Skátablaðið Faxi - 01.04.1992, Blaðsíða 19
andi hvað mannskapnum var kalt. Sest
var að snæðingi og bræddur snjór til
drykkjar og til að hreinsa salernis-
skálamar sem vom tvær. Nokkrir vaskir
sveinar fengu upphitaðar flatböku frá
föstudagskvöldinu. Allir héldu svo inn
nema nokkrirúr „öldungadeildinni" sem
bmgðu sér í göngutúr. Tókst það vel og
allir komu heilir heim. Síðan kom hin
magnaða kvöldvaka en flóin Max lék þar
aðalhlutverkið við mikinn fögnuð þess-
ara ungu skáta. Sungið var og ýmiss
skemmtiatriði vom á boðstólum og vöktu
þau mikla kátínu. Ýmiss málefni vom
rædd og var síðan ákveðið að halda til
rekkju. Var mannskapurinn sofnaður eft-
ir erfiðan og kaldan dag uppúr klukkan
2:00.
Sunnudagurinn 15.03.92.
Mannskapurinn var vakinn í annað
sinn og klukkan 9:00 var dótinu pakkað
niður og morgunmatur snæddur. Alltaf
var það sama sagan, nokkrir vaskir
sveinar fengu sér upp-, upp-, upphitaða
flatböku frá föstudagskvöldinu. Ákváðu
nokkrir að fara á skíði en aðrir skiluðu
þeim enda lítið sem ekkert skíðafæri
vegna blindbyls. Var þá haldið langan
gang enn eina ferðin í skálann en þó hina
síðustu.
Vom þessi vösku skátar sóttir af rútu-
bifreið um 3:00 leytið. Gengu allir inn í
rútubifreiðina með mikilh eftirvæntinu í
að komast heim. Gekk ferðin mjög brös-
uglega til Þorlákshafnar vegna lélegrar
færðar en við komumst þó að lokum í
hinn „gullfallega" Herjólf en það var
ekki fyrr en um hálf sex.
Lagði Herjólfur af stað til Eyja sam-
kvæmt áætlun og var hann kominn um
klukkan 10:30. Þar biðu eftirvæntingar-
fullu og stoltu foreldrarnir eftir sínum
vösku afkvæmum. Kvöddust allir um
borð með táraflóðum eftir vel heppnaða
ferð og héldu heim.
# Palli stjórnar fjörinu á kvöldvökunni.
• Lagið tekiö á kvöldvókunni.
# Sumir vom betri en aðrir í skíðaíþróttinni.
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
1 9