Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Qupperneq 19
Það sem skátar láta út úr sér!
Tvær stelpur voru útí Viðey. Önnur
var að gera leikfimiæfingar og prófar að
standa á höndum. Þá segir hún við hina
„sjáðu hvað fjallið er miklu stærra ef
maður stendur á höndum!” þá spyr hin
hana „Hvemig getur þú séð fjallið ef þú
stendur á höndum?”
Ein stelpa sem er bókstaflega fræg
fyrir að segja einhverja vitleysu, var að
rökstyðja einhvert kjaftæði sem kom út
úr henni þegar einhver sagði henni
hvemig það ætti að vera í rauninni en
hún vildi ekki hlusta á rétta svarið og
sagði “Eg vil ekki heyra það sem ég vil
ekki heyra”!
Nokkrir dróttskátar voru komnir til
menningarborgarinnar Reykjavíkur, og
þurftu að taka strætó, við vorum að
kíkja á töfluna og tékka hvenær strætó
kæmi þegar ein stelpan sagði “Eigum
við ekki bara að hringja í strætóinn”?
Ekki gat hún látið þar við sitja heldur
kíkti hún á kortið sjálf og sagði þetta eru
bara 1-2 skref!!! Við getum alveg lab-
bað þetta! Málið var bara að þetta var
kort af allri Reykjavík og þessi 2 skref
voru 2 skref á korti - margir kílómetrar!
Fyrir Viðeyjarferðina var keypt nýtt
grill til þess að grilla humarinn. Verið
var að velta fyrir sér eiginleikum
grillsins þegar einni ljósku datt í hug að
spyrja „Er HRAÐSUÐA á grillinu?”
í þessari sömu Viðeyjarferð datt henni
í hug að spyrja um einhvað almennt eins
og „Hafið þið smakkað Rafhlöðu?”
En eins og allir vita þá hét nýji
drykkurinn ekki rafhlaða heldur
Batterí!!! Ég meina „come on”!
Loks kom að því að „eðlilega” fólkið
fór að segja einhverja vitleysu enda var
kominn tími til! Við vorum stödd í
Reykjavík og einni stelpuni datt í hug að
hlusta á útvarp fyrir svefninn og langaði
að hlusta á Fm957 af einhverjum skrít-
num ástæðum og spurði hópinn „Númer
hvað er Fm957 á útvarpinu?”
Ein stelpa sagði „Ég er að fara í
enskuskóla í sumar, ég skil samt ekkert
hvað er svona merkilegt við þetta
tungumál, það er ekki einu sinni forseti
í Bandaríkjunum!” Talandi um það að
fylgjast EKKERT með fréttum!!!
Ein stelpan var að segja frá því
hvemig maður gæti kafað miklu lengur
ef maður bara væri með GASKÚT á
sér!!! Allir vita að það þarf súrefniskút
til að kafa lengi! EKKI GASKÚT!!!
Það var umræða í gangi um hvað við
ættum að gefa félagsforingjanum á
Selfossi í afmælisgjöf, en hann á afmæli
á Þorláksmessu. Ein stelpan var að tala í
síma við aðra sem ekki komst á fundinn
og sagði henni „bla bla bla...svo á hann
bara afmæli í Þorlákshöfn”!!!
Einni stelpu fannst kærasti hennar vera
með mjóa handleggi og sagði við hann
„Þú ert með svo mikla Spóahandleggi!!!
En eins og flestir vita eru fuglar með
vængi.
Hver lækkaði svona hátt í græjunum???
Brasilía er í Afríku!!!
FÖSTU-dagurinn 13. er á Pálma-
SUNNUDEGI!
Hvenær eru aftur jólin í ár?
Hva, var varðskipið bara að landa hér?
Hva? Heldur þú kannski að strútarnir
komi með börnin?
Sendum Vestmannaeyingum okkar bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og blessunarríkt komandi ár.
Þökkum ánœgjuleg samskipti á liðnum árum
nú þegar félagið hœttir rekstri ms. Herjólfs eftir tœp 25 ár.
Þlcrjóifur hf.
SKÁTABLAÐIÐ FAXI Œ)