Skátablaðið Faxi - 01.12.2002, Page 6

Skátablaðið Faxi - 01.12.2002, Page 6
Bakkabræður Halló halló! Við í sveitinni Bakkabræðrum ætlum að segja ykkur aðeins frá okkur. í sveitinni eru tveir stelpuflokkar á aldrinum 11-12. Flokkarnir heita Bambar og Pysjur. Því miður eru engir strákar hjá okkur en þeir sem hafa áhuga og eru á aldrinum 11-12 ára endilega komið þá niður í skátaheimili á þriðjudögum kl. 17:00. En núna ætlum við að segja svona nokkurn vegin hvað við höfum verið að gera frá því í janúar á þessu ári þar til núna. Þann 15.-17. febrúar fórum við í sveitarútilegu sem heppnaðist mjög vel. Við vorum að súrra (binda saman spýtur og mynda þrífót), rifja upp og læra fleiri skáta- hnúta, og svo var farið í göngu, ýmsa leiki, útilegu og gerð nokkur verkefni. í þessari var verið að undirbúa flokkana undir vígsluna sem skátar. Og þann 22. febrúar vígðumst við sem skátar og vorum mjög ánægðar með að ná þessum árangri. Við vorum líka allan síðasta vetur að vinna að búkollu verkefnum sem voru ýmsar þrautir fyrir landsmótið sem við fórum flestar á og skemmtum okkur rosalega vel. Svo kom smá frí í ágúst og starfið byrjaði aftur þann 7. september. Þá komu allar stelpurnar sem voru í fyrra og nokkrar nýjar í viðbót og viljum við bjóða þær hjartanlega velkomnar í skátana. Nú í vetur erum við búnar að vera að vinna verkefni og ætlum bara að halda því áfram eftir jól og skemmta okkur vel. En þann 15.-17. Pysjur. Hér erum við á landsmótinu 2002 Sigrún H, Kristín, Fanndís, Telma og Iris nóvember fórum við í aðra sveitarúti- legu sem heppnaðist mjög vel. Þessi úti- lega var bara til þess að hressa upp á starfið og vorum við bara að leika okkur alla helgina og fórum í eina göngu en þegar við komum aftur upp í skáta- stykki, þar sem við gistum, fór verið versnandi og var því ekki hægt að fara út seinni partinn þannig að við vorum bara inni að leika okkur. En núna verðum við að kveðja í bili og viljum við óska öllum bæjarbúum gleðilegra jóla og vonum að þið hafið það sem allra best um hátíðirnar. Jólakveðja Bakkabrœður í vetur er búið að vera geggjað gaman. Við erum búnar að fara í 3 útilegur eina flokksútilegu og tvær sveitar útilegu. Og svo fórum við auðvitað á landsmótið sem var mjög gaman. Við gerðum ýmislegt skemmtilegt t.d. fórum í göngu, vatnasafarí, Harry Potter heim og svo miklu miklu meira. En það er meira sagt frá því í Landsmótsgreininni. Við viljum endilega hvetja alla til að koma í skátanna því það er æðislegt fjör og endilega stráka líka. Við óskum öllum gleðilegra jóla og sjáumst hress og kát á næsta ári. Jólakveðjur Bambar Bambar Hæ hæ. Við erum flokkurinn Bambar. Pysjurnar Flokkurinn okkar er búinn að vera starfandi síðan í fyrra. Síðan þá erum við búnar að gera fullt af skemmtilegum verkefnum, við búnar að fara í tvær sveitarútilegur og í júlí fóru nokkrar úr flokknum okkar á landsmót skáta á Akureyri. Stefnan hjá okkur er að læra en þá meira urn skátana og fara í fleiri útilegur. Okkur finnst skátastarfið mjög skemmtilegt og við hvetjum alla til að byrja í skátunum. Jólakveðja Pysjumar Bambar. Hér erum við á Landsmóti skáta 2002. Fanney, Elín, Margrét, Ingibjörg, Jakobína, Arný, Valgerður og Sigrún SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.