls yfir það sem við höfðum skrifað
niður um væntingar okkar út úr nám-
skeiðinu og námskeiðsdagskrána. Nú
hófst myndbandssýning, þar sem byrj-
að var á myndum frá skátum í Frakkl-
andi og svo var sýnd ein til viðbótar.
Eftir myndbandssýninguna var"komið
á hugmyndasamkeppni um nafn á
sveitina. Beðið var um að nafnið yrði
eitthvað sem við yrðum stolt af s.s.
DS.?????
Þá var sagt frá því að aðalverkefni
námskeiösins væri myndband um starf
dróttskáta.
VEREFNI: Myndband.
Lengd: 7 mínútur.
Efni: Kynningarmyndband um drótt-
skáta og starf þeirra.
Eftirfarandi efnisþættir þurfa að koma
fram:
1. Hvað gera dróttskátar?
2. Hvernig vinna þeir?
3. Hvert er takmark þeirra?
* Gerið ykkur grein fyrir hverju þið viljið
koma á framfæri og hvernig.
* Gerið nákvæma tímasetningu.
* Upptaka.
Svo var það Para hver gerir besta
myndbandið??????
Loksins var skipt í flokka. Voru það
4. flokkar. Að því lokn ú tóku allir til
óspilltra málanna og byrjuðu að vinna
að verkefni námskeiðsins. Svo fóru
allir heim til að undirbúa ævintýri laug-
ardagsins.
• Ragnar að kvikmyndastörfum
Laugardagur 11. mars
Kl. 10:00 voru allir mættir hressir og
vel út búnir fyrir dagskrá dagsins.
Byrjað var á því að allir söfnuðust
saman inni í sal og var þá komið með
nokkur atriði til viðbótar í sambandi við
myndbandsverkefnið. Svo tóku allir til
óspilltra málanna og reyndu að gera
sitt besta í myndbandsmálunum. Upp
úr kl. 12:00 var borðaður hádegismatur
sem saman stóð af Ijúffengri og kékk-
óttri súpu og brauði með osti. Að því
loknu tóku allir til við að vinna að
myndbandsverkefninu. Um kl. 19:00
voru allir mættir upp á Steinsstaði og
eftir að allir höfðu snætt Ijúffengan
grillaðan mat var byrjað að sýna af-
rakstur verkefnisins og var mikið hlegið
því að þetta var auðvitað bráðfyndið
og skemmtilegt. T.d. hafði einn flikkur-
inn tekið upp mjög gott myndband en
þegar saklaus stúlka ætlaði að kíkja á
þetta í myndbandsvélinni tók hún óvart
yfir það sem var á myndbandinu, en
þau dóu sko ekki ráðalaus. Þau á-
kváðu bara að taka upp skemmtilegan
og léttan skátabrandara en því miður
var ekkert hljóð. Svo voru hinsvegar
aðrir sem spiluðu sama lagið aftur og
aftur og aftur út allt myndbandið. Eftir
sýninguna komu undarleg skilaboð.
Allir voru beðnir um að ná í skóna sína
og koma í einfalda röð inn í eldhúsi.
Þá var okkur sagt að það ætti að fara
að stofna DS. VESTMENN með sögu-
legri athöfn niður í kjallara?????
Að því loknu var haldið upp og hafin
kvöldvaka þar sem fram komu mörg
skemmtileg atriði s.s. söngleikur lát-
bragðsleikur, dans og smá limbó, þar
sem Gummi Páls bar sigur úr bítum.
Eftir þetta var sögð draugasaga sem
virtist óvart fara framhjá flestum. Svo
sofnuðu allir inni á Steinsstöðum nema
leiðbeinendurnir en þeir sváfu úti. Og
auðvitað dreymdi alla ævintýri
dagsins.
Sunnudagur 12. mars
Ægir vakti alla kl. 9:00 og heimtaði
að þeir færu á fætur. Svo komu leið-
beinendurnir inn eftir góðan nætur-
svefn úti fyrir. Þeir létu okkur vita að við
ættum að vera komin niður í skátahei-
mili kl. 11:00 og þá ætti að fara í
áætlun sveitarinnar og endurmeta
námskeiðið. Að því loknu var nám-
skeiðinu slitið.
Allir voru mjög ánægðir með nám-
skeiðið og þyrjuðu svo til strax að
skipuleggja starfið og herbergi sveitar-
innar. Þetta starf hefur samt ekki geng-
ið eins og það ætti og liggur niðri eins
og er, en vonast er til að það verði
hægt að bæta út því hið allra fyrsta.
Höf. Júlía Ólafsdóttir.
10