Skátablaðið Faxi - 01.04.1990, Blaðsíða 3
Séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson:
Fermingin
Það erkærleiks-
boðorðið um að
elska Guð af öllu
hjarta og náung-
anneinsogsjálfan
sigsemeryfirskrift
fræðslunnar.
Viðhorfið
gagnvart
ferming-
unni
Nú er talað
um að það sé lítil
alvara í þessu hjá
börnunum. Þau
láti ferma sig til að
• Séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
A hverju vori eru þúsundir unglinga hér
á landi sem láta ferma sig eins og sagt er.
Orðið ferming er þýðing úr latneska
orðinu „conformatio“ sem þýðir að stað-
festa. Það, sem börnin staðfesta á
fermingardaginn, er skírnarheitið sem
ástvinir þeirra unnu fyrir þeirra hönd
þegar þau voru í frumbernsku.
A skírnardegi barnsins lofa aðstand-
endur barnsins ásamt með söfnuðinum
að ala það upp í Ijósi fyrirheits skírnarinn-
ar. Það merkir að foreldrar og aðrir
aðstandendur ásamt með söfnuðinum
lofa að kenna barninu að elska Guð,
varðveita orð hans og fyrirheit og þjóna
náunganum í kærleika.
Fermingarundirbúningur er þess
vegna skírnarfræðsla. Barninu, sem nú
stendur við þáttaskil í lífinu, er kennt
hvað það merkir að tilheyra Kristi. Um
leið gerist það fullgildur þátttakandi í
starfi kirkjunnar. Þegar þetta er haft í
huga hlýtur fermingarfræðslan að vera
eðlilegt framhald á þeim vilja fjölskyld-
unnar og barnsins, að tilheyra Kristi og
vera í kirkju hans.
Fermingarfræðslan
Alveg eins og margt hefur breyst í
starfi skólanna á síðustu árum, þá hefur
fermingarfræðslan tekið miklum breyt-
ingum. í stað þess að börnin séu látin
læra sálma og ritningagreinar utan að er
reynt að fá þau til að upplifa samfélag í
kirkjunni. Að þau læri að meta það sem
kirkjan hefur að bjóða í helgihaldi, en um
leið er reynt að gera fermingarbörnunum
Ijóst, hvað í því felst að vera kristinn, karl
eða kona, í nútímasamfélagi. Það má
orða þessa breytingu þannig, að áður
var talað til barnanna en núna er frekar
reynt að tala við þau.
fá gjafirnar og til
að vera ein.s og
allir hinir. Víst get ég skilið að það er
gaman að fá góðar gjafir og oft er erfitt að
brjóta sig út úr hópnum og ætia að verða
öðruvísi.
En af kynnum mínum af fermingar-
börnunum, þá er ég þess fullviss, að
alvara býr einnig að baki. Og það er
aðeins Guð einn sem gefur vöxtinn og
veit hvað býr með hverjum einum. Okkar
er að sá Guðs orði og gera það af
vandvirkni og biðja fyrir því að vel takist
og uppskeran verði mikil. Ábyrgð heimil-
inna er einnig mikil. Hvaða veganesti fær
barnið frá heimili sínu og hvaða viðhorf
ríkir þar til fermingarinnar? Og þó að
margir verði til að gagnrýna hlaðin veislu-
borð og dýrar gjafir held ég, að það séu
fáir, sem gagnrýna þá fræðslu sem á að
fara fram í undirbúningnum.
Það er kirkjunni ákaflega mikils virði að
fá tækifæri til aö hafa börnin í heilan
vetur til að fræða þau og tala viö þau um
þetta mikilvæga málefni sem trúin og I íf er.
Og það er ekki síst mikilvægt við þessi
mikilvægu tímamót í lífi þeirra þegar þau
eru að verða sjáfstæðari og um leið
ábyrgari fyrireigin lífi.
Það er vissulega ekki sama hvernig
gengið er eða hvert farið er á lífsgöngu.
Það þekkjum við öll. Kirkjan býður ferm-
ingarbörnum góðan daginn alla daga og
vonar að þeim farnist vel í lífinu og að
þau verði trúir og góðir lærisveinar meist-
arans frá Nazaret.
Það er víst öruggt að Guð mun ekki
bregðast og vill okkur allt það besta.
Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
ÚTGEFANDI: Skátafélagið Faxi, Vestmannaeyjum.
RITNEFND: Hjalti Jóhannesson, Kristján Georgsson,
Bjarki Bragason og Jón Gunnar Erlingsson.
ÁBYRGÐARMAÐUR: Marinó Sigursteinsson.
PRENTVERK: Eyjaprent/Fréttir hf.
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
3