Skátablaðið Faxi - 01.12.2004, Qupperneq 7
Tiger að elda gómsæta rétti
Faxa. I flokknum emm við fimm: Svana
Sigurrós, Svana Björk, Sigrún, Sólveig
og María. Við erum búnar að gera margt
í vetur s.s. flokkskistu, flokksbók, fara í
útilegu og vera duglegar að mæta á
fundi. Eftir áramót ætlum við í aðra úti-
legu og stefnum líka á að fara næsta
sumar á landsmót á Ulfljótsvatni.
Þetta er hann Gísli
Stjörnur að búa til flokkskistu.
Sveitarútilega Fífils
29.-31. október
Utilegan byrjaði klukkan 15 upp í
Skátastykki þá var sagt á hvaða lofti
hver flokkur ætti að sofa. Farið var út að
flagga í byrjun útilegunnar. Svo var
haldið inn og komið sér fyrir. Eftir
kvöldmat héldum við kvöldvöku, úrin
voru tekin af krökkunum og voru þau
þar með tímalaus. Eftir kvöldvökuna
fómm við í göngu út að Lyngfelli voru
nú margir nokkuð hræddir skátar.
Haldið var upp í skála þar sem gerður
var draugagangur, eftir það fórum við
bara að græja okkur í svefn.
Morguninn eftir vöknuðum við
nokkuð snemma eða klukkan 8 farið út í
morgunleikfimi sem Gísli sá um og
gerði með stæl. Skálaskoðunin var á
sínum stað. Eftir skálaskoðun fórum við
í þriggja tíma göngu þar sem var gengið
upp á Helgafell og svo endað í sundi
komum niður í skátaheimili og fengum
okkur að borða, horfðum á spólu og
lögðum svo á stað upp í Skátastykki
aftur. I kvöldmatnum var hlutverka-
leikur þar sem allir fengu hlutverk úr
Disney mynd. Haldin var svakalega
skemmtileg kvöldvaka sem endaði með
þessum líka miklu látum því það var
gerður draugagangur sem enginn veit
hver gerði eða hvaðan hann kom. Hér
með auglýsum við eftir því að draug-
urinn gefi sig fram. Slógu hjörtu okkar
mjög ört vegna þessarar uppákomu, svo
var pínu næturleikur. Eftir hann fórum
við að sofa og voru þá allir komnir á eitt
loftið því enginn þorði að sofa á hinum
loftunum.
A sunnudeginum var vaknað klukkan
9 og skálinn tekinn bókstaflega í gegn
allir þrifu sín svefnloft því enginn
flokkur vildi vera svo óheppin að þurfa
að þrífa klósettið. Svo var farið í
póstaleik, það voru fjórir póstar, mjög
skemmtilegt. Slitum við svo þessari
sælu útilegu og allir héldu heim á leið
hressir og kátir.
Að snæðingi eftir ferðina í Haugahelli
Allir í hellaferð í sveitaútilegunni.
SKATABLAÐIÐ FAXI