Skátablaðið Faxi - 01.12.1995, Blaðsíða 13
SKATABLAÐIÐ FAXI
13
skátaforingjann prófa og mest var
gaman ef viðkomandi blotnaði.
Þarna vorum við líka með
björgunarbát á síkinu til sýnis.
Greinahöfundur að dreifa kortum.
Sýningarsvæði Landsbjargar vakti
gífurlega athygli og er áætlað að ekki
færri en 100.000 manns hafi séð svæðið
hjá okkur. Við fengum mikla kynningu
í sjónvarpinu í Hollandi og víðar. Við
fórum líka í mörg viðtöl í útvarp og
blöð. Já það var virkilega gaman að
vera Islendingur á Jamboree, og
vonandi á þetta eftir að skila okkur
skátum og ferðamönnum til íslands á
komandi árum.
Vinnutíminn hjá okkur var frá
klukkan 9 á morgnana til klukkan 5
síðdegis, stundum lengur. Á kvöldin
gátum við upplifað skátalíf eins og í
gamla daga, setið við varðeld steikt
brauð og sungið skátalög, hitt skáta
frá öðrum löndum o.fl.
Að lokum má geta þess að
þessi kynning á samstarfi
Landsbjargar og skátanna tókst mjög
vel. Hún vakti athygli og aðdáun allra
sem sáu sýningarsvæðið. Menn
undruðust hve samtök sjálfboðaliða,
eins og björgunarsveitirnar, hefðu náð
langt í þjálfun, tækjabúnaði og
skipulagningu. Jafnframt að
sveitimar væru jat'n veigamikil
hlekkur í björgunar og hjálparstörfum
á Islandi eins og raun ber vitni.
Þetta voru alveg
ógleymanlegir dagar. Ég vil hvetja
alla, unga sem gamla skáta, að byrja
að safna fyrir næsta Jamboree sem
verður eftir 4 ár í Chile. Hittumst
hress þar.
Skátakveðjur
Auróra G. Friðriksdóttir
Landsmót skáta 1996
Mótsnefnd Landsmóts Skáta
1996 hefur sett íslensku
skátahreyfingunni það markmið að
Landsmótið 1996 verði fjölmennasta
Landsmót skáta sem haldið hefur verið
á Islandi. Verður því á mótinu
bryddað upp á ýmsum nýjungum.
Tjaldbúð verður með öðru sniði en
verið hefur á síðurstu landsmótum. Þá
verður skipulag dagskráratriða með
nýjum hætti. Boðið verður upp á
sérstaka dagskrá bæði fyrir hinn
almenna skátaaldur og fyrir eldri skáta.
Mótið verður með mun alþjóðlegra
yfirbragði en við eigum að venjast og
verður umgjörð þess frábrugðin því
sem tíðkast hefur.
Þeir skátar sem munu sækja sitt
fyrsta landmót munu upplifa nýstárlegt
mót, mót sem þeir mega ekki missa af.
Rammi mótsins er "Á
víkingaslóð". Yfirbragð þess mun
mótast af þessum starfsramma. Líf og
lífshættir hinna fornu víkinga höfða í
reynd mjög til skáta og má með sanni
segja að þeir séu víkingar nútímans.
Líkt og skátarnir, ræktuðu
víkingarnir með sér hæfni til að lifa í
erfiðu umhverfi Þeir urðu að kunna að
bjarga sér við aðstæður þess tíma, og
afla sér og sínum lífsviðurværis. En
lífið var ekki bara barátta hjá
víkingunum heldur áttu þeir sína eigin
menningu sem birtist m.a. í skáldskap,
handverki og trúarbrögðum. Þeir voru
líkt og skátarnir í dag útilífsfólk og
ummhverfissinnar og elskuðu haf og
land - þeir voru skátar síns tíma.
Á Landsmótinu hittast skátar og
upplifa víkingaandann, hverfa að
nokkru aftur á víkingaöld, lifa eins og
víkingar - gerast víkingar.
Hittumst þar.
A nœsta landsmóti verður farið í víking, Mummi virðist vera reiðubúinn íþað.