Skátablaðið Faxi - 01.12.1993, Blaðsíða 3

Skátablaðið Faxi - 01.12.1993, Blaðsíða 3
Bókasafn Vestmannaeyja SKÁTABLAÐIÐ FAXI 3 Séra Bjarni Karlsson: Gleðilegt nýtt kirkjuár Já þú vissir það kannski ekki að fyrsta sunnudag í aðventu hefst nýtt kirkjuár. Með aðventunni kemur nýtt upphaf í lífi okkar allra. Fyrsta sunnudag í aðventu, þegar kveikt er á spádómskertinu, minnumst við þess að löngu áður en Jesús fœddist sögðu spámenn Guðs svofrá að heimurinn myndi eignast frelsara. Þá strax vissu menn að brátt myndi koma nýr tími, þegar Guð hœfist handa við að frelsa heiminn frá synd og dauða. í dag er árið 1993. A áttunda degi frá fœðingu Guðssonar var hann umskorinn, samkvœmt hefð- um Gyðinga, og honum var gefið nafnið Jesús, eins og engillinn Gabríel hafði fyrirskipað. Sá dag- ur er nýársdagurinn á almanak-. inu. Næsta nýársdag teljum við nítjánhundruð níutíu ogfjögur ár frá þeim degi er Guðs sonur fékk mannsnafn og varð fullkomlega einn afokkur. Þannig minnir aðventan og nýtt kirkjuár okkur á að Guð hefur alltaf vakað yfir þessum heimi og er staðráðinn í að frelsa hann og skapa nýjan himinn og nýja jörð í eilífðinni. Og nýtt almanaksár minnir okkur á að frelsarinn er þegar kominn í heiminn og að hann heitir Jesúsfrá Nasaret. Bjarni Karlsson. Á þessari aðventu og jólum skulum við gefa Jesú pláss í hjart- anu okkar. Gefum okkur tíma til að biðja til hans, lesa í biblíunni eða jólasálmana í sálmabókinni. Og auk þess stendur kirkjan þín opin og býður þér til guðsþjónustu margoft á þessu tímabili, þar er einnig gott að koma tilfundar við frelsarann Jesú. Guð gefi þér og þínum gleðileg jól. Bjarni Karlsson ; Jólakveðjur skátanna er árlegur víðburður. Þákoma viðskiptavínir og senda jólakort tii vina og ættingja með skátunum. Í kringum vinnu þessa skapast mjög mikil jólastemning hjá krökkunum. Á Þoriáksmessu er síóasti opnunardagur jólakveðjanna og er þá yfirleitt lokað um kl. 22. Þá eru krakkar úr skátafélaginu Faxa búnir að vera að vinna allt kvöldíð við að flokka kveðjumar eftir götum og götur í húsnúmer. Stundum geta kveðjumar ruglast og fólk fær ekki réttar kveðjur heim til sín. Ef svo kemur fyrir þetta áriö, viljum við biðjast velviróingar á því. Þessi vínna tekur dágóðan tíma. Yfirleitteru yngri krakkamir fram til 00- 01 aó nóttu til en eldri krakkamir eru alltaf dálítið lengur. Mikíl jólastemning er á Þorláksmessukvöld. Á aðfanga- dagsmorgun koma flest allir krakkamir frá kl. 8.30 - 11.00 og fara að bera kveðjumar í hús. Minnum við ykkur á að skrifa niður rétt nöfn og heimilisfong svo að það verði auðveidara við flokkunina. Þökkumfyrir. Gleðilegjólog farsæit komandi ár. FAXI Ritnefnd: Högni Arnarson. Heiðrún B. Sigmarsdóttir, Ármann Hörskuldsson, Elva B. Ragnarsdóttir og Björk Guðnadóttir. Prentverk: Eyjaprent/Fréttir hf.

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.