Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Qupperneq 7
Strók og Fossbúum (við alltaf jafn vin-
sæl). Þá var haldin glæsileg kvöldvaka
sem var ákaflega vel undirbúin (var ein-
hver sem tók ekki eftir „manninum með
söngbókina”?). Seinna um kvöldið var
svo farið í næturleik sem gekk út á það
að elta stráka sem voru með ljós. Svo
var bara farið að sofa. Morguninn eftir
var svo tekið til og farið frá skálanum.
Farið var í sund í sundlauginni í
Hveragerði. Eftir sundferðina buðu
Gústi og Sigga „Búkolluforeldrar”
okkur í kleinur, pönnukökur og mjólk.
Var það vel þegið. A leiðinni niður í
Þorlákshöfn var komið við í Eden í
Hveragerði. Glaðir og ánægðir héldu
svo skálarnir heim til Eyja.
Anna Jóna skátastelpa.
Dalakot 2000
Þann 10. nóvember hélt flottur hópur
skáta úr Eyjum af stað í hina árlegu
Dalakotsferð. Eftir langa ferð með
Herjólfi og bílum komum við svo í
skálann eitthvað um kvöldmatarleytið.
Eftir að sársvangir skátarnir höfðu nærst
var komið sér vel fyrir eins og skátum
einum er lagið! Um kvöldið var svo smá
kvöldvaka. Eftir kvöldvökuna var svo
skriðið ofan í svefnpokana og upp í
kojumar. Svo var farið að sofa. Þegar
við svo loksins vöknuðum morguninn
eftir var okkur svo hent í göngugallann
og við rekin út. Við fórum í göngu í
Reykjadal. Gangan gekk ágætlega en
með nokkrum hindrunum þó, s.s.
lækjum sem þurfti að vaða. I Reykjadal
var stoppað hjá heitum læk þar við
gátum „skolað af okkur skítinn”! I
brunagaddi héldum við svo út í lækinn
og böðuðum okkur. Eftir baðið héldum
við svo áfram að labba, með miklum
herkjum komumst við þó loksins á
áfangastað sem var við Drottningarhol-
una fyrir utan Hveragerði. Vorum við
mjög fegin þegar bílarnir komu og ferj-
uðu okkur í skálann. Þegar inn var
komið var svo skriðið beint ofan í svefn-
poka og haft það notalegt. Um kvöldið
fengum við gesti frá Landnemum,
Flokksforingja námskeið
Skátaflokkurinn minn, Refir, og
nokkrir aðrir í skátafélaginu mínu, Faxa,
fóru á flokksforingjanámskeið í ágúst
og var það æðislegt.
Við fórum með Herjólfi til
Þorlákshafnar og tókum rútu að
Þrengslunum þar sem við skiptum um
rútu og sú rúta fór með okkur á Ulfljóts-
vatn. Þegar við komum á leiðarenda var
okkur skipt í flokka,við urðum að vinna
með þessum flokkum í öllu sem við
gerðum á flokksforingjanámskeiðinu og
við fengum að vita hvar við svæfum.
Síðan fengum við að borða og gerðum
allt tilbúið, fórum á kvöldvöku og svo
að sofa. A þessu flokksforingja-
námskeiði lærðum við ýmislegt líkt og
að súrra, elda mat yfir opnum eldi, eld-
stæðagerð, hvernig á að höggva í eldinn
og hvemig á að nota á áttavita svo að ég
nefni nokkur dæmi. Við bjuggum til
tjaldbúðir á öðrum degi og settum þær
upp með eldstæði, matarborði, ruslatun-
nu og svo auðvitað tjaldi. A þessu tjald-
stæði grilluðum við hamborgara sem var
ofboðslega góðir og við sváfum líka
eina nótt í litlu tjaldi og við vorum sex í
því (þannig að það var frekar lítið pláss
hjá okkur þessa nótt). Á næstsíðasta
deginum þá gerðum við áætlun um gön-
guleið sem við ætluðum að ganga og
hver hópur gerði sína áætlun og við
gerðum nokkuð góða áætlun. Svo
gerðum við það sem við þyrftum til
göngunnar tilbúið og við gengum af stað
allir í sínum hópum. Það voru 6 punktar
þar sem við myndum athuga kortið og
taka stöðuna en einhvern veginn villt-
umst við út af gönguleiðinni og inn í eit-
thvað gljúfur. Það tók okkur dágóðan
tíma að komast úr þessu gljúfri en á
endanum komumst við upp úr því vegna
þess að frekar straumhörð á skipti því í
tvennt og við komumst ekki á hinn
endan fyrr en nokkru seinna þegar við
fundum ákjósanlegan stað til að stökkva
yfir. Og þegar við vorum komin yfir
fundum við reit fullan af bláberjum og
krækiberjum og við týndum þau þangað
til að allir voru komnir yfir. Við tókum
síðan nokkurn vegin stöðuna til skálans
sem við vorum að ganga til og eftir
skamma stund hittum við annan hóp og
síðan hittum við skátabíl sem vísaði
okkur á rétta leið. Þegar við komum í
skálann var beðið eftir þeim sem voru
eftir og síðan voru grillaðar pylsur og
við gerðurn okkur tilbúna fyrir nóttina
en ég (Ásgeir), Bjarni og Hallur ásamt
tveimur öðru skátum sváfum úti og var
það geðveikt. Morguninn eftir gengum
við til baka og vorum við talsvert fljótari
tilbaka. Eftir að við vorum búin að
pakka saman og gera okkur tilbúin til
heimferðar þá var hist í síðasta sinn og
allir kvaddir og allir voða glaðir. Við
tókum rútu niður til Reykjavíkur og alla
leið niður í Mjódd í skátafélagið Eina.
Þetta kvöld hittumst við nokkur í
Kringlunni, fengum okkur að borða og
fórum á „Coyote ugly” og síðan voru
allir kvaddir í síðasta sinn og allir fóru
þangað sem fólk gisti. Daginn eftir
fórum við í Herjólf og síðan fóru allir
heim.
Ásgeir Refur
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
o