Skátablaðið Faxi - 01.04.1990, Qupperneq 14
vont veður. Það er bara misjafnlega gott.
Þegar tjöldin leka eða fjúka er það ekkert
til að fárast yfir, heldur til að ráða bót á hið
bráðasta og úr því geta orðið hin skemm-
tilegustu ævintýri.
Síðasta kvöldið
En dagarnir líða og fyrr en varir er
komið að síðasta kvöldinu. Nóttin sem í
hönd fer er oftast óróleg. Krökkunum
finnst þessi tími hafa verið fljótur að líða
og þeir vilja gjarnan ná í skottin á síðustu
klukkustundunum áður en þær renna út í
eilífðina. Þau vilja vaka við söng og gleði
en margir eiga langa og stranga heimferð
fyrir höndum og mikið verður að gera á
morgun svo svefninn er nauðsynlegur.
Svo rennur síðasti mótsdagurinn upp.
„Við sjáumst
fljótt aftur“
Á einum dagsparti hverfur svo þessi
borg, sem áður var full af lífi, gleði og
gáska. Söngvarnir sem bárust frá varð-
eldunum eru hljóðnaðir og götuslóðarnir
sem mynduðust í borginni okkar, gróa og
hverfa. Senn koma bílarnir að sækja
okkur og við höfum tæplega tíma til að
kveðja allar kunningjana. Það verður að
nægja að veifa út um bílglugga og kalla:
„Sjáumst aftur". Svo rennur bifreiðin í
áttina heim. Fyrst er sungið, en brátt fer
þreytan að segja til sín og margir dotta
eða sofna vært. Við erum á heimleið.
Úrdráttur úr grein eftir Tryggva Þorsteinsson.
Tryggvi var um áratugaskeið ein helsta driffjöðrin
í skátastarfi á Akureyri. Hann skrifaði mikið af
góðum greinum um skátastörf í gegnum tíðina en
þó eru þekktastar bækur hans um Varðeldasögur
I og II. Þar fjallar Tryggvi á’ líflegan hátt um
ýmislegt sem gerðist á hans skátaferli.
• Frá landsmóti í Viðey.
• Svipmyndir frá svæðinu.
Foreldrar og eldri
skátar athugið:
Látum okkur ekki
vanta á Landsmót
Laugardaginn 7. júlí, næst síðasta
dag mótsins, verðursérstakurgestadag-
ur. Þá verður svæðið galopnað fyrir alla
þá sem vilja koma og sjá hvernig lands-
mót skáta fer fram. Þennan dag ættu allir
foreldrar sem vettlingi geta valdið að
koma i heimsókn, sýna sig og sjá aðra.
Þeir eldri skátar sem af einhverjum
ástæðum hafa ekki tök á að vera með
okkur á meðan á mótinu stendur ættu
auðvitað líka að koma og taka þátt í öllu
því skemmtilega sem boðið verður uppá
þennan dag. Og svo taka auðvitað allir
þátt i hátíðarvarðeldinum um kvöldið.
1 4
SKÁTABLAÐIÐ FAXI