Skátablaðið Faxi - 01.12.2004, Síða 15
Póstur eitt: Tunnufleki á þurru landi
að sofa seint og síðar meir, eða um tvö
leytið.
Sunnudagur15. ágúst
Morgunverkin unninn eins og skyldi í
þessu blíðveðri. Eftir öll erfiðisverkin
var fyrirlestur með Huldu sem fjallaði
um skátastarf í samfélaginu og eftir það
kom Sigurður Júlíus Grétarsson sem
hélt fyrirlestur um skátastarf og aga.
Hádegismaturinn var pizza elduð úti
svona á geðveikan hátt og var hún mjög
góð. Eftir að hafa borðað þessa dýrindis
pizzu var farið í einn mergjaðasta
póstaleik sem hægt er að hugsa sér. Hér
koma lýsingar á póstunum: póstur eitt
þá voru svona fjórar tunnur með fleka
ofan á og átti flokkurinn að koma sér
áfram með því að ýta sér með prikum.
Póstur númer tvö var þannig að einn úr
flokknum átti að fara út á kanó og hinir
að koma logandi eldi til hans með því að
nota líflínu, þriðji pósturinn var hengi-
brú það var mergjað þá var búið að
koma spýtu fyrir í miðri lækjarsprænu
og á spýtunni var búið að festa aðra
spýtu svo það myndaði kross og átti
maður að koma öllum flokknum yfír án
þess að snerta lækinn því hann var
eitraður. Fjórði pósturinn gekk út á að
koma vatni sem átti að vera eitrað yfír í
fötu og máti maður ekki koma við vatn-
ið, en það var búið að búa til svona
handvirkt færiband. Þegar þessi
skemmtilegi póstaleikur var búinn þá
fórum við á tvo fyrirlestra hjá
Guðmundi sem talaði um vímuefni og
áföll í skátafélögum og svo hjá Huldu
um foreldrastarf í félögum. Það var
gestakvöldmatur þar sem búið var að
eftir þetta námskeið, en alveg sama um
það ræsið var á sínum stað og öll
morgunverkin létu ekki á sér standa.
Eftir allt puðið í morgunleikfiminni þá
fórum við á fyrirlestur hjá Tryggva um
náttúruna, sem var nokkuð fróðlegur.
Svo fengu flokkarnir það verkefni í
hádeginu að elda silung úti í náttúrunni,
og Gaukar bjuggu til heitan pott (var
reyndar kaldur) og var hann testaður
þarna í hádeginu. Var það bara fyndin
sjón og vá lætin í þessum drengjum.
Eftir matinn og lætin þá var farið í
markaðsferð, sem er varla frásögu-
færandi og heldur betur skrítin ferð þar
sem maður máti ekki tala nema taka í
einhvern staf því þá mundi maður breyt-
ast í stein, dulítið skrítið, en nokkuð
gaman. Svo hófst gamanið og það var
að ganga frá blessaða dótinu og það er
nú ekki gaman þó svo við höfum logið
því, því öll vinnan sem var búin að fara
í þetta var svo mikil og dýrmæt reynsla
sem maður nýtur góðs af. En eftir að
hafa gengið frá næstum öllu var gert
endurmat á námskeiðinu, svo var
draumakvöldvaka sem var bara hrein og
bein snild þar sem Björgvin fór á kost-
um. En eftir kvöldvökuna var kveðju-
stund og var hún frekar sorgleg og
enginn á því að fara heim eftir yndisleg-
an tíma á Úlfljótsvatni. En það sem
gleður mann er að maður hefur eignast
vini sem maður hittir aftur á tímabilinu
september 2004 til febrúar 2005 og
vinnur verkefni og svo hittast allir
hópamir í mars sem verður bara gaman
Takk fyrir okkur
Rósa og Leifa
bjóða einhverjum eldri skátum, sem
hafa lokið við Gilwell þjálfunina. Ekki
var eins gaman á þessari kvöldvökunni
þar sem Olafur Asgeirsson talaði í svona
góðar tvær klukkustundir án þess að fá
sér vatnsopa. En við ákváðum við bara
að gera gott úr þessu og eftir kvöld-
vökuna fómm við og héldum svona sér
kvöldvöku sem stóð fram á rauða nótt
eða þangað til skólastjórinn Helgi kom
og bað okkur um að hafa lægra, og
auðvitað hlýddum við því og fórum
beina leið inn í tjald.
Mánudagurinn 16. ágúst
Maður var nú orðin dálítið þreyttur
Póstur þrjú „hengibrú”
SKÁTABLAÐI0 FAXI
15