Skátablaðið Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 3

Skátablaðið Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 3
Barist við ísdjöflana Farið var í Dróttskátaferð upp í Bláfjöll 23.-25. janúar. Aætlað var að plana D.s.starfið og þjappa hópnum saman, sem gekk nú vonum framar. Seinni ferð þjóðvegar okkar var tekin, og mætti Bjarki fremur seint í Herjólf, næstum búin að missa af þessari mergjuðu ferð. Þegar á Islandið var komið biðu Einar Öm og Freydís okkar og keyrðu okkur í Gilitrutt, og svo vorum við með einn bfi í Herjólfi, það var litli bfiinn hennar Rósu. Haldið var upp í Bláfjöll en Einar og Freydís komu við í Hveragerði. A meðan þau vom í Hveragerði fór litli bflinn hennar Rósu upp að skála og komust við þá að því að við vomm læst úti. Tókst þó að komast inn í kompu sem var mikill léttir því það var nú dálítill hrollur í okkur. Þegar allt liðið var komið þá var farið í svokallaðan póstaleik sem var náttúmlega bara hrein snilld. Einar Öm sá um leik sem heitir snickersleikurinn og virkar hann þann- ig að það em bara þrjú snickers og fjórir sem eiga að fá, en þá þarf að ákveða hver á að deyja, því sá sem fær ekki snickes deyr. Rósa og Leifa vom með þrautir sem dróttskátamir áttu að leysa og Freydís var með póst sem gekk út á að skipuleggja öflugt dróttskáta- starf. Við vöknuðum eldhress að morgni laugar- dags, enda hresst fólk á ferð. Þegar allir vom búnir að græja sig var haldið út í kuldann. Veðrið var í alla staði mjög hentugt til útiveru, þá meinar maður nokkuð bjartur dagur. Við fómm út í þeim tilgangi að finna helli sem er í grennd við svæðið, en það munaði litlu að Eyþór dytti ofan í hellinn, eins og að hans sögn að hann hafi barist við fsdjöflana. Hellirinn fannst að lokum og við sigum niður í hann sem var bara nokkuð gaman. Skíðaskálin í Bláfjöllum var kannaður eftir að allir voru komnir með kalnar tær og útlimi eftir útivemna. Fengum við okkur eitthvað í gogginn, svo eftir að við vomm búin heldum við upp í Gilitmtt. Fengum við miklar og góðar móttökur af krummanum sem var búin að éta frönskumar hennar Sigrúnar. Svo var bara chillað fram að kvöldmat og haldin svo kvöldvaka í fram- haldinu sem endaði líka á frábæmm næturleik þar sem Rósa fór á kostum (ekki segja henni að hún klúðraði leiknum). Þegar leikurinn kláraðist var farið í annan leik til sárabóta og var það hinn sívinsæli ljósaleikur. Eftir að hafa hlaupið í sig hita í snjónum þá fórum við inn í kakó og gátu- leiki, og auðvitað virkaði þetta skemmtilegt fyrir þá sem skildu gáturnar. Eftir gátuleik- ina fóm sumir að kúra hjá koddunum sínum en aðrir voru meira fyrir að spjalla um daginn og veginn. I sunnudagshádegi vorum við vakin með látum frá foreldum skáta sem komu í heim- sókn á laugadagskvöldið. Þá var skálinn tekin í gegn, enda þessi skáli í eign okkar, og var því ekki í spes ástandi. Eftir tiltekt lá leiðin að gatnamótunum þar sem rútan ætlaði að stoppa fyrir þessum hressu skátum sem vom nokkuð þreytt eftir þessa frábæm helgi. Haldið í Þorlákshöfn þar sem hópurinn fór í sínar áttir og eflaust sváfu allir vært í þessu fallega en merka skipi okkar. Littu okkurum aí komjokhéjimum tÚ áík ogstyrktugottæskutykstarfí láSúmí. Móttökutími: 1 Markvebjurborm út í áfangadítg. 16. des. fimmtudagur ki. 12-22 17. des. föstudagur ki. 12-19 18. des. laugardagur kl. 12-19 19. des. sunnudagur kl. 12-19 20. des. mánudagur ki. 10-19 21. des. þriðjudagur kl. 10-19 22. des. miðvikudagur ki. 10-22 23. des. fimmtudagur kl. 10-22 Skátafélagið Faxi SKÁTABLAÐIÐ FAXI 3

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.