Skátablaðið Faxi - 01.12.1996, Blaðsíða 10
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
0
Ylfíngar
í gegnum tíðina hefur það tíðkast hjá
Faxa að öllum foringjum hefur boðist að
fara á margskonar námskeið.
Helgina 11. til 13. október bauðst
okkur sem foringjum ylfingasveitar að
fara á ylfingaforingjanámskeið. Var það
haldið á Úlfljótsvatni eins og flest önnur
námskeið. Þar sem við höfum farið á
talsvert mörg námskeið áttuðum við
okkur fljólega á því að þetta námskeið
var njög ólíkt þeim námskeiðum sem
við höfðum farið á. I fyrsta lagi vorum
við fá á þessu námskeiði þ.e. ekki nema
fimm fyrir utam leiðbeinendur sem voru
tveir. Þetta líktist frekar flokksútilegu en
námskeiði. í öðru lagi var mikið um
föndur, leiki og söngva, sem er nokkuð
sem v ið vorum ekki vanar. Og í þriðja
lagi kom músagangur og „drauga-
gangur“ okkur að óvörum.
Við lærðum mikið um ylfingastarf og
barnastarf í heild. Við komumst að því
að Baden Powell byggði ylfingastarfið
mikið á Dýrheimasögu. Hún segir frá
Mowgli og vinum hans. Mowgli kemur
sem ungabarn inn í hóp úlfa og er alinn
þar upp. Baden Powell vildi tengja
Dýrheimasöguna skátastarfinu vegna
þess að Mowgli þarf að læra að komast
af í frumskóginum og bjarga sér sjálfur.
A þessu námskeiði fengum við tæki-
færi til að vinna með söguna. í byrju
námskeiðsins valdi hver og einn sér
nafn úr sögunni sem var svo okkar nafn
á námskeiðinu. Einnig höfðum við
undirbúið kvöldvökuna með því að búa
okkur til frumskógarrjóður, þar sem við
höfðum málað og klippt út myndir sem
tengjast sögunni og persónum okkar. Á
þessari kyöldvöku fengum við að kynn-
ast vígslu ylfinga, þar sem Akela æðsti
úlfurinn sá um vígsluna.
Við lærðum mikið á þessu námskeiði.
Við höfum nú þegar nýtt okkur hluta af
því í okkar starfi, en eigum þó enn
heilmikið eftir í gagnabankanum.
Að lokum langar okkur að segja frá
sveitinni okkar. Hún heitir Smáfólk og
er ylfingasveit með 15-20 börnum á
aldrinum 8-10 ára. Sveitaforingi hennar
eru ásamt okkur Sonja Andrésdóttir. Það
sem af er starfsárinu hefur sveitin farið í
göngutúr, gert grunnnámsverkefni, s.s.
lært hnúta, lært neyðarnúmer í
Vestmannaeyjum, höfuðáttirnar fjórar,
örnefni o.fl. Einning höfum við lært
hluta þess efnis sem kunna þarf fyrir
vígslu ylfinga, svo ekki sé minnst á alla
leikina og öll lögin sem við höfum lært.
I byrjun héldum við foreldra fund þar
sem við ræddum vetrarstarfið o.fl.
Stefnt er að því að hafa „nótt“ í
Skátaheimilinu fyrir jólin auk jólafönd-
urs og fleira. Einnig er stefnt að vígslu
um leið og kunnátta verður nægileg.
Við innritun í haust voru ekki tekin
inn yngri börn en átta ára. Var það gert
til þess að þau komist á Landsmót skáta
árið 1999, en aldurstakmark er ellefu ár.
Með skátakveðju
Sif Hjaltdal Pálsdóttir
og Júlía Olafsdóttir