Skátablaðið Faxi - 01.12.1989, Blaðsíða 14

Skátablaðið Faxi - 01.12.1989, Blaðsíða 14
Fyrsta útilegan Skátaflokkurinn „Þrestir" 1. fl. II. sv. fór í útilegu frá Faxafelli 18.-19./4 ‘42. Skátaflokkurinn „Fálkar" voru meö og stjórnaöi Karí Kárason flokksforingi þeirra öllum hópnum. Lagt var af staö frá „Faxafelli“ kl. 9 á laugardagskvöld. Kokkar áttu aö vera Sveinn Björnsson og Símon Kristjánsson, því þeir ætl- uöu aö taka matreiðslupróf, og vonuð- ust allir eftir aö fá góöan mat. Veður var ágætt þegar lagt var af staö. Allir voru fullklyfjaöir af svefnpokum, sæng- um og ööru svefn- og suðudrasli. Þegar innúr kom var byrjaö aö bisa viö aö opna en þaö reyndist ómögulegt og fór því Sveinn inn um geymsluglugg- ann og gekk krafturinn svo frá honum aö hurðin opnaöist þegar hann var hálfur kominn inn um gluggann. Svolít- iö var byrjaö aö rigna og allir tróöust inn sem mest þeir máttu. Síðan var öllum skipaö aö tygja sig í háttinn. Þegar allir voru komnir í pokana og sængurnar, fór Kári aö segja drauga- sögur og aörar sögur. Síöan áttu allir aö fara aö sofa en þaö tókst illa því sumir sofnuöu ekki og aðrir sváfu í 2-3 tíma. Kl. hálf sex um morguninn vakn- ar Bebbi galar og spyr hvort ekki sé kominn morgun. Síðan galar hann á Ella og viö umrótið í básnum þegar tuddinn vaknar, vaknar Símon og síð- an ráðast þeir meö ópi og óhljóðum á Bjarna og spyrja hann hvaö klukkan sé og var hún þá h alf sex. Bjarni galar svo hátt hvaö klukkan var að flokksfor- inginn vaknar eins og illur hani og skipar hinum aö þegja en þeir hlýöa ekki nema stutta stund og byrja þá aftur að ólmast og viö þaö vöknuöu allir nema Sveinn. Þegar flokksforing- inn vissi það vaknaði í honum prakkar- aeöliö og fór hann fram í eJdhús og náöi í sót til aö mála Svein og tókst það vel. Síðan var byrjaö að klæöa sig og taka til. Þegar búiö var að taka til fóru krakkarnir aö laga til hafragraut en viö hinir fórum í box. Fyrst fóru Kiddi og Egill síðan Elli og Óli og síðan Bebbi og Bjarni, en Bebbi hætti fljótt og tók þá Símon viö síðan fóru Sveinn og Kári og var þaö harðasta baráttan. Síðan fengu allir hafragraut og átu vel. Svo fórum viö út á blett og fórum aö leika okkur í ýmsum leikjum og varð Kári fljótt frægur fyrir bit sitt. Um kl. 8 kom deildarforinginn og dvaldi hjá okkur til kl. 9, en þá fór hann ofan aö Faxafelli aö tala viö sveitunga okkar. Kl. 9.15 komu sveitungar okkar og áttum viö aö fara í göngu meö þeim er fyrst fórum viö inn að fá okkur kakó og brauð en á meðan voru allir úti aö leika sér. Síðan lögöum við af staö inn í Dal og var farið þar í spretthlaup og aðra leiki. Svo fórum viö út í bústaö en hinir fóru heim. Þegar viö komum var maturinn ekki til og fór því Sigmundur sveitarforingi að kenna box. Kl. rúm- lega 12 fengum viö matinn og var þá flokksforingi okkar kominn og boröaöi hann meö okkur. Kl. 1 áttum við aö fara í gönguæfingu inn á völl og vorum við mættir þar á réttum tíma. Nánar verður ekki sagt frá því. Kl. 3 vorum viö komnir innúr og var þá farið aö snjóa og fóru krakkarnir að elda kakó en viö hinir fórum í blindingsleik og aöra leiki. Kl. 4.15 fengum viö kakó og átum viö allt okkar nesti. Egill og Kiddi lentu í því aö skúra gólfið og laga til. Hinir voru inní svefnherbergi og voru að segja sögur. Þegar búiö var aö skúra var bullandi rigning og slydda og biöum við í dálitla stund og gáöum hvort nokkuð stytti upp en þaö var ekki og var þá tekið þaö ráö aö halda heim en þar sem margir voru kápulausir leist þeim ekki á blikuna. Svo flýttum viö okkur heim í bullandi rigningu og slyddu. Komum aö „Faxafelli" kl. hálf sjö, allir haundblautir. Mættir voru 6. Komum heim kl. 6.45. Kristján Georgsson, ritari. Samþykkt af Kára Þ. Kárasyni. • Efri röð frá vinstri: Einar Erlendsson, Hafsteinn Ágústsson, Garðar Asbjörnsson. Neðri röð frá vinstri: Einar Valur Bjarnason, Óskar Þór Sigurðsson, Sigurður Gunnarsson. 14

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.