Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Síða 5

Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Síða 5
Fífill Sveitinn okkar heitir Fífill. Hún er fyrir þá skáta sem hafa lokið við ylfin- gaverkefnin eða eru nýjir á sama aldri og félagar sínir. Sveitinn er blönduð, það þýðir að bæði strákar og stelpur eru í henni. Sveitinn samanstendur af 5 flokkum. Afturgöngum, Flugum, Kanínum, Myrkfælnum draugum og Rassálfum. Það má finna efni frá flokkunum ein- „ . „ . . hverstaðar í blaðinu. Sveitafonngjar Fifils I vetur héltum við “kvöldvöku” eða eiginlega svona að degi til, á henni voru sungin skátalög og svo drifu allir sig út í leiki. En að sjálfsögðu hafa flokkamir gert margt skemmtilegt sem athugavert er að lesa. Sveitarforingjar Fífils Sigga og Steinunn Rassálfar! Við emm flokkurinn Rassálfar. Við erum búin að gera heilan helling í vetur, s.s. halda hnútafund, fara að síga, videó- fund, bflafund og margt fleira. Helgina 13.-15. október fórum við í útilegu, fyrstu nóttina sváfum við í Skátaheimilinu en hina í Gamla golf- skálanum. Við fórum f göngu á lau- gardaginn þegar að allir voru vaknaðir. A laugardagskvöldinu fór svo Einar Örn með flokkinn í torfærur upp um fjöll og firnindi á nýja jeppanum hjá Björgunarfélaginu. I Rassálfum em: Gísli Valur, Halli, Birkir og Guð- mundur, flokksforingi Rassálfa er Herdís. Við hvetjum alla krakka til að byrja í skátunum því að þetta er æðisle- ga gaman og það má enginn missa af þessu. Herdís, flokksforingi Afturgöngur Sælt veri fólkið! Við erum fjórar stelpur í geggjuðum skátaflokk. Þessi skátaflokkur heitir Afturgöngur. Við erum alltaf að gera eitthvað skemmtilegt t.d. göngu, læra skyndihjálp, spjallfund og margt margt skemmtilegt. Við erum núna að vinna í því að fara að gera flokkshúfu sem á eftir að slá í gegn. Eitt sinn þegar við fórum í göngu inn í Herjólfsdal þá kom eitt fyrir sem minn- ir á það að skáti er ávallt viðbúinn. Það var mjög gott veður þennan dag og við vorum í ofsagóðu skapi og þá mættum við tveimur konum sem voru með tvö lítil börn á tjaldsvæðinu. Við tókum eftir því að konurnar áttu í einhverjum vandræðum og við fórum að spyrja þær hvort að við gætum eitthvað aðstoðað þær. Þær sögðu okkur að þær kynnu ekki að tjalda tjaldinu sem þær voru með. Auðvitað buðumst við til að hjálpa þeim og þetta var sko ekkert mál fyrir okkur. Þetta tók enga stund og konurnar voru okkur mjög þakklátar. Við höfum ekki mikið meira að segja á þessari stundu nema bara. Gleðileg jól Kærar kveðjur Afturgöngur Herdis flokksforingi Gaman í útilegu SKÁTABLAÐIÐ FAXI 0

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.