Skátablaðið Faxi - 01.12.2002, Qupperneq 15

Skátablaðið Faxi - 01.12.2002, Qupperneq 15
Hér má sjá Strók sína taktana sína við upp vaskið Hérna erum við í kynningarleik sem gengur út á það að reyna að klæða náungann í hinu liðinu úr sokknum. Flokksforingjanámskeiðið Helgina 15.-17. október var haldið flokksforingjanámskeið. Byrjað var á því að sækja krakkana sem að komu á föstudagskvöldinu í Herjólf. Það voru 7 Strókar frá Hveragerði, 3 Fossbúar frá Selfossi og að lokum voru 4 Faxar frá Vm. Farið var upp í Skátastykki þar sem okkur var skipt í tvo hópa. Svo var talað aðeins um siði og venjur. A eftir því fengu allir kakó og kex og síðan var farið að sofa. A laugardeginum vöknuðum við kl.9:00 og fengum morgunmat. Síðan var talað um hvemig á að skipuleggja fundi og svo fengum við að skipuleggja flokksfund. Síðan fórum við út og áttum að hita kakósúpu á hlóðum, sem að gekk frekar brussule- ga. A eftir því fórum við í póstaleik sem að var skyndihjálp, hnútar, súrra og áttavitakennsla. Svo fórum við inn og héldum flokksfundina sem að við skip- ulögðum um morguninn. A eftir því fórum við á fyrirlestur um leiki. Svo fengum við kvöld mat sem að mamma hennar Rósu bjó til. Eftir kvöldmat fórum við á nokkra fyrirlestra og svo um miðnætti fórum við út í hring og punkt og síðan í stoð. Síðan var farið að sofa. A sunnudeginum var vaknað kl. 10:00, þá fengum við morgunmat og svo var farið beint í það að taka til og pakka niður. Síðan var labbað niðri skátaheim- ili og þar hvíldum við okkur þangað til að tími var kominn fyrir krakkana ofan af landi að fara heim. Þá löbbuðum við niðrí Herjólf, þar kvöddum við krakkana sem að héldu heim á leið. Sara Sigurðardóttir. Hér eru allir sem voru á námskeiðinu en það komu krakkar frá Hveragerði (Strókur) og Selfossi (Fossbúar) ræna lolatreð V erð á nokkrum mismunandi stærðum Hæð Verðkr. 140 cm 8.100- 155 cm 9.200.- 185 cm 12.900.- Tréö er einnig hægt að fá í öðrum stærðum bæði minni og stærri (90-500 cm) Það er hægt að panta svona jólatré hjá okkur. Við verðum með sýningartré hjá okkur. Þetta er góð fjárfesting, leita má upplýsinga hjá okkur -truflar ekki gróður -það þarf ekki að vökva -Stálfótur fylgir -Ekki ofnæmisvaldandi -Eldtraust Skátafélagið Faxi SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.