Skátablaðið Faxi - 01.12.2008, Side 10
Skátasveitirnar
Fálkaskátar á þriðjudögum
Skátahópurinn sem kemur í skáta-
heimilið á þriðjudögum eru skátar á
aldrinum 11-13 ára. Það sem við höfum
verið að gera aðallega í vetur er að
innrétta herbergi sem skátailokkarnir
hafa afnot af. Þar sem herbergin hafa
verið máluð í þeim litum sem hver og
einn skátahópur ákvað í sameiningu.
Við höfum farið í eina skátaútilegu þar
sem var mikið stuð. Hér kemur kynning
á skátaílokkunum þeim íjórum sem eru
á þriðjudögum:
Stélpurnar
Flokkurinn okkar heitir Stelpurnar og
herbergið okkar er ljósblátt. Okkur
finnst skemmtilegt að fara í útilegur og
fullt að leikjum.
I flokknum okkar eru Valbjörg,
Guðrún, Mirra, Svanhildur og Þorbjörg.
Kveðja Stelpurnar
SOS
1 hópnum eru Alma Lísa, Hjálmar,
Sunna Mjöll, Hörður, Richard og
Viktoría.
Viktoría er foringinn og hún stendur
sig vel í því starfi. Við erum bæði
strákar og stelpur. Við erum með dag-
bók og skrifum í hana á hverjum degi og
stöndum okkur vel með hana. Nafnið á
flokknum okkar S.O.S. þýðir strákar og
stelpur og það rokkar feitast.
Við fórum í útilegu og okkur fannst
langskemmtilegast að baka pizzu
Auk þess að borða nammi og gos og
horfa á mynd.
Svo var rosalega skemmtilegt eftir
myndina.
Fórum svolítið seint að sofa.
Vöknuðum kl 8 og fórum í ratleik og
löbbuðum í íjöruna og svo upp á
Stórhöfða.
Fórum í sund og fengum svo bakarís-
mat frá Arnóri Bakara.
Elduðum yfir opnum eldi, pylsur, hike
brauð og sykurpúða
Það var mjög gaman takk fyrir okkur
Rosalega gaman að hitta alla vinina
og syngja á kvöldvöku
Gleimerey
Við erum Ijórar 12 ára stelpur sem
erum í skátafélaginu Faxa. Nafnið á
flokknum okkar er Gleimerey. Á þessu
ári höfum við gert margt skemmtilegt
eins og farið í útilegu og fengum við
okkar eigið herbergi sem við máluðum
og röðuðum inn húsgögnum. Svo tölum
við ekki um landsmót skáta 2008 það
var gaman.
Nú erum við að undirbúa jólin og það
er bara stuð. Við setjum upp jólaseríur
og jólaskraut í herbergið okkar. Við
erum með skátum í herbergi sem heita
Súper skátar og þeir eru alveg ágætir.
Við erum líka búnar að fara í marga
skemmtilega leiki og syngja. Við höfum
sérstakt hlutverk innan flokksins, Iris
Eir er flokksforingi, Ingunn er aðstoðar
flokksforingi, Erna er ritari og Inga Lára
er þjónn.
Flœkjurnar
Við erum 5 stelpur sem heitum Sara
Dís, Arna Þyrí, Steiney, Sigurbjörg og
Agnes. Flokkurinn okkar heitir
Flækjurnar, því okkur fannst það flott.
Við eigum mega flott herbergi og við
deilum því með flokknum Skrúfunum.
Við erum nýbúnar að mála herbergið
okkar skær appelsínugult og Ijós
ijólublátt.
Það er búið að vera gaman í vetur hjá
okkur, þar höfum við tekist á við hin
ýmsu verkefni sem hafa bæði verið
Flækjurnar
Stelpurnar