Skátablaðið Faxi - 01.12.1995, Page 6
SKATABLAÐIÐ FAXI
6
as
kátar á Jamboree '95
í sumar toru rúmlega 200
skátar frá íslandi til Hollands á
svokallað Alheimsmót skáta sem
haldið er fjórða hver ár. Næsta mót
verður í Chile árið 1999. Ásamt
þessum 200 skátum voru 6 skátar úr
skátafélaginu Faxa. Freydís
Vigfúsdóttir, Guðmundur Vigfússon,
Jóhann Sigurður Þórarinsson, Heiðrún
Björk Sigmarsdóttir, Ágúst Bjarnason
og Björgvin Ámundason.
Að kvöldi 27. júlí hittist sveitin
okkar, Sturlungar í Skátahúsinu og
gistum við þar um nóttina. Við vorum
seinasti hópurinn sem fór til
Lúxemborgar af íslensku skátunum.
Hinar sveitirnar höfðu farið dagana
26. og 27. júlí en við héldum hins
vegar til Lúx. þann 28. júlí. Þaðan
héldum við til Þýskalands og gistum í
Wolfsburg á tjaldsvæði hjá þýskum
skátum. Þar var mikið um að vera, við
I heimagistingu í Belgíu.
skoðuðum ýmsa merka staði, t.d.
Wolkswagen verksmiðjuna. Á sjálfu
tjaldsvæðinu voru haldnar kvöldvökur
að hætti okkar skátanna. Við kepptum
við þýsku skátana í fótbolta og
auðvitað unnum við með yfirburðum.
Að kvöldi 31. júlí lagði síðan allur
hópurinn af stað til Hollands með
mikilli tilhlökkun.
Rútuferðir í 35- 40 stiga hita.
Við ferðuðumst milli landa í Evrópu
með rútu og okkur til mikils ama var
sama sem engin loftkæling í rútunum.
Skátarnir úr Faxa að hvíla sig eftir etfiða göngu.
manns. Á öllu mótssvæðinu voru því
hvorki meira né minna en 25.000
þátttakendur auk 6000 manna í
vinnubúðum. Á mótinu sjálfu var
alltaf nóg að gera, þannig að það var
alls ekki hægt að láta sér leiðast. Við
vorum vakin klukkan 7.00 á
morgnana. í sumum tilfellum reyndist
fremur erfitt að vekja ónefnda aðila og
voru það því miður tveir
Vestmannaeyingar. Milli klukkan
8.00 og 9.00 var svo farið í dagskrá.
Þar höfðum við úr svo mörgu að velja
að maður gat ekki prófað helminginn.
T.d. fórum við í hike, lærðum að kafa,
sigldum á litlum seglskútum og fórum
í bogfimi. Við Vestmannaeyingarnir
tókum okkur saman og skruppum í
Vatnaveröldina. Þar var klifurveggur
sem við prófuðum en það gekk misvel
að komast alveg upp. Við fórum í
þrautabraut sem fól í sér m.a að
stökkva yfir drullupoll með spýtu, þ.e.
stangarstökk. Einnig prófuðum við
kajakarennibraut. Þarna var líka
stórskemmtileg “sundlaug” sem var
með sandleðju á botninum.. Okkur
þótti þetta hörkufjör og leiddi fjörið út
í leðjukast. Oj, ímyndið ykkur
hárþvottinn hjá okkur á eftir. Okkur
til mikillar undrunar, vorum við þau
einu sem fórum í sturtu án undirfata
eða annars klæðnaðar. Ymislegt
annað var hægt að gera t.d. svifflug,
fallhlífastökk og leikhúsförðun. Á
hverju kvöldi voru svo alltaf
Rútuferðirnar voru mislangar eða frá
1 klst. uppí 15 klst.. Snemma næsta
morgun komum við loksins komin á
mótsvæðið. En vandræðin héldu samt
áfram því farangurinn okkar fór ekki á
réttan stað. Við þurftum því að leita í
3-4 tíma að töskunum. Loks fundust
þær og tók þá við þriggja km ganga
með 10 kílóa töskur á bakinu aftur á
tjaldsvæðið. Sveitin okkar fór á svæði
2 sem var kallað Aries eða Hrúturinn
á íslensku. Öll svæðin voru nefnd
eftir stjörnumerkjunum. Á mótinu
voru 15 slík svæði og á hverju þeirra
voru um 50 sveitir hver með um 40