Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Page 6
Kanínur
Hæ hæ! Við erum flokkurinn Kanínur,
í flokknum okkar eru fimm stelpur þær
heita Alma, Þóra, Sandra, Ema og Elín
og heitir skátaforinginn okkar Stína.
Okkur langar að segja ykkur svolítið frá
starfinu okkar. Við höfum gert margt
skemmtilegt í vetur m.a. erum við búin
að fara í eina útilegu og ætlum við að
segja ykkur frá henni.
Útilega í Gamla golfskálanum
Byrjuðum föstudaginn 17/11
2000 og enduðum sunnudaginn
19/11 2000.
Við byrjuðum útileguna á því að
panta pizzu og vorum síðan með
kvöldvöku og næturleik seinna
um kvöldið.
Við byrjuðum laugardags-
morgun á því að fara í sund, svo
löbbuðum við í bakaríið, og
fórum íbíltúr á björgunarbílnum
sem skutlaði okkur inn í dal. Eftir
smá hvíld var eldað pulsu-pasta
sem leynigestur eldaði. Um
kvöldið varð smá draugagangur
en við kom-umst brátt að því
hver var þar að verki.
Á sunnudagsmorgni tókum við
til og þrifum skálann, skruppum
síðan í smá fjallgöngu og fórum
svo heim.
Kanínur
Erna og Þóra að vígjast.
Stína flokksforingi
Flugur
Halló, halló
Við erum flokkurinn Flugur og í
honum eru fjórar stelpur ofsalega hres-
sar og kátar. Við erum búnar að fara í
eina útilegu sem heppnaðist ekki alveg
nógu vel en við ætlum að standa okkur
betur næst svo erum við búnar að gera
margt skemmtilegt í vetur og ætlum að
halda því áfram eins og að fara að leika
okkur í snjónum þegar haun kemur sem
verður vonandi bráðlega en nú þökkum
við bara fyrir okkur og þeim sem langar
að koma í flokkinn okkar þá eru fundir á
mánudögum kl. 20:00 í skátaheimilinu .
Sjáumst
Flugur
Ylfíngastarfíð
Ylfingastarfið fór vel af stað strax í
haust og voru átta ylfingar mættir til
leiks í byrjun. Undirritaður hefur fram
að þessu séð um ylfingastarfið með
hjálp bæði úr Skátafélaginu sem og
annarsstaðar. Strax á fyrsta fundi þá tók
ylfingasveitin sér upp nafnið Doppóttir
Bananar og hefur hún haldið því síðan.
Sem dæmi um það sem gert hefur verið
var til dæmis farið að síga og klifra i
spröngunni með dyggri aðstöð
Björgunarfélagsins. Fór undirritaður
Sendum 'Eyjamönnum
'BestujóCa og nýársfcveðjur
FLUGFELAG ISLANDS
með þá í kynnisferð um Björgunar-
félagið þar sem þau fengu að skoða
allan þann útbúnað sem þar er. Jón
Bragi Amarsson varðstjóri hjá
lögregluembættinu í Vestmannaeyjum
sýndi þeim allt milli himins og jarðar í
Lögreglustöðinni og nú fyrir skemmstu
var það Elías Baldvinsson, eða Addi
Bald eins og flestir kalla hann,
Yfirslökkviliðsstjóri sem kynnti þeim
allt hátt og lágt í slökkviliðsstöð hjá
Slökkviliði Vestmannaeyja. Vil ég nota
tækifærið og þakka öllum þeim sem
hafa aðstoðað við ylfingastarfið og
sérstaklega Jón Braga og Elíasi (Adda
Bald) fyrir þeirra þátt.
Einar Örn
Ylfingaforingi.
0
SKÁTABLAÐIÐ FAXI