Skátablaðið Faxi - 01.12.2004, Page 11

Skátablaðið Faxi - 01.12.2004, Page 11
búið að breyta áætluninni og þurftum við að skipta um lest, en hún var á næsta brautarpalli þannig að við þurftum að hlaupa á milli og þegar við komumst að lestinni þá voru svo margir og troðningurinn svo mikill að við enduðum á því að ganga lestina alveg á enda og fórum í fyrsta farrými, en ekki nóg með það heldur fundum við ekki út hvar við ættum að borga svo að við borguðum ekki krónu (en vorum samt búin að borga lestarmiðann, en vorum aldrei rukkuð um hann). Komumst við að lokum á Kastrup þar sem fáir sluppu auðveldlega í gegnum hliðið og fríhöfnin var vel skoðuð og síðasta gjaldeyrinum eytt. Pínulítil seinkun var á fluginu, en þegar í flugvélina var komið og maður ætlaði virkilega að slappa af eftir langt ferðalag byrjuðu ósætti um sætaröðina en viljum við nú bara kenna mikilli þreytu um þau læti enda búið að vera á ferðalagi í 14 klukkutíma ásamt því að hafa farið á Hópurinn sem fór til Danmerkur í sumar. Strikið í þessum hita. Flugferðin gekk annars vel og beið eftir okkur bílaleigubíll í Keflavík svo að við gætum brunað beint í Þorlákshöfn, en þegar í klefann var komið í Herjólfi angaði hann af mikilli táfýlu. Allir spen- ntir að komast heim í rúmið sitt og STURTU. Ferðin heppnaðist mjög vel, allir voru sáttir við hana og geyma eflaust góðar minningar úr henni. Smiðjudagar 15.-17. október Smiðjudagar voru haldnir hér í Vestmannaeyjum, eftir að hafa verið haldnir víðsvegar um landið, alltaf á sama tíma þriðju helgina í október. Svo að við segjum hvað þessir dagar ganga út á þá ganga þeir aðallega út á að ská- tar víðsvegar um heim setjast við tölvur og talstöðvar og tala saman. En málin hafa þróast þannig að stofnaður var hópur sem kallaður er smiðjuhópur, og heldur hann utan um þessa helgi með aðstoð okkar þetta árið. Við viljum þakka þeim fjölmörgu sem komu að þessari helgi, þá sérstaklega: Björgunarfélaginu fyrir afnot af tal- stöðvum, siglingu á Þór og sigi, Kristjáni á Náttúrugripasafninu, Bibba fyrir leiðsögn á Heimaklett, Ruth og Sigurgeir fyrir eldgosamyndirnar, Framhaldskólanum fyrir afnot af tölvum, Vigga í sundlauginni fyrir miðnætursund og bænum fyrir laugar- dagskvöldmatinn. Skátafélagið Faxi Þetta byrjaði með að tvö félög komu með fyrri ferðinni til Eyja. Það var lifaði í sjoppunni þangað til hinn félögin komu, þá skráðu allir sig. Það þurftu allir að vera með Nokia bönd um hálsinn og í einhverjum risa bolum. Eftir skráningu komu allir sér fyrir og haldið út í sjoppu í kvöldmat. Svo var bara chillað og talað saman. Við vorum rekin að sofa geggjað snemma og þeir sem voru á einum stað í salnum í Skátaheimilinu fóru sumir bara ekkert að sofa. Það var farið í bakaríið í morgunmat klukkan 9. Eftir það var skráning í dagskrá og tekið til. Borðuð súpa og brauð í hádeginu. Eftir það var farið upp í Framhaldsskóla á eitthvað skátachat. Eftir að sumir voru búnir að hertaka tölvurnar fórum við hin niður í skátaheimili og biðum eftir siglingu sem Björgunarfélagið sá um. Heldum svo niður á bryg- gju og svo um borð og hoppað um í risa öldum og urðu margir blautir. Kom fólkið í land mjög blaut og þá voru allir reknir á eldgosamyndina. Þegar helmingurinn af myndinni var búin héldu allir að þetta væri búið og þá sagði Palli Zoph „nei nei þetta er bara helmin- gurinn" og allir í salnum „ohh" og nokkrir voru bara hreinlega sofnaðir. Farið var svo í göngu um eyjuna þar sem skoðað vara ýmislegt sem tengdist gosinu. Upp í Skátastykki var farið þar sem kvöldmaturinn í boði bæjarins var borðaður og haldin svo hrikalega skemmtileg kvöldvaka. Eftir dagskrána upp í Stykki var gengið niður í Skátaheimili þar sem allir sóttu sunddótið sitt og haldið var í miðnætur- sund sem var bara gegg- jað fjör. Þegar við komum upp í heimili vara bara farið strax að sofa. Við vorum svo vakin morguninn eftir með því að Andri Týr sagði í eyrum á manni „girl your fine" og allir vöknuðu. Við tókum allt til og löbb- uðum með krökkunum niður í Herjólf til að kveðja. Jólakveðja Jakobína Farið upp í Framhaldsskóla í eitthvað skátachat. Hoppað um í risaöldum SKÁTABLAÐIÐ FAXI 11

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.